Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 33

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 33
33 framkvæma þeir sjálfir, verkefnið vinnur til þess að styrkja innviði hvers bús um sig til þess að hvetja menn til dáða... Héraðsskógar er í raun og veru samheiti þeirra landeigenda sem eru í því... frumkvæðið er þeirra, það er það sem gildir. Annað atriði sem hafði áhrif á það að fólk tók vel í verkefnið var að skógrækt var stillt upp sem nýrri aukabúgrein. Þannig var reynt að komast hjá því að stilla skógrækt upp sem andstæðu við sauðfjárrækt. Sigurður sagði að það hefði tekið smá tíma fyrir bændur að sjá að það væri engin fyrirstaða að stunda skógrækt og sauðfjárrækt saman. Aðspurður sagði hann að í fyrstu hefðu menn kannski ekki verið tilbúnir að prófa, þeir hafi ekki skilið hvernig í ósköpunum þetta ætti að ganga. Sigurður sagði að þau hefðu hvatt bændur til að beita sauðfé í skóga sem voru fyrir á jörðum þeirra og árangurinn lét ekki á sér standa. Indriði segir að afstaða stjórnenda Héraðsskóga hafi skipt miklu um breytt viðhorf bænda til skógræktar. Hann segir það „ekkert mál“ að fella skógrækt að öðrum búskap. Einungis þurfi að skipuleggja jörðina, ákveða að taka ákveðna spildu undir skógrækt, planta í hana og svo eftir ákveðinn tíma, þegar plönturnar eru búnar að ná ákveðinni hæð, þá sé tilvalið að byrja að beita í skóginn. Ragnar og Anna tóku undir þetta og sögðu að það væri hreinlega til bóta að beita í skóga, mosamyndun yrði ekki eins mikil og eins hentaði það skepnunum. Fólk er hætt að líta á skógrækt og sauðfjárrækt sem andstæðar búgreinar og í stað þess eru þær stundaðar samhliða. Páll segir að sprenging hafi orðið í skógræktaráhuga á svæðinu og raunar landinu öllu síðan verkefnið fór af stað. Árið 1988 var fyrsta félag skógarbænda stofnað og þá voru um hundrað manns þátttakendur. Tíu árum síðar voru landssamtök skógarbænda stofnuð og nú eru um fimmhundruð manns félagar að skógarbændafélögum um allt land. Skógrækt sem raunveruleg atvinnugrein til sveita er því að öllum líkindum komin til að vera. Þátttakendur í verkefninu sem ég talaði við voru sammála um að verkefnið gengi vel. Það kom hins vegar fram ákveðinn óróleiki varðandi framgang úrvinnslu og markaðssetningar á skógarafurðum. Sumum bændum fannst að markaðssetning á skógarafurðum hefði gengið of hægt og það væri veikur hlekkur í verkefninu. Enn sem komið er hafa aðallega verið framleiddir girðingastaurar úr því efni sem til fellur við grisjanir. Einstaklingar hafa þó byrjað að gera tilraunir með að búa til parkett og húsgögn úr viðnum. Starfsfólk Héraðsskóga tók að nokkru leyti undir með bændum og sagði að nauðsynlegt væri að fara að huga að úrvinnslu og markaðssetningu skógarafurða. Þau höfðu samt litlar áhyggjur af þessum þætti verkefnisins enn sem komið

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.