Rit Mógilsár - 01.03.2004, Qupperneq 24

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Qupperneq 24
24 Þó að hér hafi verið dregin upp nokkurs konar kyrralífsmynd af hagrænum og samfélagslegum aðstæðum fólks í Fljótsdal situr fólk ekki með hendur í skauti. Það tekst á við aðstæður sínar og breytingar sem gerendur á margvíslegan hátt. Hér á eftir er fjallað um nokkrar þeirra aðferða sem fólk nýtir til að geta búið þar sem það vill. Bjargráðin stór og smá Fólk í Fljótsdal beitir ýmsum aðferðum til að takast á við aðstæður sínar. Langflestir vinna eitthvað utan heimilis og eru oft og tíðum í mörgum störfum. Störf fólks eru margvísleg, sumir sækja vinnu til Egilsstaða eða Hallormsstaðarskóla, aðrir sinna tímabundnum störfum við slátrun, rúning, smalamennsku, vegavinnu, skógarhögg og girðingarviðhald auk skógræktar á vegum Héraðsskóga. Einnig er nokkuð algengt að fólk hafi skapað sér aukatekjur á jörðum sínum, t.d. með ferðaþjónustu, aukabúgreinum og þróun í sauðfjárrækt. Það er algengt að heimilistekjur fólks komi úr ýmsum áttum. Aðspurður hvernig gangi að samþætta mörg störf segir Þorsteinn: Það er bara að láta allt draslast (bros). Það gengur náttúrlega ekki nógu vel í rauninni því að það bitnar alltaf á einhverju sko. Indriði tekur í sama streng og segir að of mörg aukastörf séu óásættanleg við sauðfjárbúskapinn. Það er yfirleitt hann sem rekur þá á reiðanum og að auki er mikið vinnuálag á fólki sem sé slítandi til lengdar. Þeim og fleirum þykir þetta ástand óskemmtilegt og vildu gjarnan hafa rýmri tíma og fjárráð til að leggja meiri metnað í búskapinn og sinna honum sem skyldi. Ferðaþjónusta er ofarlega í hugum margra þegar rætt er um framtíðarmöguleika á svæðinu. Hjón á tveimur bæjum hafa farið út í ferðaþjónustu sem aukabúgrein. Annars vegar er um að ræða bændagistingu og hins vegar skipulegar hestaferðir upp á hálendið norðan Vatnajökuls. Bændagistingin er framtak hjóna á sextugsaldri sem tóku við jörð og húsum þar í niðurníðslu og endurbyggðu hlöðu og innréttuðu hana sem tvær íbúðir til útleigu. Íbúðirnar eru nú bókaðar meirihlutann af árinu og að sögn þeirra eru þær sérlega vinsælar af veiðifólki. Auk þess hafa þau komið sér upp aðstöðu við bakka Lagarfljóts til þess að taka á móti Lagarfljótsorminum, ferju sem flytur ferðafólk í útsýnisferðir upp Löginn til og frá Egilsstöðum. Þessi starfsemi gefur þeim mikilvægar aukatekjur en jafnframt vinna þau bæði aðra vinnu meðfram. Í upphafi tóku fjórir aðilar sig saman og hófu hestaferðirnar. Nú eru aðeins ein hjón eftir og eru þau í samstarfi ferðaþjónustufyrirtæki á

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.