Fréttablaðið - 03.06.2021, Side 20
Það var frábært að
vinna með Lond-
ynn og hanna fyrir
Grammy verðlauna-
hátíðina árið 2020 og er
það eitt af mínum uppá-
halds mómentum sem
ég hef upplifað.
Karen Kice
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
frettabladid.is
Karen Kice er efnilegur, sjálf-
lærður fatahönnuður sem
hefur þegar látið til sín taka
í Bandaríkjunum og vakið
athygli fyrir sína glæsilegu
og frumlegu hönnun, þar
sem hennar listrænu hæfi-
leikar skína í gegn. Hún
hefur hannað kjóla og flíkur
á fjölda stjarna vestanhafs
og fengið lof fyrir.
„Eftir grunnskóla lá leið mín í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti þar sem
ég tók nokkrar annir en ég fann
mig ekki í skólanum. Ég var ekki
með áhuga á neinu sem ég var að
læra þar, það virtist ekkert fag né
áfangi heilla mig svo ég fór aðrar
leiðir.“ Karen hætti í náminu og fór
út á vinnumarkaðinn og vann fullt
starf á kaffihúsum ásamt öðrum
hlutastörfum. „Ég leiði stundum
hugann að því í dag hvort ég hefði
fundið mig í fatahönnun í fjölbraut
en á þessum tíma datt mér aldrei
í hug að prófa það fag né önnur
listræn fög. Eina sem ég saumaði í
grunnskóla var klassískur koddi,
það var allt og sumt,“ segir Karen
og bætir því við að hún hafi engu
að síður alltaf haft áhuga á list.
Fór að leika í Bandaríkjunum
Árið 2013 flutti Karen til Banda-
ríkjanna, nánar tiltekið til Atlanta
í Georgíu. „Ég byrjaði að leika í
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
og var jafnframt módel á nokkrum
tískusýningum. Sumir myndu
halda að því fylgdi frægðarljómi og
gleði, en það var bara ekkert eins
gaman og ég hélt. Ég var ekkert
hrifin af því að láta fólk ráðsk-
ast með mig, til að mynda segja
mér hvernig ég átti að haga mér
og hvernig ég ætti að líta út. Ég
fylgdist með hönnuðunum sem
sáu um að klæða okkur og fannst
það mjög áhugavert. Þeir voru í
þægilegum fötum og gátu gert það
sem þeir vildu. Svo var það sem
heillaði mig mest. Ég elskaði að sjá
fötin sem hönnuðirnir hönnuðu og
hugsaði, ef þeir geta þetta af hverju
ætti ég ekki að geta þetta?“
Karen fann sig þá loksins í því
fagi sem hún nýtur sín best í og
hefur ástríðu fyrir. „Ég fór og
keypti mér saumavél og lærði sjálf
að hanna og sauma með því að
horfa á myndbönd og æfa mig.
Um það bil ári síðar byrjuðu fjöl-
skyldumeðlimir mínir og vinir
að sýna f líkunum áhuga sem ég
var að hanna og sauma. Fólk var
farið að kaupa kjóla og f leiri f líkur
hannaðar af mér og eftir þetta
kviknaði neisti í mér sem logar
enn.“
Hannar kjóla á stjörnurnar í tónlistarheiminum
Glæsilegur
klæðnaður
sem Londynn
klæðist hér á
Grammy-verð-
launahátíðinni.
MYNDIR/AÐSENDAR
Hannar á stjörnurnar vestanhafs
Í dag er Karen að hanna stórglæsi-
lega glamúr- og galakjóla sem
fanga augað og hafa vakið verð-
skuldaða athygli. „Ég trúi stundum
ekki sjálf að ég hafi hannað og
saumað þá sjálf. Kjólarnir mínir
eru stoltið mitt, svolítið eins og
börnin mín. Það er ólýsanleg
tilfinning og mikill heiður að sjá
hönnun mína á Grammy verð-
launahátíðinni, Netflix, BET
verðlaunahátíðinni, tónlistar-
myndböndum, á New York tísku-
vikunni og hreinlega út um allt á
samfélagsmiðlum.“
Karen er meðal annars hönnuður-
inn hennar Londynn b., rappara
sem vann 3. sætið fyrir Netflix
þættina Rhythm N. Flow með
Cardi B.T.I. og Chance The rapper.
