Fréttablaðið - 03.06.2021, Síða 24
Hjá Kópavogsbæ hefur lengi
verið vilji til að gera snemm-
tækan stuðning að forgangsmáli í
þjónustu við börn og fjölskyldur.
Verklag hefur þar verið mótað í
samstarfi mennta- og velferðar-
sviðs til að auka samvinnu, meðal
annars á milli leik- og grunnskóla,
frístunda úrræða og velferðarsviðs
með hagsmuni barna og fjöl-
skyldna að leiðarljósi. „Við vitum
að árangur af stuðningi og úrræð-
um er meiri og betri ef brugðist
er við markvisst um leið og vandi
birtist og bið eftir þjónustu er lág-
mörkuð,“ segir Jóhanna Lilja Ólafs-
dóttir, verkefnastjóri snemmtæks
stuðnings og samfelldrar þjónustu
hjá Kópavogsbæ.
Snemmtækur stuðningur er
margvíslegur hjá Kópavogsbæ og
nær yfir úrræði sem veita börnum
og fjölskyldum stuðning um leið
og þörf vaknar. Þannig berst réttur
stuðningur á réttum tíma. „Við
leggjum áherslu á fyrirbyggjandi
aðgerðir ásamt árangursríkum
stuðningi sem miðar að því að
bregðast snemma við erfiðleikum
til að koma í veg fyrir að þeir
aukist.
Snemmtækur stuðningur
Snemmtækur stuðningur er ekki
eingöngu veittur á vegum velferð-
arsviðs. Þvert á móti taka margir
mismunandi þjónustuaðilar þátt í
að veita hann.
Hjá Kópavogsbæ er í gangi fjöldi
mismunandi úrræða og verkefna
inni í leik- og grunnskólum og
annars staðar í nærumhverfi
barna, sem öll miða að snemm-
tækum stuðningi eða inngripum
í aðstæður barna og fjölskyldna,“
segir Jóhanna.
Nýjar reglur bæta þjónustu
Velferðarsvið Kópavogs er að
þróa áfram þjónustu til að mæta
þörfum íbúa bæjarins betur.
„Fyrr á árinu voru samþykktar
nýjar reglur um stuðning við
börn og fjölskyldur, í bæjarstjórn
Kópavogs. Þar er fjallað um þann
stuðning sem veittur er foreldrum,
forsjáraðilum og eftir atvikum
Við leggjum
áherslu á fyrir-
byggjandi aðgerðir
ásamt árangursríkum
stuðningi sem miðar að
því að bregðast snemma
við erfiðleikum til að
koma í veg fyrir að þeir
aukist.
Réttur stuðningur á réttum tíma
Jóhanna Lilja
segir að það sé
lykilatriði að
foreldrar og fólk
sem starfi náið
með börnum
viti um þau
stuðningsúr-
ræði sem standi
til boða á
vegum sveitar-
félagsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Víða hafa sveitarfélög leitað
leiða til að auka snemm-
tækan stuðning og samfellu
í þjónustu þvert á mála-
flokka. Markmiðið er að lág-
marka bið eftir þjónustu og
leita bestu mögulegu lausna
fyrir börn og fjölskyldur sem
glíma við vanda.
þjónustu í þágu farsældar barna og
styðja einnig við hugmyndir um
barnvæn sveitarfélög, innleiðingu
Barnasáttmálans og ríkjandi hug-
myndafræði um sjálfstætt líf í mál-
efnum fatlaðs fólks,“ segir Jóhanna.
Þegar umsókn um ráðgjöf eða
stuðning fyrir börn og fjölskyldur
berst fer fram mat á stuðnings-
þörfum fjölskyldu, sem er gert í
samvinnu við umsækjanda og ráð-
gjafa og tekur mið af þörfum fjöl-
skyldunnar. Við mat á stuðnings-
þörf er horft til heildaraðstæðna
fjölskyldunnar og skipulags
daglegs lífs. Ákvörðun um hvaða
stuðningur verður veittur byggir á
mati á stuðningsþörfum.
Mikilvægt að ná til sem flestra
Jóhanna var ráðin 1. desember
2020 inn í nýtt stöðugildi á vel-
ferðarsviði Kópavogs sem verk-
efnastjóri snemmtæks stuðnings.
