Fréttablaðið - 24.04.2021, Side 12

Fréttablaðið - 24.04.2021, Side 12
Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Staðan á vinnumark- aði er því tifandi tíma- sprengja. Ég öfunda æskuna sem nú er að komast til manns. Að velja sér sjálf í dag er eins og að panta sér kaffi á Starbucks. Þú mátt vera hvað sem er. Ég ætla að fá einn latte „grande“, með auka skoti, möndlumjólk, agavesírópi og súkkulaðispónum. Sjálf er ég af kyn- slóð sem er svo einkennalaus að hún fékk ekki nafn fyrr en á síðasta ári þegar orðinu „xennial“ var bætt við ensku Oxford-orðabókina. Líkt og nafnið sem okkur var gefið einkennist tilvist okkar af því sem við erum ekki. Við erum ekki alveg „millennials“ því þótt við kaupum avókadó í Krónunni og pöntum kraftbjór á barnum langar okkur innst inni heldur til að smyrja rækjusalati á súrdeigsbrauðið okkar og drekka Fosters úr dós uppi í sófa yfir línulegri dagskrá. Við erum ekki heldur X-kynslóðin af því að: a) Það er okkur jafnhulin ráðgáta hvar við vorum stödd þegar Olaf Palme var myrtur og „hver drap Lauru Palmer“; og b) Þótt Greta Thunberg fari nett í taugarnar á okkur böggar Brynjar Níelsson okkur meira. Ég hef ekki hugmynd um hver ég er. Rétt eins og líf margra þeirra sem fædd eru undir lok 8. áratugar- ins og við upphaf þess 9. – fólks sem fór í gegnum mótunarárin í of stórum flónelskyrtum úr Vinnufata- búðinni með lyklakippu með mynd af Kurt Cobain í símalausum vasanum og vasadiskó í Jansport-bak- pokanum sem spilaði stanslaust lög um tilgangsleysi alls ef batteríin hefðu ekki alltaf verið að klárast – hefur líf mitt verið ein stór póst-módernísk tilvistar- kreppa. En þótt ég viti ekki hver ég er veit ég eitt: Ég kýs að skilgreina mig sem kapítalista. Sem slíkur hef ég lesið hugfangin nýleg viðtöl við mæta menn úr atvinnulíf- inu. Í einu slíku gagnrýndi fráfarandi framkvæmda- stjóri Domino’s á Íslandi launahækkanir síðustu kjarasamninga og sagði sligandi launakostnað valda því að æ fleiri fyrirtæki í veitingarekstri þyrftu að borga laun svart. Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins, tók í sama streng í vikunni og sakaði verkalýðsforystuna um að „hafna efnahagslegum veruleika“ í kjaraviðræðum en slíkt væri „eins og að hafna þyngdarlögmálinu“. Ég fann til samúðar með mínum mönnum. En svo fór krónísk tilvistarkreppan að segja til sín. Er raun- verulega ekki hægt að halda efnahagslífinu gangandi öðruvísi en að starfsfólk pítsustaða niðurgreiði tvennutilboðið mitt með launakjörum sínum? Við lifum á tímum flæðandi fjölbreytileika þar sem þú ert ekki – eins og þegar ég var ung – það sem þú borðar heldur það sem þú segist vera. En er ekki fulllangt gengið að atvinnurekendur skilgreini lögbrot sem rekstrarúrræði? Og sama hvað hagfræðingar reyna að skilgreina sig sem raunvísindafólk verður hagfræði alltaf félagsvísindi. Við ráðum hvort við aðhyllumst Keynes eða Hayek en ef við ákveðum að slaufa New- ton af því að hann var skíthæll í lifanda lífi mun eplið ekki svífa upp á við. Gamaldags tvíhyggja Hinn 5. janúar árið 1914 tvöfaldaði Ford-bílaverk- smiðjan laun starfsfólks síns. „Það er trú okkar að jöfnuður byrji heima fyrir,“ sagði gjaldkeri fyrirtækis- ins. Dagblaðið „The Wall Street Journal“ fordæmdi uppátækið og sakaði Ford um að „beita lögmálum Biblíunnar þar sem þau ættu ekki við“, og „gera efna- hagslegt glappaskot sem jaðraði við glæp“. Á tveimur árum tvöfaldaði Ford hagnað sinn. Sjálfið hleypir nú hömum. Við þurfum ekki einu sinni að vera annað hvort eða; við getum verið kyn- segin. Samfélag okkar er hins vegar enn fast í gamal- dags tvíhyggju, trú á að velsæld verkamannsins geti aðeins verið á kostnað kapítalistans. En við þurfum ekki að móta samfélagið