Rit Mógilsár - 01.03.2004, Síða 29

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Síða 29
29 að leita sér að einhverju nýju til að taka sér fyrir hendur til að nýta landið og í rauninni til að hafa að einhverju að hverfa þar sem ekki mátti taka fé aftur í tvö til þrjú ár eftir riðuniðurskurð. Hann nefnir stofnun Félags skógarbænda og segir að þeir hafi þrýst á um skógræktarverkefni. Aðspurður sagði Sigurður að það mætti segja að bændur hefðu alfarið átt frumkvæði að Héraðsskógaverkefninu, en þó ásamt Skógrækt ríkisins. Þessir aðilar drógu verkefnið í gang, en embættismenn og sérfræðingar voru til aðstoðar. VIÐTÖKUR OG ÞRÓUN Héraðsskógaverkefninu virðist hafa verið tekið vel á sínum tíma. Að vissu leyti má segja að jarðvegurinn fyrir skógrækt hafi verið plægður með framkvæmd Fljótsdalsáætlunar. Viðtökur og þróun skógræktar á Héraði gekk þó ekki snurðulaust fyrir sig. Ákveðin átök og/eða tregða hafa komið í ljós bæði í sambandi við stofnun og þróun skógræktarstarfsins. Á þeim tíma sem Fljótsdalsáætlun var að komast á laggirnar skiptist fólk í tvær fylkingar. Það var sauðfjárræktarfólk og skógræktarfólk. Páll lýsir umræðunni í samfélaginu á þessum tíma: Þá voru bara stríð á milli búgreina sko, það var bara talað um skógrækt og sauðfjárrækt sem andstæður og þegar að forystan talar svona máli þá munu náttúrlega þeir sem eru í grasrótinni líka trúa því að þetta sé svona. Indriði tekur í sama streng þegar hann rifjar viðtökur Fljótsdalsáætlunar upp. Hann segir að það hafi ekki verið mikill meðbyr þegar farið var af stað með það verkefni. Það tengdist sérstaklega því að bændur máttu hreinlega ekki missa land undir skógrækt á þeim tíma. Þá var búið á hverjum bæ og sauðfé var miklu fleira á svæðinu. Jafnframt nefnir hann að mikilvægt atriði hafi verið að Skógrækt ríkisins hafi ekki samþykkt neina beit í skógi, land sem var lagt í skógrækt var lokað um aldur og ævi og það var eitthvað sem margir bændur gátu ekki sætt sig við. Þrátt fyrir þessa vankanta á Fljótsdalsáætlun nefndu flestir viðmælendur mínir sögu skógræktar á svæðinu og náttúrufar sem helstu ástæður fyrir því að fólk tók vel í að hefja skógrækt á jörðum sínum þegar Héraðsskógaverkefnið fór af stað. Þorsteinn segir t.d.: Menn [eru] búnir að sjá það að það er vel hægt að rækta skóg á þessu svæði og búið að vera náttúrlega á Hallormsstað heilmikil svona skógarvinnsla og þannig að, margir hérna af íbúum hér sem hafa verið tímabundið í skógræktinni og þekkja heilmikið til skógræktar.

x

Rit Mógilsár

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.