Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 27

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 27
27 Austurlands lögðu fram um eflingu skógræktar á Fljótsdalshéraði. Þar með fór málið í ákveðinn farveg í stjórnkerfinu. Árið 1989 samþykkti þáverandi ríkisstjórn að „klæða skyldi skógi allt nýtanlegt skógræktarland á Fljótsdalshéraði á næstu 40 árum“ (Héraðsskógar, 1995, bls. 14), og lagði fram fé til undirbúningsstarfs. Málið var kynnt bændum á Upphéraði og á sama tíma var verkefnið mótað. Verkefninu var úthlutað 15 milljónum á fjárlögum 1990, aðeins fjórðungi af því sem óskað hafði verið eftir. Skipulagning og undirbúningur hélt þó áfram og gerð var 40 ára kostnaðar- og framkvæmdaáætlun sem náði til 15 þúsund hektara lands. Drög að lögum og samningum við bændur voru einnig samin (Héraðsskógar, 1995). Allt að 90 landeigendur voru tilbúnir til að hefja þátttöku í verkefninu á þessum tíma. Verkefnið fékk 10 milljóna framlag á fjáraukalögum 1990 og hófust þá framkvæmdir, gróðursetning og girðingarvinna. Þrátt fyrir það dróst að leggja frumvarp til laga um verkefnið fyrir Alþingi til samþykktar. Það var loks gert vorið 1991 og voru lögin samþykkt á Alþingi þann 11. mars 1991 (Alþingi, 1991). Fyrstu ár Héraðsskóga náði verkefnið til Upphéraðs, eða svæðisins suður af Eiðum. Undir lok tíunda áratugarins var ákveðið að víkka verkefnið út yfir allt Fljótsdalshérað. Verkefnið er framkvæmt þannig að bændur eða landeigendur gera samning við Héraðsskóga um skógrækt á jörðum sínum. Þeir fá greidd 97% af kostnaði sem af skógræktinni hlýst og þegar úrvinnsla fer að skila arði greiða þátttakendur hluta af honum til baka til ríkisins. Árið 2001 voru 104 landeigendur á Fljótsdalshéraði samningsbundnir Héraðsskógum og þar af voru 21 jörð í Fljótsdal. Það ár fékk verkefnið rúmar 86 milljónir á fjárlögum til að standa straum af starfseminni (Héraðsskógar, 2001a). Tilgangur og markmið Héraðsskóga koma fram í lögum um verkefnið. Í fyrstu grein laganna segir: Tilgangur laga þessara er að stuðla að ræktun nytjaskóga á Fljótsdalshéraði og umhirðu þess skóglendis sem þar er fyrir og treysta með því byggð og efla atvinnulíf á Héraði. Héraðsskógar merkja í lögum þessum sjálfstætt skógræktarverkefni um ræktun nytjaskóga á jörðum á Fljótsdalshéraði samkvæmt sérstakri áætlun (Alþingi, 1991). Meginmarkmið Héraðsskóga er: ...með ræktun nytjaskóga að stuðla að þróun og viðhaldi byggðar á Fljótsdalshéraði. Þannig er verkefnið bæði byggða- og skógræktarverkefni. Skógana skal rækta í

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.