Fréttablaðið - 24.04.2021, Qupperneq 10
SPÁNN Spánverjinn Alberto Sánch
ez Gomez er nú fyrir rétti en hann
er sakaður um að hafa myrt, bútað
niður og borðað móður sína árið
2019. Þetta er haft eftir fjölmiðlum
á Spáni.
Alberto hefur sjálfur játað að
hafa myrt móður sína, Mariu Sol
edad Gomez, í íbúð þeirra í Ventas
hverfinu í Madríd og síðar bútað
hana niður.
Lögreglumenn lýstu í réttarsal
aðkomunni að íbúð móðurinnar
þegar uppvíst varð um glæpinn.
Alberto tók þá á móti þeim og sagði
að móðir hans væri látin.
Þegar inn var komið fundust lík
amsleifar Mariu á víð og dreif um
íbúðina. Þær voru sumar vafðar í
plast, höfðu verið settar í ísskáp eða
lágu matreiddar í pottum og ofni í
eldhúsinu. Höfuð Mariu og hendur
fundust í svefnherberginu ásamt
hjarta hennar sem lá í íláti ásamt
gaffli.
Alberto, sem hefur fengið viður
nefnið „mannætan í Ventas“ hefur
játað að hafa eldað hluta af líkams
leifunum, gefið fjölskylduhund
inum hluta þeirra og sjálfur borðað
aðra hluta hráa. Öðrum leifum
henti hann í ruslið.
Lögreglumenn segja að Gomez
hafi verið mjög rólegur þegar þá bar
að garði. Hann hafi talað um málið
líkt og um hversdagslegan hlut væri
að ræða en þó lýst yfir áhyggjum af
því hvernig hundur hans hefði það.
Að sögn Alberto greip hann þó
aðeins til þessara ráða til að losa sig
við líkið og verksummerkin. Hann
sagðist ekki sjá eftir neinu þar sem
móðir hans hefði „gert lífið óbæri
legt“.
Í réttarhöldunum sagðist Alberto
hafa heyrt raddir sem sögðu honum
að drepa móður sína. Hann hefði
búið á götunni eftir að Maria fékk
sett nálgunarbann á hann.
Verði Alberto fundinn sekur
bíður hans f immtán ára fang
elsisdómur fyrir morðið á Mariu og
fimm mánuðir að auki fyrir að hafa
svívirt lík hennar.
arnartomas@frettabladid.is
Játaði að hafa myrt og
borðað mömmu sína
Réttarhöld yfir hinum 28 ára Alberto Sanches Gomes standa nú yfir á Spáni.
Hefur játað að hafa myrt móður sína og borðað hluta hennar. Alberto segir
mannátið reyndar einungis hafa verið til að losna við líkið og verksummerki.
Alberto játaði að hafa myrt móður sína í íbúð hennar í Ventas-hverfi Madríd-borgar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Höfuð Mariu Soledad
Gomes og hendur fundust í
svefnherberginu ásamt
hjarta hennar sem lá í íláti
ásamt gaffli.
Rafrænn aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn mánudaginn 10. maí
kl. 17:00. Skráning er nauðsynleg og fer hún fram á heimasíðu félagsins.
Dagskrá fundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Óskað er eftir framboðum til formanns, stjórnar og nefnda.
Framboð skal tilkynna til skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir sem eru skráðir í félagið eigi síðar en viku
fyrir fundinn og hafa greitt árgjald til félagsins.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins www.msfelag.is.
Við hvetjum félagsmenn um land allt til að taka þátt.
Virðingarfyllst, Stjórn MS-félags Íslands
FUNDARBOÐ
Aðalfundur MS-félags Íslands
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Styrkir úr
Tónlistarsjóði
Umsóknarfrestur til 3. maí
Tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum til verkefna sem
framkvæmd verða á tímabilinu: 1. júlí – 31. desember 2021.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að
kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.
Umsóknarfrestur rennur út 3. maí 2021 kl. 15.00*.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.
Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember.
Rannís,
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími: 515 5800
tonlistarsjodur@rannis.is.
*Ath. breyttan lokunartíma sjóðs.
INDLAND Um 332 þúsund greindust
smituð af COVID19 á Indlandi í
gær og 2.263 dauðsföll voru skráð
af völdum veirunnar.
Það er mesti daglegi fjöldi tilfella
og dauðsfalla af völdum veirunnar
þar í landi síðan faraldurinn hófst.
Alls hafa 16 milljónir greinst með
veiruna á Indlandi og 187 þúsund
látist af völdum hennar.
Heilbrigðiskerfið í landinu er
að þrotum komið og fjöldi spítala
annar ekki eftirspurn eftir sjúkra
r ýmum eða súrefnisbirgðum.
Hæstiréttur Indlands hefur sagt að
neyðarástand ríki í landinu.
Sjúkrahús í Delí vöruðu í gær við
því að súrefnisbirgðir þeirra væru
senn á þrotum og biðluðu til stjórn
valda um aðstoð. Fjöldi fólks hafði
þá lýst yfir að vandamenn þess
þörfnuðust bráðrar aðstoðar.
Súrefnisgeymar hafa verið sendir
með lestum í massavís til þeirra
svæða sem verst eru stödd til að
reyna að létta á ástandinu. Skort
urinn er svo mikill að á sumum
stöðum hefur vopnað gæslulið verið
sent með til að gæta birgðanna þar
sem borið hefur á þjófnaði á geym
unum.
Margir hafa tekið upp á því að
f lýja stórborgirnar til að sækjast
eftir sjúkraaðstoð í dreif býlinu, en
læknar þar segjast hvorki eiga rými
né birgðir til að taka á móti f leiri
smituðum.
Þá hafa líkbrennslustöðvar skipu
lagt fjöldabrennslur sökum gríðar
legs fjölda látinna. – atv
Bágt ástand fer versnandi á Indlandi
Fjöldabrennslur tíðkast nú vegna fjölda látinna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Alls hafa 16 milljónir
greinst með veiruna á
Indlandi og 187 þúsund
látist af völdum hennar.
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð