Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 1
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 7 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 5 . M A Í 2 0 2 1 KRINGLUKAST 20-50% AFSLÁTTUR5.-10. MAÍ Miðvikudag til mánudags VIÐSKIPTI Unnið er að því að leggja skýrslubeiðni fyrir Alþingi sem felur í sér að Ríkisendurskoðun geri stjórnsýsluúttekt á starfsemi Sam- keppniseftirlitsins. Þetta herma heimildir Markaðarins. Frum- kvæðið áttu Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson, þingmenn Sjálf- stæðisf lokksins og nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, en væntingar standa til þess að þingmenn fleiri flokka komi að skýrslubeiðninni. Eftir því sem Markaðurinn kemst næst mun stjórnsýsluúttektin bein- ast að þeirri starfsemi Samkeppnis- eftirlitsins sem snýr að samrunum fyrirtækja. Þannig verður lagt mat á eftirlitshlutverk stofnunarinnar, árangur samrunamála og hvernig þeim hefur verið háttað á síðustu árum. – þfh / sjá Markaðinn Biðja um úttekt á samrunum Allt tiltækt slökkvilið barðist í gær við að ráða niðurlögum gróðurelda sem kviknuðu í Heiðmörk síðdegis, Slökkviliðið naut aðstoðar bæði lögreglu og Landhelgisgæslunnar sem notaði þyrlu við slökkvistarfið. Þegar Fréttablaðið fór í prentun taldi slökkviliðið sig hafa náð tökum á eldinum þótt mikil vinna hafi verið eftir við að slökkva hann. Sjá síðu 2 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VIÐSKIPTI Birgir Jónsson, nýr for- stjóri félagsins Play, segir að það sé vel pláss fyrir annað f lugfélag á markaðinum í f lugi yfir hafið. „Ég get ekki skrifað undir yfirlýs- ingar um að það sé fullreynt að reka annað flugfélag frá Íslandi. Ég byggi það meðal annars á því að ég tel að önnur lággjaldaf lugfélög sem hafa verið starfrækt hér á landi hafi í raun farið út af sporinu í sínum rekstri. Það er ekkert náttúrulögmál þar að baki heldur einungis sú staðreynd að það voru teknar rangar ákvarðanir,“ segir Birgir í viðtali við Markaðinn. Þrátt fyrir innkomu Play telur Birgir langt í að við sjáum aftur þann massatúrisma sem einkenndi ferða- þjónustuna fyrir fáum árum þegar Icelandair og WOW héldu úti 50 til 60 vélum í áætlunarflugi. Play hafi engin áform um að vaxa hratt heldur muni einblína á að vera sveigjanlegt, lítið f lugfélag, sem ætli sér að skila arðsemi fyrir hluthafa þess með því að finna „matarholur“ til hliðar við stóru flugfélögin. „Við ætlum ekkert að sigra heim- inn og vera með f leiri tugi véla í rekstri – heldur vera fókuseraðir, einblína á afkomuna og virðið sem við erum að búa til fyrir viðskipta- vininn. Það voru þessir hlutir sem fóru áður úrskeiðis í þessum lág- gjaldaflugfélögum,“ segir Birgir. Áætlanir Play gera ráð fyrir að byrja með þrjár Airbus A321 Neo- vélar í sumar en á næsta ári, þegar stefnt er að því að hefja f lug til Bandaríkjanna, er áformað að flug- flotinn verði stækkaður í 6-8 vélar. „Ég held að heppilegasta stærðin af flugflota fyrir félag eins og Play sé um 15 vélar,“ útskýrir Birgir. „Ef okkur ætlar að takast að halda niðri kostnaði sem lággjaldafélagi þá verðum við að gæta að því að vera með framboð sem endurspeglar raunverulega eftirspurn. Ef hún er ekki fyrir hendi þá er miklu betra að leyfa vélunum bara að standa óhreyfðum.“ – hae / sjá Markaðinn Ætlum ekki að sigra heiminn Nýr forstjóri Play segir að nálgunin verði ekki að vaxa hratt heldur að vera lítið flugfélag sem geti skilað góðri afkomu. Pláss fyrir tvö innlend flugfélög sem fljúga yfir hafið. Heppileg stærð á flota um 15 vélar. Önnur lággjalda- flugfélög sem hafa verið starfrækt hér á landi hafa í raun farið út af sporinu í sínum rekstri. Birgir Jónsson, forstjóri Play

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.