Rit Mógilsár - 01.03.2004, Qupperneq 7

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Qupperneq 7
7 eðlisbreytingu á daglegu lífi fólks hvar sem er í heiminum. Mikilvægi hins hnattræna hagkerfis er undirstrikað og bent er á minnkandi vægi þjóðríkja sem gerenda og valdhafa í heiminum (Friedman, 1999). Tvískipting sem þessi er einfölduð útgáfa af veruleikanum og oftar en ekki skarast hugmyndir fræðifólks um hnattvæðingu. Hnattvæðing hefur ekki dottið af himnum ofan, hún á sér sögulegar og pólitískar rætur. Hins vegar erum við einnig að verða vitni að byltingakenndum og almennum breytingum á daglegu lífi, sérstaklega með tilkomu margs konar tækninýjunga. Mikið hefur verið skrifað um hugsanlegar afleiðingar og áhrif hnattvæðingar og oftar en ekki talið að hún leiði til vaxandi einsleitni. Þeirri skoðun hefur verið varpað fram að heimurinn sé að verða eins og þorp og það sé að verða til ein (vestræn) alheimsmenning (Toynbee, 2000). Robertson (1995) er einn þeirra sem hefur gagnrýnt áherslu á einsleitni. Að hans mati er varasamt að líta á hið hnattræna sem andstæðu hins staðbundna. Í stað þess vill Robertson undirstrika að hið hnattræna og hið staðbundna eru tvær hliðar á sama peningi. Staðbinding býr óumflýjanlega í hnattvæðingu sem er ávallt hluti af staðbundnu umhverfi fólks. Hann leggur því til að nota hugtakið hnattsvæðing (e. glocalization) til að lýsa ferlum hnattvæðingar á fínlegri hátt. Með því er lögð áhersla á að hnattvæðing á sér ekki stað fyrir utan og ofan staðbundið samhengi heldur er hún hluti af daglegu lífi. Fólk hvar sem er hnattsvæðir líf sitt á hverjum degi. Daglegt líf, hið pólitíska stjórnkerfi og hagkerfið sem fólk vinnur í er því allt á einhvern hátt markað hnattsvæðingu. Það sem liggur til grundvallar hnattsvæðingu er aukinn hreyfanleiki flestra þátta samfélagsins (sjá t.d. Bauman, 2001; Lash, 1994; Urry, 2000). Nútíminn er fljótandi, en flæðin sem hnattsvæðing felur í sér eru margleit og streyma í mismunandi áttir. Fólk gleypir ekki viðstöðulaust við þeim, heldur getur það verið gerendur og mótað veruleika sinn enn frekar en áður. Að vissu leyti færir hnattsvæðing fólki ný tækifæri en um leið þyngja þessi ferli byrðar einstaklinga. Ríkisvaldið er að draga sig í hlé á mörgum sviðum, vald hefur bæði runnið til yfirþjóðlegra stofnanna eins og Evrópusambandsins, Alþjóðaviðskiptamála- stofnunarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og til staðbundinna stofnanna eins og sveitastjórna og fyrirtækjahópa. Blómatími opinberrar íhlutunar og velferðarríkisins er liðinn og í staðinn er runninn upp tími einstaklingshyggju og einstaklingsvæðingar þar sem nýsköpun og sveigjanleiki í framleiðslu er lykilatriði (Bærenholdt og Aarsaether, 2001; Neil og Tykkyläinen, 1998)1. Einstaklingar eða einstök samfélög þurfa við þessar aðstæður í meiri mæli en áður að 1 Einkenni þessarar stefnubreytingar má finna í hinni nýju byggðastefnu stjórnvalda sem leggur höfuðáherslu á frumkvæði og framtak heimafólks (Byggðastofnun, 1999).

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.