Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 18
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Fjarskipta- fjölmiðlunar-fyrirtækið Sýn undirbýr frekari sölu á fjarskipta-innviðum á þessu ári að sögn Heiðars Guðjóns-sonar, forstjóra Sýnar.
Hann segir Ríkisútvarpið hafið yfir
lög og reglur og furðar sig á því að
stjórnvöld hafi ekki átt frumkvæði
að því að jafna stöðu íslenskra fjöl-
miðla og samfélagsmiðla. Styrkja-
kerfi fyrir fjölmiðla lini einungis
þjáningar en bjargi engu.
„Við getum selt eignir fyrir marga
milljarða á þessu ári,“ segir Heiðar í
samtali við Markaðinn.
Sýn hefur náð samkomulagi við
erlenda fjárfesta um sölu og endur-
leigu á óvirkum farsímainnviðum
félagsins. Væntur söluhagnaður
nemur yfir 6 milljörðum króna.
„Verð á innviðum hefur hækkað
mikið á alþjóðavísu. Á meðan félag
eins og Sýn er metið á fimm sinnum
EBITDA [rekstrarhagnaður fyrir
skatta, fjármagnsliði og afskriftir]
eru innviðir metnir á bilinu 20 til 30
sinnum EBITDA. Og hvers vegna er
það? Stofnanafjárfestar á borð við
lífeyrissjóði og tryggingafélög sækja
í öruggt sjóðsflæði til langs tíma –
eignir sem haga sér í raun eins og
skuldabréf – sem er nánast hvergi
fáanlegt,“ segir Heiðar.
„Það er okkur mjög hagfellt að
geta nýtt þessa miklu eftirspurn til
að selja innviði á góðu verði til fjár-
festa sem eru traustir og sérhæfðir í
innviðafjárfestingum.
Getum við gert þetta við aðra
innviði? Já, svo sannarlega,“ bætir
Heiðar við. „Við eigum f leiri inn-
viði, svo sem IPTV-kerfið í kringum
myndlyklana og landsdekkandi
burðarnet, sem við viljum gjarnan
selja og það eru kaupendur sem vilja
kaupa.“
Í tilkynningu Sýnar til Kaup-
hallarinnar kom fram að sala og
endurleiga á óvirkum innviðum
hefðu óveruleg áhrif á EBITDA fyrir-
tækisins.
„Þetta breytir engu um rekstrar-
niðurstöðuna,“ segir Heiðar. „Við
eigum ekki lengur þessi möstur,
hættum að þjónusta þau og hættum
að fjárfesta í viðhaldi. Kaupandinn
tekur á sig krónuáhættu, vaxta-
áhættu og mótaðilaáhættu ef eitt-
hvað kemur upp hjá okkur eða
NOVA. Við losnum við áhættu,
fáum gott verð fyrir og einföldum
þannig reksturinn. Það sem við
erum að vinna í er að breyta kostn-
aði fyrirtækisins úr föstum í breyti-
legan þannig að hann fari upp og
niður með tekjunum.“
Stefnumótunin að skila sér
Óhætt er að segja að rekstur Sýnar
sé margþættari en rekstur f lestra
fyrirtækja. Kaup á eignum 365
miðla árið 2017 sameinuðu fjar-
skiptarekstur og fjölmiðlun, og
viðskiptalíkanið var útvíkkað enn
frekar með kaupum á upplýsinga-
tæknifyrirtækinu Endor árið 2019.
„Við erum með viðskiptasam-
band við yfir 70 þúsund heimili, um
helming af 300 stærstu fyrirtækjum
landsins og mjög stóran hluta af
smærri fyrirtækjum. Það er ekki
fráleitt að útvíkka viðskiptasam-
bandið með því að selja til dæmis
raforku, tryggingar eða öryggis-
þjónustu. Við þekkjum viðskipta-
vini okkar vel og getum nýtt stærð-
arhagkvæmnina til þess að lækka
kostnað heimila og fyrirtækja á
ýmsum sviðum,“ segir Heiðar.
Yfirtakan á eignum 365 miðla
gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig.
Samþætting tók lengri tíma en búist
var við og kostnaður var umfram
spár. Á árinu 2019 nam tap Sýnar
ríflega 1,8 milljörðum króna.
