Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Aðeins 187.920 kr. Rafdrifinn 3ja sæta leðursófi með niðurfellanlegu borði í miðsæti. Fáanlegur í Svörtu og gráu leðri. Særð: 198 x 95 x 98 cm Fullt verð: 234.900 kr. AUSTIN rafdrifinn sjónvarpssófi Aðeins 111.920 kr. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði LICATA tungusófi Glæsilegur tungusófi í Licata línunni. Fæst hægri eða vinstri (tunga ófæranlegt). Koníakslitt Kentucky áklæði á mynd en fleiri áklæðisgerðir og litir fáanlegir. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 262 x 226 x 82 cm. Fullt verð: 244.900 kr. www.dorma.is VEFVERSLUN ALLTAF OPIN KOLDING hægindastóll með skemli Stillanlegur hægindastóll með skemli. Svart, rautt eða grátt leður/PVC. Fullt verð: 139.900 kr. 20% AFSLÁTTUR VIKU TILBOÐ Aðeins 195.920 kr. 20% AFSLÁTTUR VIKU TILBOÐ 20% AFSLÁTTUR VIKU TILBOÐ VIKU- TILBOÐ LÝKUR Í DAG – 5. M AÍ Við erum búnir að upp­lifa mikil viðbrögð úr alls konar áttum sem við áttum ekki endi­lega von á – sem er frábært,“ segir Óskar Logi Ágústsson, forsprakki Vin­ tage Caravan, en bandið gaf út sína fimmtu breiðskífu fyrir skömmu, Monuments. Platan hefur verið að fá glimrandi dóma, rauk upp vin­ sældalistann í Tékklandi og í Þýska­ landi hefur fólk hrifist af plötunni, sem rauk í 21. sæti yfir mest seldu plötur Þýskalands fyrstu vikuna. Þá hafa viðbrögðin verið góð hér á landi en platan var plata vik­ unnar á Rás 2. Þá sat lagið Whisp­ ers á toppi lagalista X­ins. „Okkur langar að fara um Ísland í sumar. Draumurinn er að taka tvær vikur um landið. Spila úti um allt og ég veit ekki hvernig hægt er að plana það, en það væri gaman að taka sumartúr.“ Þungarokkarar í hverju plássi Skálmöld og Dimma hafa báðar farið um landið og í hverju plássi leynast þungarokkarar. „Það er langt síðan allir fóru á tónleika að dansa og ég get ekki ímyndað mér annað en að fólk þyrsti í að fara að dilla sér við ljúfa rokktóna,“ segir Logi og hlær. Hann bendir þó á að það sé auð­ vitað svolítið skrýtið að gefa út plötu og geta ekki fylgt henni eftir á hefðbundinn hátt. Það verði að bíða betri tíma. „Með mætti tækn­ innar er hægt að ná til fólks og eitt af því jákvæðasta núna er að það er fullt af fólki að hlusta á okkur sem er bara heima og er að leita að nýrri tónlist. Mögnuð viðbrögð Viðbrögðin hér heima hafa verið mögnuð. Við höfum komist á lista hjá RÚV sem var ekkert endilega málið í gamla daga. Við vorum með plötu vikunnar á Rás 2 sem er frá­ bært og í rauninni er íslenski mark­ aðurinn að koma skemmtilega inn. Evrópumarkaðurinn er líka stór og viðbrögðin meiri og kannski stærri sem er samt skemmtilegt,“ segir Óskar. Monuments var tekin upp í Hljóðrita í Hafnarfirði í febrúar og mars á síðasta ári. Þótt margir haldi að hún snúist um COVID gerir hún það alls ekki. „Við vorum ekkert að pæla í COVID þegar við vorum að taka upp. Textarnir eru margir persónulegir og fjalla að vissu leyti um einangrun, en við erum ekki að syngja um COVID þótt það megi eflaust túlka plötuna þannig.“ Platan er um klukkutími að lengd og er sú fjölbreyttasta sem dreng­ irnir hafa gefið út. „Lögin fóru í þá átt sem við leyfðum þeim að fara. Sum lög vildu vera stutt og poppuð en önnur löng og f lókin. Okkur fannst lagaröðunin skapa skemmti­ legt ferðalag.“ Þrátt fyrir skrýtið ástand í Evr­ ópu er hljómsveitin að plana ferða­ lag um álfuna á næsta ári. „Ég veit ekki hversu mikil bjartsýni það er. Þetta verður gert í einum rykk og verður áhugavert. Eins og staðan er eru þetta 250­500 manna staðir og ég vona að allt gangi upp.“ benediktboas@frettabladid.is COVID-platan er alls ekkert um COVID Fimmta breiðskífa Vintage Caravan hefur fengið glimrandi dóma víða um Evrópu. Óskar Logi Ágústsson, forsprakki hljómsveitar- innar, segir bandið heldur aldrei hafa fengið jafn góða dóma á Ís- landi. Platan var tekin upp fyrir COVID-faraldurinn og fjallar ekk- ert um hann þótt marga textana megi túlka á þann veg. Plötur Vintage Caravan The Vintage Caravan (2011) Voyage (2014) Arrival (2015) Gateways (2018) Monuments (2021) SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Fáðu blað dagsins sent rafrænt ÞAÐ ER LANGT SÍÐAN ALLIR FÓRU Á TÓN- LEIKA AÐ DANSA OG ÉG GET EKKI ÍMYNDAÐ MÉR ANNAÐ EN AÐ FÓLK ÞYRSTI Í AÐ FARA AÐ DILLA SÉR VIÐ LJÚFA ROKK- TÓNA. Óskar Logi Ágústsson Platan hefur fengið betri viðtökur á Íslandi en strákarnir bjuggust við. Monuments er fimmta breiðskífa Vintage Caravan og þar sem hún var tekin upp áður en COVID-faraldurinn skall á hverfast textarnir alls ekki um pláguna þótt margir þeirra bjóði upp á slíkar túlkanir. MYNDIR/HORDUR SVEINSSON 5 . M A Í 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.