Fréttabréf Ættfræðifélagsins - apr 2020, Qupperneq 8
8http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2020
aett@aett.is
ar norður í Eyjafjörð og aldrei sagst framar til hans
heimilis víkja. Þrálynd, keppin og óhlýðin í flestu.
Málið flæktist á Alþingi allt til 1595, en þá vildi Páll
fá lögskilnað þar sem hann hafði hug á að biðja sér
annarrar konu, nefnilega Halldóru dóttur Guðbrands
biskups Þorlákssonar. Hann var þá búinn að fá leyfi
konungs til að kvænast á ný. Hann sagði þau Helgu í
raun aldrei hafa verið löglega gift þar sem aldrei hafi
verið lýst með þeim og allt farið fram á einum degi,
kaup, festing og hjónavígsla!
Á meðan á öllu þessu lagabraski stóð orti hann
fögur ljóð til Halldóru líkt og til Helgu forðum. Þar
segir hann meðal annars:
Kveð ég svo væna veigabil.
Verndin guðs þér hlífi.
Ann ég þér, meðan er ég til
eins og mínu lífi.
Er mín bónin auðarbrú,
að mín þiggir kvæði
og að munir mig í trú,
meðan lifum bæði.
Einnig Guðbrandur biskup fékk vísu frá Páli vegna
kvonbænanna. Sá var einn hængur á þeim ráðahag,
nefnilega sá, að Halldóra hafði engan áhuga á Páli.
Ógilt hjónaband
Oddur biskup Einarsson taldi framferði Páls á Alþingi
hneykslanlegt, að hann vildi með þessu gera börn
sín óskilgetin. Tvö barna þeirra Helgu, þau Pétur og
Elín, kröfðust þess einnig að hjónaband foreldranna
væri dæmt löglegt, þar sem á því valt hvort þau væru
skilgetin og arfgeng. Þessi krafa þeirra var tekin til
greina.
Dómsniðurstaðan varð sú að ekkert af því, sem
Páll bar Helgu á brýn, væri skilnaðarsök, nema þau
atriði að hún gekk frá honum og varði honum rekkju
sína. Þetta tvennt væri á hinn bóginn ósannað og
þess vegna yrði skilnaðardómur ekki reistur á því.
Dómararnir töldu það heldur ekki sannað að Páll væri
saklaus af sundurlyndi þeirra hjóna og þverúð.
Það var fleira sem mæddi á Páli þessi árin. 1596
kvörtuðu Ísfirðingar mjög yfir að hafa hann sem sýslu-
mann yfir sér, þar sem hann bjó víðs fjarri, og væri
auk þess vafinn í hjúskaparhneyksli og sæi í gegn-
um fingur sér með ólöglegar trúlofanir og refsaði ekki
sekum mönnum, jafnvel þótt um manndráp væri að
ræða. Ári seinna, 1597, fórst svo tengdasonur hans,
maður Ragnheiðar, Gissur Þorláksson, sýslumaður á
Núpi í Dýrafirði í snjóflóði.
Það var svo í apríl 1598 sem sýslumaðurinn á
Reykhólum, Páll Jónsson, Staðarhóls-Páll, skilinn að
borði og sæng, kvenmannslaus, í eilífum deilum. gaf
upp öndina. Hann var drykkjumaður mikill, gífuryrt-
ur, duttlungafullur og ágjarn en þó vildu margir meina
að hann hefði gott hjarta undir úlfshamnum. Hann var
talinn skarpvitur og eitt besta skáld sinnar samtíðar,
mælskumaður og manna lögspakastur. Þó dugði sú
þekking hans hvorki til að hemja konu sína heima né
losna við hana þegar biskupsdóttirin birtist.
Barnabörnin
Meðan Páll gekk sín hinstu skref á Reykhólum dvaldi
lögskipuð eiginkona hans, burtu flúin, hjá Elínu dótt-
ur þeirra á Munkaþverá í Eyjafjarðarsveit, á sínum
æskuslóðum. Sjálfsagt hefur hún haft það gott en
Björn eiginmaður Elínar var sagður valmenni hið
mesta, góður og göfuglyndur. Hún átti eftir að lifa
mann sinn í sextán ár, en fáum sögum fer af þeim,
enda mótleikarinn í lífi hennar horfinn á braut.
Á Munkaþverá hefur Helga trúlega umgengist
barnabörnin sín, fjögur börn Elínar, en yngsti son-
ur hennar var „vitskertur“ segir Espólín. Pétur, son-
ur þeirra Helgu og Páls, sem varð sýslumaður á
Staðarhóli, var sá eini barna þeirra sem skírði í höf-
uðið á þeim. Dóttir hans hét Helga, hún varð lögréttu-
mannsfrú á Hóli í Kinn. Ekkert barnabarnanna fékk
nafnið Páll.
Frægast barnabarnanna var auðvitað Brynjólfur
biskup Sveinsson í Skálholti, sonur Ragnheiðar. Ekki
er gott að spá í hvort Páll hefur séð eitthvert barna-
barna sinna en miðað við að hann lét sig ekki muna
um að sigla á fund kóngsins í Köbenhavn, níu sinn-
um, er allt eins víst að hann hafi brugðið undir sig
betri fætinum og heilsað, alla vega, upp á Ragnheiði
dóttur sína á Núpi. Ekki var heldur langt til Péturs á
Staðarhól, en þar hljóp ekki, fyrr en eftir hans dag, lít-
il Helga um hlaðið.
Svift fjárræði
Þórunn á Grund varð háöldruð, komst á níræðisaldur,
og gaf og gaf alla tíð, til skyldra og óskyldra, eins og
frænka hennar, erfingjunum til mikils ama. Þeir Jón
Brynjólfur Sveinsson biskup í Skálholti er þekktasta
barnabarn Staðarhóls-Páls og Helgu. Mynd sem talin er
vera af honum, prýðir 1000 kr seðlana.