Fréttablaðið - 03.06.2021, Page 17
KYNN INGABLAÐ
ALLT NÝRMIÐI!Þú getur unnið fjórum sinnum!Finndu féog vinndu fé!
FIMMTUDAGUR 3. júní 2021
thordisg@frettabladid.is
Þegar íslenskt sumar er hlýtt
og blítt gefast tækifæri til létt-
ari klæðnaðar, stuttbuxna og
stuttra pilsa. Mínípilsið sást fyrst
í enskum búðarglugga hinnar
goðsagnakenndu tískuverslunar
Bazaar í Lundúnum árið 1963. Það
sló strax í gegn, ekki síst á meðal
yngri kvenna og táningstelpna. Í
kjölfarið og allan sjöunda ára-
tuginn urðu mínípils hæstmóðins
og allsráðandi í tískuheiminum,
en þau þykja marka upphaf ensku
götutískunnar.
Breska fatahönnuðinum Mary
Quant er jafnan þökkuð tilurð
mínípilsins, sem og franska tísku-
hönnuðinum André Courréges.
Mínípils voru þó auðvitað til áður
en Mary Quant sigraði tísku-
heiminn með sínu örstutta pilsi
og má til dæmis nefna dansarann
Jósefínu Baker sem klæddist
stuttu pilsi gerðu úr banönum
á þriðja áratugnum. Konur á
almannafæri sáust hins vegar ekki
í mínípilsum fyrr en eftir 1963.
Áður sáust konur klæðast þeim
í íþróttum og dansi, svo sem í
tenniskeppnum og á listskautum,
en einnig klappstýrur.
Mínípils kallast pils sem eru
með fald fyrir ofan hné, yfirleitt
um mitt læri og ekki síðara en tíu
sentimetrum fyrir neðan rass.
Eftir því sem árin liðu hækkaði
faldurinn enn meir og árið 1966
höfðu sumir hönnuðir fært faldinn
upp og enn ofar á lærið en þá var
algengt að klæðast litríkum sokka-
buxum við. n
Tími mínípilsa
Mínípils eru bæði falleg og kvenleg.
Árni Rudolf fyrir framan Fish and Chips-vagninn. Þessi breski þjóðarréttur nýtur mikilla vinsælda jafnt hjá Íslendingum sem og erlendum ferðamönnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á vinsældalista ferðamanna
Árni Rudolf og kona hans, Ásdís Jónsdóttir, reka Fish and Chips-vagninn við Vesturbugt
við Reykjavíkurhöfn. Þar hefur vagninn fast aðsetur yfir sumarmánuðina og hefur notið
mikilla vinsælda. Fish and Chips-vagninn er meðal fyrstu matsöluvagna í Reykjavík. 2
Heilbrigð melting er
grunnur að góðri heilsu
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is