eftir gömlum kennslubókum í hagfræði. Þótt við hættum því myndi þyngdar- lögmálið ekki gefa sig og við svífa bjargarlaus upp í himinhvolfin með fokdýra pítsusneið í höndunum. Sama hvað Þorsteinn Víglundsson segir. Tvennutilboð í himinhvolfunum Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Getum útvegað eftirfarandi Hobby hjólhýsi beint frá Þýskalandi. • Excellent 620 CL • Excellent 650 UMFe • Excellent 540 WLU Hjólhýsi.com Nánari upplýsingar: Kriben@simnet.is - Sími: 8634449 Það eru að verða þáttaskil. Faraldurinn, sem hefur lamað allt samfélagið í meira en ár, er senn að baki og fram undan er tími efna-hagslegrar endurreisnar. Mótvægisaðgerðir stjórnvalda hafa heilt yfir heppnast vel – beinn stuðningur í gegnum ríkisfjármálin hefur numið 10 prósentum af landsframleiðslu – og dregið mjög úr áhrifum áfallsins, bæði fyrir heimilin og atvinnulífið, og þannig komið í veg fyrir hrinu gjald- þrota. Til marks um það hefur vanskilahlutfall fyrir- tækjalána hjá bönkunum nánast staðið í stað frá því í árslok 2019. Vegna vægis ferðaþjónustunnar mælist atvinnuleysið hins vegar enn um 11 prósent en það ætti að minnka hratt þegar atvinnugreinin nær vopnum sínum á ný síðar á árinu. Nýtt álit frá AGS í vikunni undirstrikar þann árangur sem náðst hefur en bendir um leið á hvað betur megi fara nú þegar við sjáum fram úr kófinu. Sterk staða þjóðarbúsins og ríkissjóðs, eftir að hafa nýtt góðu árin í að greiða niður skuldir, gerði okkur kleift að halda stórum hluta hagkerfisins í gjörgæslu á meðan far- aldurinn hefur staðið yfir en núna þarf að fara að skipta um takt. Í stað þess að áherslurnar séu á neyðaraðstoð til fyrirtækja og heimila, sem þær hafa réttilega verið, fer að verða mikilvægara að einblína á almennari aðgerðir sem miða að því að efla samkeppnishæfni og skapa ný störf. Eigi það að takast þarf að horfa til þess, að mati AGS, að endurskoða vinnumarkaðslíkanið í því skyni að tengja betur saman launaþróun og framleiðni. Þar er mikið verk fyrir höndum. Sögulega séð hefur Íslendingum ekki farnast að fara að fordæmi annarra þjóða á Norðurlöndunum og semja um launahækkanir sem taka mið af verðmætasköpun hagkerfisins. Niðurstaðan af því er að á síðustu tveimur áratugum hafa launahækkanir hér verið um þrefalt meiri en á hinum Norðurlöndunum, verðbólga fjór- falt meiri og vaxtastig fimmfalt hærra. Margt gefur til kynna að við ætlum enn að fylgja þessari leið. Launa- vísitalan hefur hækkað um ellefu prósent milli ára og verðbólga fer vaxandi og mælist yfir fjögur prósent. Hækkandi launakostnaður skiptir þar miklu, og mun hafa enn meiri áhrif á verðlagsþróunina – og þá um leið vexti – á komandi misserum. Vandinn er sá, eins og Þor- steinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, nefndi í viðtali við Markaðinn í vikunni, að hin nýja forysta verkalýðshreyfingarinnar hafnar efnahagslegum veruleika. Staðan á vinnumark- aði er því tifandi tímasprengja. Skiptir alþjóðleg samkeppnishæfni Íslendinga máli? Stundum mætti ætla að svo væri ekki, einkum nú á tímum farsóttar þegar búið er að telja mörgum trú um að þjóðin geti vel við unað í lokuðu hagkerfi – og eina sem þurfi að ákveða sé ráðstöfun gæðanna. Staðreyndin er sú að þótt Ísland sé eyríki þá eigum við – fyrirtækin sem hér starfa og skapa verðmætasköpun- ina – í harðri samkeppni um vinnuafl og fjármagn og því getum við tæpast markað okkar eigin launastefnu óháð öðrum nágrannaþjóðum án afleiðinga. Umbætur á þessu sviði eru forsenda meiri fjölbreytni í hagkerfinu með nýjum gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum. Skipt um takt  2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R12 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.