Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 21

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 21
21 meiri en nú. Indriði Valdimarsson er bóndi á sextugsaldri og hefur stundað búskap í Fljótsdal síðan á áttunda áratugnum. Hann rifjar upp að um 1982 hafi bæir byrjað að fara í eyði. Hann segir ýmsar ástæður hafa legið þar að baki. Jarðir á svæðinu eru frekar litlar og þegar þrengdist að sauðfjárrækt varð erfiðara að framfleyta sér á lökustu jörðunum. Í þó nokkrum tilfellum var enginn til að taka við búskap á jörðum þegar eldri bændur létu af störfum og bújörðum fækkaði umtalsvert við síðustu kynslóðaskipti. Einn megin áhrifavaldur á sauðfjárbúskap í dalnum, ásamt versnandi markaðsaðstæðum, var hins vegar riðuveiki og óumflýjanlegur niðurskurður vegna hennar. Árið 1989 var gripið til þess ráðs að skera niður allt fé á milli Lagarfljóts og Jökulsár á Dal og hafði það mikil áhrif á landbúnað á svæðinu. Fólk lýsir þróuninni síðan 1980 sem neikvæðri, íbúum fækkar og grundvöllur fyrir búsetu á svæðinu veikist. Tekjur hafa dregist saman og fólk er þreytt á þeim mótbyr sem það hefur lent í. Sigríður Gunnarsdóttir lýsir búskapnum sem stöðugu „basli“ og Anna, bóndi á fimmtugsaldri, segir: Við erum búin að bíða hérna í 10 ár að það fari nú eitthvað að gerast og það fer alltaf frekar niður, alltaf minni tekjur. Þorsteinn Arnarsson, bóndi um fertugt, bendir á að algengt hafi verið að bændur „lógi niður“ og selji kvótann. Jörðin fer þá annaðhvort í eyði eða fólk býr áfram á þeim án þess að hafa fé og um leið fer starfandi sauðfjárbúum fækkandi. Þá þyngist vinnan fyrir þá sem eftir eru jafnvel þó þeir geti eitthvað stækkað við sig. Sameiginleg vinna eins og göngur og réttir verður erfiðari og eins eru takmörk fyrir því hvað fólk kemst yfir að hafa margt fé áður en þarf að kaupa utanaðkomandi vinnuafl. Staðan í dag Í viðtölum við bændafólk í Fljótsdal kom fram að það upplifir stöðu sína sem erfiða og jafnvel slæma. Fólk er hins vegar líka meðvitað um kosti þess að búa í dreifbýli og lítur ekki sérstaklega á sig sem fórnarlömb. Meginvandamál sauðfjárræktar í Fljótsdal er að búin skila ekki nægilegum tekjum. Á langflestum jörðum getur fólk ekki haft landbúnað sem lifibrauð. Ragnar, bóndi á sextugsaldri segir það vonlaust að lifa eingöngu af sauðfjárrækt nema þá að hafa stærri bú en nú eru í dalnum. Það eru þá helst eldri bændur sem eiga orðið byggingar og vélar skuldlausar og þurfa ekki að fjárfesta. Aðrir bændur

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.