Rit Mógilsár - 01.03.2004, Síða 10

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Síða 10
10 …summu raunverulegra eða mögulegra bjarga sem tengist eigu fólks á endingargóðu tengslaneti sem samanstendur af meira eða minna stofnanavæddum tengslum gagnkvæmra kennsla…(Bourdieu, 1986, bls. 248). Með öðrum orðum tengist félagslegur auður því að vera meðlimur í hóp og að geta nýtt sér tengslanet hópsins. Magn félagslegs auðs sem hver og einn hefur undir höndum byggir á því hversu víðfeðmt tengslanet hann/ hún getur virkjað og á magni þess auðs (hagræns, menningarlegs og táknræns) sem aðrir í tengslanetinu búa yfir. Félagslegur auður er þannig aldrei fullkomlega óháður öðrum gerðum auðs (Bourdieu, 1986). Félagslegur auður verður til í aðgerðum gerenda í tengslanetum þannig að um leið og fólk tekur til við að byggja upp og virkja félagsleg tengslanet verður til möguleiki á að skapa félagslegan auð. Félagsleg tengslanet eru ekki staðreyndir eða fyrirfram tilbúnar formgerðir sem hægt er að tengja sig við. Þau krefjast vinnu af hálfu fólks og margvíslegra „ fjármögnunaraðferða“. Það þarf með öðrum orðum að leggja tíma, peninga og aðrar gerðir auðs í félagsleg tengsl sem síðar er hægt að nota til að virkja félagslegan auð sem getur tryggt gróða (efnislegan eða táknrænan) (Bourdieu, 1986; Gunnar Þór Jóhannesson ofl., 2003). Rót félagslegs auðs er mjög skýr; hún liggur í félagslegum tengslum á milli einstaklinga. Afleiðingar hans geta verið margvíslegar, efnislegar eða táknrænar bjargir eða bætt aðgengi að netvíddum upplýsinga og þekkingar. Öll félagsleg tengsl veita möguleika á sköpun félagslegs auðs. Félagslegur auður verður hins vegar ekki til nema tengslin séu virkjuð í ákveðnu samhengi og það er þessi virkjun eða aðgerðir sem á endanum er auðurinn sjálfur. RANNSÓKNIN Rannsóknin byggir á etnógrafískum eða eigindlegum rannsóknaraðferðum4 (Hammersley og Atkinson, 1983; Taylor og Bogdan, 1998). Etnógrafískar rannsóknaraðferðir hafa frá upphafi verið ein megin rannsóknaraðferð mannfræðinnar (Fontana, 1994). Etnógrafísk rannsóknarhefð byggir á vettvangsaðferðum. Það þýðir að rannsakandinn fer á vettvang, til þeirra sem rannsóknin er um, dvelur hjá þeim um hríð, á í samskiptum við þá og deilir reynslu með þeim. Á þennan hátt öðlast rannsakandinn innsýn í þann veruleika sem ætlunin er að lýsa. Tvær megin aðferðir til vettvangsrannsókna eru opin viðtöl og þátttökuathuganir. Þátttökuathuganir byggja á því að rannsakandinn er einhvern tíma með fólki í umhverfi þeirra og öðlast innsýn í daglegt líf þess á vettvangi. Opin viðtöl líkjast frekar óformlegum samtölum en 4 Það er mjög misjafnt eftir höfundum hvernig hugtakið „etnógrafía“ er notað. Ég nota það hér til að vísa til eigindlegrar rannsóknarhefðar sem felur í sér mismunandi rannsóknaraðferðir.

x

Rit Mógilsár

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.