Rit Mógilsár - 01.03.2004, Qupperneq 23

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Qupperneq 23
23 leyti legið niðri og lítil starfsemi er í búnaðarfélagi og fjárræktarfélagi svæðisins13. Fólk er einfaldlega komið með nóg á sína könnu vegna nauðsynlegra skyldustarfa. Erfiðleikar í sauðfjárrækt hafa verið nokkuð í almennri umræðu í þjóðfélaginu á undanförnum árum. Viðmælendur mínir töldu flestir að ímynd sauðfjárræktar og landbúnaðar hefði batnað allra síðustu ár en væri þó enn ekki nægilega góð. Indriði segir að neytendur líti bændur skárri augum nú en fyrir nokkrum árum og betri pólitísk sátt virðist vera um landbúnaðinn. Kristín segist stundum verða vör við það að fólk skilji ekki af hverju einhver hafi áhuga á að búa í sveit, langt frá næsta þéttbýli. Henni finnst oft hafa verið gert niðurlægjandi grín af bændum og þeim lífsstíl að búa í sveit. Hún og Jóhann taka þó undir það að ímynd bænda hafi breyst til batnaðar á síðustu árum. Þau benda á að bændur hafi nú betri tækifæri til að mennta sig og einnig séu margir að átta sig á því að hægt sé að búa í sveit án þess að hafa búskap. Nú sé allskonar fólk að sækjast eftir kostum sveitalífsins. Í viðtölum við bændur kom fram að breytingar og aðstæður í sauðfjárrækt hafa tekið á fólk. Það er erfitt að „basla“ og halda reisn sinni óskertri. Stundum má finna fyrir vanmáttarkennd gagnvart því reglukerfi sem smíðað hefur verið utan um atvinnugreinina. Sumir upplifa sig sem þolendur og valdalausa gagnvart kerfinu. Indriði segir að það sé nokkuð um það að bændur séu bitrir, bæði gagnvart reglukerfi stjórnvalda og þeim aðstæðum sem þeir upplifa sig í. Hann segir að þetta eigi sérstaklega við fólk sem kemur inní búskap fullt áhuga en lendir í basli vegna rekstrarerfiðleika. Baslið „smækkar“ fólk og það sé napur raunveruleiki að svo erfitt sé fyrir ungt fólk að koma inn í greinina. Á sama tíma eiga aðrir í erfiðleikum með að hætta. Ragnar og Anna segjast t.d. ekki hafa efni á því að flytja þó þau vildu. Þau myndu ekki fá neitt að ráði fyrir jörðina og húsin, ef til vill nóg til að leigja litla íbúð í Reykjavík. Sauðfjárbúskapur og búseta í sveit hefur þó sína kosti. Út frá orðum viðmælenda minna er erfitt að halda því fram að þau séu bundin einhverskonar átthagafjötrum heldur vilja þau búa á svæðinu og eru tilbúin til að leggja töluvert á sig til að svo megi verða. Kristinn lýsir því ágætlega hvað hann sér við það að búa í sveit með sauðfé: Ég held að það sé ekkert verra að vera hérna en að vera í svona bara einhverri vinnu utan bús... bara á lægsta kaupi. Maður er frjáls, maður er svona sinn herra og getur svona hagað sér dáldið eftir því… en auðvitað þarf maður að halda vel á spöðunum. 13 Kristín segir að kannski sé ekki lengur mórall fyrir „hefðbundum“ félagsskap eins og kvenfélögin hafa orð á sér fyrir að vera en saknar þess að ekki sé meiri grundvöllur fyrir félagsstarfi íbúa á svæðinu.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.