„Það má segja að samþættingin
hafi ekki gengið sem skyldi en við-
skiptahugmyndin á bak við sam-
einingu fjarskipta og fjölmiðla er
enn góð og gild,“ segir Heiðar.
Ráðist var í stefnumótun á árinu
2019 til þess að koma fyrirtækinu
á réttan kjöl en hún fól í sér miklar
umbætur á þjónustuleiðum og
vöruframboði Sýnar. Afraksturinn
kemur sífellt betur í ljós.
„Ánægjuskor okkar í könnunum
hefur nú aldrei mælst jafnhátt en
sumarið 2019 hafði það aldrei verið
jafnlágt. Og ánægja starfsmanna
hefur aldrei mælst hærri í sögu fyr-
irtækisins. Það er eitthvað að gerast
sem fólk hefur trú á.“
Sýn tapaði 400 milljónum króna
á árinu 2020 en ef ekki hefði verið
fyrir kórónaveirufaraldurinn, sem
hafði verulega neikvæð áhrif á
auglýsingatekjur og farsímatekjur,
hefði fyrirtækið skilað hagnaði. Þá
var tap fjórða ársfjórðungs einungis
3 milljónir króna samanborið við
ríflega 2 milljarða króna tap á sama
fjórðungi 2019.
Þá hefur lækkun áskriftarverðs
skilað sér í mikilli fjölgun áskrif-
enda. Verð á Stöð 2 Sport hefur
helmingast á síðustu þremur árum.
„Það hafa ekki verið fleiri áskrif-
endur að Stöð 2 um margra ára
skeið. Í mars fórum við af stað með
fjölskyldupakka þar sem Stöð 2 og
Stöð 2 plús er selt saman ásamt fjar-
skiptaþjónustu. Kaupin á fjölmiðl-
unum voru einmitt til þess gerð að
hægt væri að bjóða betra verð til
heimila og þá má því segja að búið
sé að sameina fyrirtækin endanlega
þegar fjölmiðlarnir og fjarskiptin
vinna svona saman.“
Læsingin gaf góða raun
Í byrjun árs voru kvöldfréttir
Stöðvar 2 teknar úr opinni dag-
skrá en þar með urðu þær einungis
aðgengilegar áskrifendum. Heiðar
segir að í kjölfarið hafi áskrifendum
að stöðinni fjölgað í þúsundatali.
„Við erum mjög ánægð með þessa
ákvörðun. Og auk þess er meiri
samfella í dagskrárgerðinni því
nú þarf ekki að huga að því að ein-
hverjir sem eru ekki áskrifendur séu
að einnig að horfa. Þetta er hrein
áskriftarstöð.“
Hafið þið í hyggju að ganga enn
lengra? Til dæmis að setja hluta af
Vísi á bak við greiðslugátt?
„Það er ein hugmynd. Ef þú skoð-
ar fjölmiðla á Norðurlöndum þá
sérðu að þeir eru nánast allir með
efni á bak við greiðslugátt. Að því
leyti er Ísland í ákveðinni sérstöðu.
Stærstu vefmiðlarnir, Vísir og síðan
mbl.is, eru með opinn aðgang að
nánast öllu sínu efni. En ég get séð
fyrir mér eins konar „premium“
áskrift að Vísi sem veitir aðgang að
enn meira efni og sníður viðmótið
eftir höfði neytandans. Ef þú ert til
Sýn vill gjarnan selja fleiri innviði í ár
Sýn getur selt fleiri innviði fyrir milljarða á þessu ári. Afrakstur af stefnumótun að skila sér í rekstrarbata. Heiðar Guðjónsson forstjóri segir
Vísi eiga mikið inni og gæti hugsað sér greiðslugátt að efni á vefmiðlinum. Sláandi hversu langt RÚV gangi í samkeppni við einkamiðla.
Heiðar Guðjónsson segir að ánægjuskor Sýnar í könnunum hafi aldrei mælst hærra en um þessar mundir en sumarið 2019 var það hins vegar í lágmarki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fjölmiðlafrum-
varpið linar þján-
ingar en bjargar engu. Það er
plástur á sár sem stækkar og
stækkar.
5 . M A Í 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN