Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 6
Gott væri ef hreins- unin gæti hafist ekki seinna en á næsta ári. Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG Stefnt er að því að Bandaríkin taki við allt að 62.500 flóttamönnum í ár. AÐALFUNDUR FYLKIS Fimmtudaginn 20. maí 2021 kl. 19:30 er boðað til aðal- fundar Íþróttafélagsins Fylkis í samkomusal Fylkishallar. Dagskrá: • Hefðbundin aðalfundastörf samkvæmt lögum félagsins • Önnur mál. Upplýsingar um fjöldatakmarkanir vegna fundarins verða settar á heimasíðu félagsins þegar þær liggja fyrir. Aðalstjórn Fylkis UMHVERFISMÁL Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis samþykkti í gær að fela Guðmundi Inga Guð- brandssyni, umhverfis og auð- lindaráðherra, að gangast fyrir rannsókn á umfangi mengunar á Heiðarfjalli á Langanesi, bæði í jarðvegi og grunnvatni. Þar hafði Bandaríkjaher aðstöðu fyrir rúmri hálfri öld. Samhliða verði ráðherra falið að gera áætlun um kostnað og hreinsun úrgangs og spilliefna. Verði skýrslurnar unnar í samstarfi við landeigendur jarðarinnar Eiðis og skilað eigi síðar en 15. mars árið 2022. Bandaríkjaher rak ratsjárstöð á Heiðarfjalli árin 1954 til 1970 og skildi eftir sig mikinn úrgang og spilliefni í jörðu. Í áratugi hafa land- eigendur, með stuðningi sveitar- félagsins, barist fyrir því að herinn hreinsi eftir sig og kærumál gengið á öllum dómstigum, bæði innlendum og erlendum, en ekki haft erindi sem erfiði. Allir fulltrúar nefndarinnar sam- þykktu ályktunina og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna og talsmaður máls- ins, segir að hún hafi verið unnin í góðu samstarfi. Í ljósi þessa segist hann eiga von á því að þingheimur samþykki ályktunina í vor. „Ég ætla að leyfa mér að vona að þetta sé upphafið að endinum á þessari áratugalöngu baráttu,“ segir Kolbeinn. „Það er löngu kominn tími á að þetta ranglæti sé leiðrétt.“ Í greinargerðinni kemur fram að nauðsynlegt sé að íslensk stjórnvöld hefji viðræður við Bandaríkjastjórn og Atlantshafsbandalagið (NATO) um aðkomu og þátttöku í væntan- legu hreinsunarstarfi. Viðhorfið til umhverfismála sé gjörbreytt frá brotthvarfi hersins og hvorki Bandaríkjaher né NATO hafi farið varhluta af þessari breyt- ingu þegar kemur að viðskilnaði á hernaðarsvæðum. Bandaríkjaher hafi áður hreinsað land þar sem áður stóðu herstöðvar, óháð samn- ingum og kvöðum, og NATO verið tilbúið að veita styrki til rannsókna á mengun vegna hernaðarumsvifa. Um er að ræða tveggja hektara svæði þar sem raf hlöður og ýmis önnur spilliefni hersins voru grafin á fjögurra til fimm metra dýpi. Í rannsókn sem landeigendur létu gera á tíunda áratugnum mældist blý bæði í jarðvegi og grunnvatni en á jörðinni eru náttúrulegir grunn- vatnsgeymar. Hreinsun á svæðinu hefur verið afar takmörkuð hingað til enda verkið afar umfangsmikið. Kolbeinn segist vona að hægt verði að leggja mat á umfang meng- unarinnar sem fyrst til að hægt sé að gera áætlanir. „Gott væri ef hreinsunin gæti hafist ekki seinna en á næsta ári,“ segir hann. kristinnhaukur@frettabladid.is Upphafið að endinum í Heiðarfjallssögunni Verði ályktun um hreinsun Heiðarfjalls, þar sem Bandaríkjaher skildi eftir úrgang, samþykkt á Alþingi verður kostnaðaráætlun sett upp innan árs. Kol- beinn Óttarsson Proppé segir löngu tímabært að leiðrétta ranglæti í málinu. Um er að ræða tveggja hektara svæði við Heðarfjall sem stendur nálægt Þórshöfn á Langanesi.FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FAXAFEN 11, 108 REYKJAVÍK, S: 534-0534 WWW.PARTYBUDIN.IS Allt fyrir veisluna á einum stað Skraut, borðbúnaður, búningar og tækjaleiga Komdu yfir í stuðið á orkusalan.is FÁÐU KASSANA FRÍTT Ertu að flytja? BANDARÍKIN Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að taka á móti f leiri f lóttamönnum á þessu ári en hingað til. Miðað verður við að f lóttamennirnir verði allt að 62.500. Fyrir tveimur vikum uppskar ríkisstjórn Bidens mikla gagnrýni fyrir að halda í það viðmið sem sett var í valdatíð Donalds Trump sem var að einungis yrði tekið við 15 þúsund f lóttamönnum ár hvert. Í yfirlýsingu um breytinguna sagði Biden að stefna Trumps end- urspeglaði ekki gildi Bandaríkj- anna sem þjóðar sem tekur á móti og styður við f lóttamenn. „Það er mikilvægt að grípa til þessara aðgerða til að fjarlægja þann lang- varandi vafa í huga f lóttamanna um allan heim sem hafa þurft að þola svo margt og bíða eftirvænt- ingarfullir eftir að nýtt líf sitt hefj- ist,“ sagði hann og bætti svo við að stefnt væri að því að auka fjöldann enn frekar á næsta ári, um 125 þúsund. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur fagnað ákvörðun forsetans. Filippo Grandi, yfir- maður  hjá stofnuninni,  sagði að með ákvörðun forsetans myndu Bandaríkin endurheimta forystuna í f lóttamannamálum í heiminum. Aðeins um 1,6 prósent þeirra 1,44 milljóna sem Flóttamanna- stofnunin skilgreindi í forgangs- hópi fundu heimili í nýjum lönd- um í gegnum stofnunina á síðasti ári eða um 22,770, minnsti fjöldi í hartnær tvo áratugi. Helsta ástæða þess eru áhrif heimsfaraldursins en samgöngur milli landa hafa dreg- ist saman og mörg ríki ákveðið að taka við færri f lóttamönnum. – atv Fagna nýrri flóttamannastefnu Bidens Joe Biden forseti hefur uppskorið fögnuð vegna hinnar nýju stefnu. 5 . M A Í 2 0 2 1 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.