„Það var frábært að vinna með
Londynn og hanna fyrir Grammy
verðlaunahátíðina árið 2020 og
er það eitt af mínum uppáhalds
mómentum sem ég hef upplifað.“
Karen hefur hannað fyrir fleiri
þekktar stjörnur eins og Derez Des-
hon, sem er mjög frægur rappari,
Kissie Lee, söngkonu sem syngur
oft með Keke Wyatt, sem er ein af
þeim stóru í stjörnuheiminum, og
loks má líka nefna Renni Rucci.
Karen hannaði þennan fallega brúðarkjól en það þykir henni mjög gaman.
Það er ákveðin
áskorun að vera
frumlegur og
skapa listaverk,
segir Karen
meðal annars .
ekki tískustraumum, ég bý til
mína tískulínu sjálf og það má
með sanni segja að fatahönnunin
sé mitt draumastarf, ég lifi fyrir
það.“ Karen stefnir að því að opna
sína eigin verslun á næstu árum
og langar mikið til að gera meira
á þessu sviði. „Mig langar mikið
til að vera með mína eigin tísku-
sýningu á Íslandi einn daginn.
Það væri æðislegt að sýna fólkinu
heima hönnunina mína. Svo er
stefnan að halda áfram að hanna
fleiri kjóla á stjörnurnar. Ballið er
bara rétt að byrja,“ segir Karen og
er spennt fyrir framtíðinni. n
Öðruvísi hönnunarstíll
– glamúr með keim af götutísku
Karen hefur ávallt haft áhuga á
list og elskar hún að vera öðruvísi,
skera sig úr og vekja athygli. „Ég hef
ávallt verið skapandi og frumleg,
það sem var í tísku hverju sinni
náði aldrei athygli minni. Það má
segja að ég hanni og búi til mína
eigin tískulínu.“
Þegar Karen er beðin um að lýsa
hönnunarstíl sínum segir hún að
það sé glamúr með keim af götu-
tískunni. Innblástur sinn sækir
Karen víða og segir að hann komi
frá mörgum stöðum. „Stundum
vakna ég með hugmyndir og
stundum kemur innblásturinn yfir
mig þegar ég byrja að sauma.“
Áttu þér þína uppáhaldsf lík eða
f líkur sem þú hefur hannað?
„Já, það er hellingur sem er
uppáhalds hjá mér. Prom og
brúðarkjólarnir, auk þess sem
ég elska að hanna flíkur og kjóla
fyrir tónlistarfólk, það er ákveðin
áskorun og í lagi að vera frumlegur.
Að hanna listaverk fyrir listamenn
er eitt af mínum uppáhaldsverk-
efnum.“
Eigið tískuvörumerki Karenar
heitir KICE Collection
Sjálf á Karen líka sína uppáhalds-
hönnuði. „Ég er mjög hrifin af
Rachael Mills, Zigman og Valdrin
Sahiti. En þegar kemur að tísku-
vörumerki þá er KICE Collection
uppáhalds. Ég er ekki mikið fyrir
merkjavöru, ef mér finnst eitthvað
flott skiptir það mig engu máli
hvaða merki það er.“
Þegar kemur að litavali, fylgir þú
tískustraumunum hverju sinni eða
áttu þér þína uppáhaldsliti sem
þér finnst skemmtilegast að vinna
með?
„Í sannleika sagt þá fylgi ég
Karen Kice
er að gera
góða hluti í
Bandaríkj-
unum.
4 kynningarblað A L LT 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR