Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.06.2021, Blaðsíða 2
Lögin eiga eingöngu við um alþingiskosn- ingarnar í haust. Við þurftum ekkert að loka búðinni mjög lengi. Oddur Sigmundsson. Kynntust starfsemi Frú Ragnheiðar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fengu kynningu á starfi Frú Ragnheiðar í tilefni þess að verkefnið fékk nýjan bíl til notkunar. Rauði krossinn hefur í tólf ár starfrækt Frú Ragnheiði, sem er ætlað að stuðla að skaðaminnkun til að draga úr heilsufarslegum, félags- legum og efnahagslegum afleiðingum notkunar löglegra og ólöglegra vímuefna, með boði um heilbrigðisþjónustu og nálaskiptaþjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Meðal þeirra sem duttu í Pfiz­ er­lukkupottinn á þriðjudag voru starfsmenn plötubúðar. is sem eru fæddir 1987. Þeir hugsuðu sig ekki lengi um þegar þeir fengu sms­ið, settu miða í gluggann, skelltu í lás og brunuðu í Laugardalshöll. benediktboas@frettabladid.is VIÐSKIPTI „Haraldur verslunarstjóri fékk sms­ið um að hann ætti að mæta á stundinni. Skömmu síðar fékk ég sms og við stukkum af stað. Settum lítinn miða í gluggann sem á stóð Lokað vegna bólusetningar, skelltum í lás og héldum af stað,“ segir Oddur Sigmundsson hjá plötu­ búð.is. Hann og Haraldur Leví Gunnars­ son verslunarstjóri eru fæddir á því herrans ári 1987, en árgangurinn var dreginn upp úr skálinni góðu í Laugardalshöll á þriðjudag til að fá aukaskammt af Pfizer. Þeir fengu sms­boð í höllina þar sem þeir fengu Pfizer til að verjast veirunni. „Við þurftum ekkert að loka búðinni mjög lengi,“ segir Oddur. Hann bar sig vel þegar Frétta­ blaðið náði tali af honum. Þeir félagar voru smávegis aumir í öxl­ inni og  búðin heldur áfram  sínu striki, en eins og nafnið gefur til kynna selur búðin vínilplötur auk geisladiska. Í frétt RÚV frá upphafi árs um íslenska tónlist kom fram að mikill kippur hefði orðið á sölu á vínilplötum og töluverð aukning frá fyrra ári. „Þetta er auðvitað fínasta afsökun til að loka búð í smástund. Ég finn engin einkenni eftir sprautuna, enginn slappleiki eða neitt. Er bara stálsleginn,“ segir Oddur. „Almennt er vínillinn á blússandi siglingu. Það er mikið til af nýjum titlum og nýju efni. Brakandi ferskur vínill í plastinu, það gerist ekki betra,“ segir hann léttur. Beðið er með töluverðri eftir­ væntingu eftir nýrri plötu Dimmu sem kemur í búðir fyrr en síðar en hún er í pressun í Danmörku. Þá er  Vintage Caravan  nýbúinn að gefa út sína plötu á vínil og f lestir tónlistarmenn gefa sína tónlist nú einnig út á vínil. „Kardemommu­ bærinn kom út á vínil fyrir skömmu og Kaleo gáfu út sína plötu sem rokselst eins og Vintage Caravan og viðhafnarútgáfa KK sem og alls konar íslenskt góðgæti.“ n Allir boðaðir í bólusetningu og plötubúðinni skellt í lás Þeir félagar, Oddur og Haraldur Levý, eru stálslegnir eftir sprautuna með Pfizer. Setja bara plötu á fóninn og gleyma öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR „Verktakinn mun ekki fá lokaúttekt á þennan stíg fyrr en við erum orðin samþykk honum,“ segir Gunnar Atli Hafsteinsson, hjá umhverfis­ og skipulagssviði Reykjavíkur, um nýjan hjólastíg við Veðurstofuna. Stutt er síðan stígur­ inn var lagður, en stórar holur eru á honum eftir þungar vinnuvélar. Verktakinn Háfell ehf. sér um verkið og er stígagerðinni ekki lokið þó hjólreiðamenn geti nýtt sér hann. Gunnar Atli segir að nokkrir starfsmenn borgarinnar sem hjóla til vinnu hafi einmitt farið um téðan stíg og haft orð á ástandinu. „Ég er búinn að hjóla stíginn sjálfur og þetta er auðvitað ekki í lagi og við munum laga hann. En hann er ekki tilbúinn og við leyfum okkur að hafa hann opinn. Við erum meðvitaðir um þessar skemmdir sem er leiðinlegt því það er alltaf vont að bútalaga.“ n Holóttur hjólastígur fær ekki lokaúttekt fyrr en eftir lagfæringar Stígurinn er, þrátt fyrir að vera nýr, allur í holum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON kristinnhaukur@frettabladid.is STJÓRNMÁL Frumvarp Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmála­ ráðherra um breytingar á kosninga­ lögum var samþykkt í gær með 51 atkvæði gegn engu. Samkvæmt því getur fólk í sóttkví eða einangrun kosið á dvalarstað í alþingiskosning­ unum sem fram fara 25. september. Frumvarpið laut einnig að raf­ væðingu. Verður nú hægt að safna meðmælum með framboðum raf­ rænt, sem og meðmælum vegna úthlutunar listabókstafs og fleiru.n Fólk í sóttkví getur kosið í haust Hugsanlegt er að hópur fólks komist ekki á kjörstað vegna farald- ursins í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 2 Fréttir 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.