Rit Mógilsár - 01.03.2004, Síða 16

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Síða 16
16 hafa komið illa við marga bændur og sumir hafi hreinlega skammast sín fyrir að vera bændur. Reglukerfi landbúnaðarins var orðið svartur blettur á greininni og samfélagið krafðist yfirbótar af hálfu bændastéttarinnar. Yfirbót eða syndaaflausn í formi stórfellds niðurskurðar hefur haft margvísleg áhrif. Sumir hættu, en aðrir, kannski of margir, hafa haldið áfram búskap. Sauðfjárbúskapur er enn stundaður innan ramma fastmótaðs reglukerfis sem veitir sauðfjárbændum takmarkað svigrúm til að takast á við aðstæður sínar. Rekstrarumhverfið – atvinnugrein í hafti Búvörusamningurinn árið 1991 færði sauðfjárbændur nær hinum almenna matvörumarkaði (Guðmundur Stefánsson, 1998). Þessi samningur var endurskoðaður árið 1995 og svo aftur árið 2000 þar sem breytingar voru gerðar sem miðuðu að ná enn frekara jafnvægi í sauðfjárframleiðslu. Grundvallaratriði samningsins frá 1991 hafa þó haldist óbreytt, þ.e. kerfi beingreiðslna frá ríki til bænda. Beingreiðslur eru beinar styrkgreiðslur frá ríki til bænda. Þær byggjast á greiðslumarki sem er bundið lögbýlum. Greiðslumark í sauðfjárrækt er það framleiðslumagn sem ríkið hefur samþykkt að styrkja. Greiðslumark er þannig kvóti á stuðning ríkisins. Beingreiðslurnar hafa til skamms tíma ekki verið tengdar framleiðslu hvers bónda. Í síðasta samningi er kveðið á um að þeir framleiðendur sem ganga inn í svokallað gæðastýringarverkefni fái stighækkandi beingreiðslur á kostnað annarra framleiðenda með það fyrir augum að þeir sem framleiða besta kjötið fái umbun erfiðis síns. Engin takmörk eru á framleiðslumagni en magn beingreiðslnanna setur framleiðslunni skorður, þar sem það borgar sig sjaldnast að framleiða án þeirra. Enn er stundaður útflutningur og Örn (Bændasamtökunum) og Snorri (Landbúnaðarráðuneytinu) leggja báðir áherslu á betri árangur en á tímum útflutningsbóta, enda er magnið mun minna nú. Útflutningi er þannig háttað að á hverju ári er ákveðið útflutningshlutfall af heildarframleiðslunni. Haustið 2002 er það 25% sem þýðir að sauðfjárbændur fá greitt útflutningsverð fyrir fjórðung af framleiðslu sinni (Landbúnaðarráðuneytið, 2002). Það eru skiptar skoðanir um ágæti þessa kerfis meðal viðmælenda minna. Snorri talar um að þetta sé eftirgjöf á innanlandsmarkaði, aðrir benda á að það þurfi að efla markaðsstarf erlendis enn meira þó að einnig sé ljóst að greinin getur ekki staðið undir miklum útflutningi þar sem framleiðslugeta hennar er takmörkunum háð. Að mati viðmælenda minna hefur framleiðslukerfið verið mjög lokað síðustu ár. Bændur hafa átt mjög erfitt um vik að auka framleiðslu sína. Í samningnum árið 2000 var kveðið á um að ríkið keypti upp 45.000 tonna greiðslumark og að stefnt skyldi að frjálsri sölu greiðslumarks eftir

x

Rit Mógilsár

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.