„Mitt hlutverk er meðal annars
að annast fræðslu um stuðning
velferðarsviðs og starfsemi barna-
verndar Kópavogs fyrir foreldra
leikskólabarna og foreldra barna
sem eru að hefja grunnskóla-
göngu,“ segir Jóhanna.
Nýrri stöðu fylgir fræðsla til
starfsmanna leikskóla og yngsta
stigs grunnskóla um stuðning
velferðarsviðs, starfsemi barna-
verndar og mikilvægi tilkynninga
til barnaverndar. Samstarf við
heilsugæslu verður eflt og áhersla
lögð á skipulagða samvinnu við
mæðra- og ungbarnavernd.
Kynningar um starfið
„Í vor byrjaði ég að halda kynn-
ingar fyrir dagmæður starfandi í
Kópavogi, leikskólastjóra og sér-
kennslustjóra í öllum leikskólum
bæjarins. Einnig held ég kynningar
á starfsmannafundum eða starfs-
dögum hvers leikskóla, í samráði
við stjórnendur.
Þá stefni ég á að fara á fundi fyrir
foreldra barna sem eru að hefja
leikskólagöngu. Kynningar fyrir
starfsmenn á yngsta stigi grunn-
skóla og fræðsla til foreldra barna
sem eru að hefja grunnskólagöngu
eru enn í mótun og stefni ég á að
hitta skólastjórnendur grunnskóla
Kópavogs í haust.
Með aukinni fræðslu og sam-
tali við foreldra og starfsfólk sem
vinnur náið með börnum, viljum
við stuðla að því að fleiri hafi upp-
lýsingar um þann stuðning sem
stendur til boða og að auðveldara
verði fyrir fjölskyldur að leita til
velferðarsviðs eftir stuðningi. Þá
verður hægara fyrir þau sem starfa
í nærumhverfi barna og fjöl-
skyldna að leiðbeina fjölskyldum
sem þurfa stuðning, á réttan stað.
Samvinna verður líka vonandi
farsælli þegar við þekkjum betur
hvernig mismunandi þjónustu-
aðilar og stofnanir sem koma að
börnum og fjölskyldum starfa.
Einnig vonum við að aukin
fræðsla um starfsemi barna-
verndar og tilkynningarskylduna
auki líkur á því að aðkoma barna-
verndar að málefnum barna verði
tryggð um leið og áhyggjur vakna
hjá starfsmönnum í nærumhverfi
þeirra,“ segir Jóhanna.
Hægt er að nálgast upplýsingar
um stuðning við börn og fjöl-
skyldur á heimasíðu bæjarins
www.kopavogur.is eða með því
að hafa samband við þjónustuver
Kópavogs í síma 441-0000.
vistunaraðilum, við uppeldi barna
eða til að styrkja þá í uppeldis-
hlutverki sínu svo þeir geti búið
börnum sínum örugg og þroska-
vænleg uppeldisskilyrði.
Einnig er stuðningurinn til
handa börnum og fjölskyldum
þeirra sem þurfa aðstoð vegna
fötlunar, skerðinga, langvinnra
veikinda og eða vegna félagslegra
aðstæðna. Þessar nýju reglur
eru í takti við nýjar hugmyndir
stjórnvalda um samþættingu
Við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna er einkum horft til fjögurra greina
í Barnasáttmálanum.
2. greinin:
Stjórnvöld eiga að tryggja að öll börn njóti réttinda
Barnasáttmálans.
3. greinin:
Stjórnvöld eiga ávallt að gera það sem barni er fyrir
bestu og huga að því hvaða áhrif ákvarðanir þeirra
hafa á börn.
6. greinin:
Stjórnvöld eiga að tryggja að öll börn fái að lifa og
þroskast og efla styrkleika sína.
12. greinin:
Stjórnvöld eiga að hlusta eftir hugmyndum barna,
bera virðingu fyrir skoðunum þeirra og taka tillit til
þeirra við ákvarðanatöku.
Þessar fjórar greinar hafa verið hafðar að leiðarljósi
við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
í Kópavogi.
Grunnstoðir Barnasáttmálans
4 3. júní 2021 FIMMTUDAGURKÓPAVOGUR BARNVÆNT SVEITARFÉLAG