Fréttablaðið - 03.06.2021, Side 13

Fréttablaðið - 03.06.2021, Side 13
Kjósi VG að hefja samstarf við einhverja af stjórnarandstöðu- flokkunum, að Mið- flokknum fráskildum, þarf hreyfingin að taka upp fyrri stefnu um tímabundinn einka- rétt, því að það er sennilega stærsta prin- sippmál kosninganna. Ólafur Harðarson prófessor í stjórn- málafræði sagði eftir umræður leið- toga stjórnmálaflokka í Silfrinu í byrjun vikunnar að Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra réði því hvernig ríkisstjórn yrði mynduð að kosningum loknum. Þetta var eðlilega sagt með fyrir- vara um úrslit kosninga. En margt bendir til þess að prófessorinn hafi þarna hitt naglann á höfuðið eins og sakir standa. Kosningarnar geta vitaskuld breytt þessari mynd. Nýtt flokkakerfi Segja má að þessi nýja staða á tafl- borði stjórnmálanna marki enda- lok f lokkakerfis tuttugustu aldar. Framsókn hafði álíka lykilstöðu lengst af á síðustu öld. Alþýðu- flokkurinn og Sjálfstæðisf lokkur- inn gátu þó við réttar aðstæður losað sig úr þeirri pólitísku bónda- beygju. Að þessu leyti er staða VG senni- lega sterkari nú en Framsóknar á sínum tíma. Orsakirnar eru marg- víslegar og eiga rætur í innri og ytri aðstæðum. Landsliðseinvaldur Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Ástæðurnar Helsta ástæðan er sú að VG hefur smám saman þróast úr róttækum flokki yfir í praktískan valdaflokk. Hann er ekki beinlínis á miðjunni en verður þar að meðaltali með því að vinna ýmist til hægri eða vinstri. Forysta Sjálfstæðisflokksins bjó til aðra helstu ástæðuna með þeirri staðhæfingu að pólitískur stöðug- leiki væri ómöguleiki án VG. Þetta er enn þungamiðjan í málflutningi hennar fyrir komandi kosningar. Í þriðja lagi hefur Samfylkingin styrkt þessa stöðu VG með því að útiloka samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn. Loks eiga persónulegar vinsældir Katrínar Jakobsdóttur hlut að máli. Einar og sér hefðu þær þó ekki dugað til að koma flokknum í þessa ein- stöku stöðu. Í umræðum leiðtoganna kom fram að efnahagsmálin og auð- lindamálin verða fyrirferðarmikil í komandi kosningum. Fróðlegt er að skoða þau í ljósi þeirrar kenningar að formaður VG verði eins konar lands- liðseinvaldur við val í næstu stjórn. Efnahagsmálin Stöðugleiki krónunnar er stærsta viðfangsefnið á sviði efnahagsmála. Um markmiðið er ekki ágreiningur. En tekist er á um tvær leiðir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fall- ist á þá almennt viðurkenndu hag- fræðikenningu að gjaldeyrishöft séu nauðsynleg til að styðja við krónuna. Frumvarp um það efni liggur nú fyrir Alþingi. Viðreisn vill halda krónunni en í stað hafta leita eftir stöðugleika- samstarfi við Evrópusambandið líkt og Danir gera. Þingsályktun um það efni liggur líka fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn er á móti öllu frekara samstarfi við Evrópu, mest af ótta við að missa atkvæði til Miðflokksins. Hann vill fremur fórna viðskiptafrelsinu. Forysta VG getur lifað með því, þó að í baklandi VG séu frjálslyndari viðhorf til Evr- ópusamstarfs. Líkurnar á að viðhalda megi sams konar viðskiptafrelsi í gjaldeyris- málum og grannlöndin njóta eru því heldur meiri ef VG kýs að hætta samstarfinu við Sjálfstæðisf lokk- inn. Það er ein birtingarmynd nýs flokkakerfis. Auðlindamálin Í auðlindamálum snýst ágreining- urinn um það hvort einkaréttur til nýtingar á auðlindum í þjóðareign eigi að vera tímabundinn. Sjálfstæðisf lokkurinn og Mið- flokkurinn vilja að einkarétturinn verði áfram ótímabundinn í sjávar- útvegi en tímabundinn varðandi allar aðrar auðlindir. VG og Framsókn fylgja þeirri afstöðu, þvert á stefnu sína, til að rugga ekki stjórnarsamstarfinu og halda opnum möguleika á fram- haldi þess. Afsökunarbeiðni Samherja um helgina þjónaði aðallega þeim tilgangi að auðvelda Sjálfstæðis- flokknum að halda samstarfsflokk- unum í þessari klemmu. Kjósi VG að hefja samstarf við einhverja af stjórnarandstöðuflokk- unum, að Miðflokknum fráskildum, þarf hreyfingin að taka upp fyrri stefnu um tímabundinn einkarétt, því að það er sennilega stærsta prin- sippmál kosninganna. Þverstæðan Í þessum tveimur stóru málum birtist málefnaleg þverstæða miðað við fyrri tíma. Í báðum tilvikum eru frjálslynd viðhorf líklegri til þess að verða ofan á ef VG kýs að vinna með öðrum en Sjálfstæðisflokknum. Samtök atvinnulífsins veita Sjálf- stæðisflokknum skjól til að velja höft fremur en samstarf innan EES- samningsins um viðskiptafrelsi og stöðugan gjaldmiðil. Eigi að síður hlýtur það að vera afar erfið pólitísk ákvörðun. Stærstu útvegsfyrirtækin njóta einnig stuðnings Samtaka atvinnu- lífsins til að verja ótímabundinn einkarétt á nýtingu fiskveiðiauðlind- arinnar þvert á meginregluna, sem gildir um aðrar auðlindir. Það er líka mikið áhættumál fyrir pólitíkina. Að öllu virtu er auðlindamálið lík- legast til þess að veikja stöðu lands- liðseinvaldsins á kjördag. n Hildur Sverris dóttir 3.– 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Stjórnmál skipta máli „Stjórnmál eiga að standa vörð um frelsi fólks og láta yfirvegun og heildar- hagsmuni ráða ferðinni.“ Skoðun 13FIMMTUDAGUR 3. júní 2021

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.