Fréttablaðið - 03.06.2021, Side 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Gestum og gangandi gefst
tækifæri til að reyna að halda
sér á baki skúlptúrs sem
sveiflast fram og til baka líkt
og tuddi á kúrekasýningu, á
sýningunni Ride the Art, sem
verður opnuð í Myndhöggv-
aragarðinum á laugardaginn.
kristlin@frettabladid.is
Myndlistarkonurnar Tara Njála
Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guð-
laugsdóttir, opna á laugardaginn
sýninguna Ride the Art. Þær sækja
innblástur úr tveimur ólíkum
áttum, annars vegar frá andrúms-
lofti svokallaðra Rodeo- eða kúreka-
sýninga og hins vegar til klassíska
myndhöggvarans Auguste Rodin.
„Skúlptúrinn sjálfur er eftirmynd
af Hugsuðinum eftir Rodin, en hann
er byggður utan um vélrænt naut,“
útskýrir Tara. Tækið sjálft líkir eftir
nautgripareið, áhættuíþrótt sem
löngum hefur notið mikilla vin-
sælda meðal kúreka í Bandaríkj-
unum.
Hugsuðurinn er skúlptúr sem
listamennirnir telja vera dæmi
um hreina framsetningu og tákn
listarinnar. „Þetta er fyrsti skúlptúr
margra og hefur orðið að eins konar
heimspekitákni.“
Klífa upp á tuddann
Gestum er boðið að taka áhættu
í listinni með því að stíga á bak og
reyna að falla ekki úr hnakkinum.
„Fyrir suma er sjálf tilhugsunin um
að klífa upp á tuddann og sveiflast
fram og aftur nógu mikil áskorun,“
segir Silfrún og ítrekar að enginn
verði skikkaður á bak.
„Okkur fannst mikilvægt að listin
væri með sitt eigið óstjórnlega afl og
að við værum ekki að hafa áhrif á
það,“ segir Tara. „Listin hefur nátt-
úrulega sitt eigið afl, maður sér það
bara ekki alltaf svona skýrt,“ skýtur
Silfrún inn í. Listamenn taki sífellt
áhættu í list sinni og sköpun og telur
tvíeykið það vera táknrænt að gestir
geti mætt listinni á þennan hátt.
Enginn þarf þó að hafa áhyggjur
af því að slasa sig í gjörningnum.
„Öryggi er búið að vera í forgangi hjá
okkur og við erum með risa öryggis-
dýnu undir skúlptúrnum.“ Mynd-
listarkonurnar hafa þó hvorug stigið
á bak sjálfar, en fullvissa blaðamann
um að þetta virki.
„Vélin verður ekki færð út í garð
fyrr en á laugardaginn og þá prófum
við þetta áður en sýningin byrjar.
Við vitum samt að vélin virkar,
skúlptúrinn virkar og dýnan virk-
ar,“ segir Silfrún kokhraust.
Leikgleðin í fyrsta sæti
Listamannatvíeykið hefur starfað
saman síðan 2017 og meðal annars
haldið úti Vatnshelda galleríinu og
skipulagt Stálsmiðjuna í Neskaup-
stað. „Við kynntumst í Listaháskól-
anum í myndlistarnámi og náðum
einmitt saman í skúlptúráfanga, en
skúlptúrar hafa fylgt okkar sam-
starfi síðan,“ segir Silfrún. Tvíeykið
er einnig þekkt fyrir vídeóverk,
gjörninga og innsetningar, en fyrst
og fremst fyrir þá leikgleði sem ein-
kennir viðburði þeirra.
„Okkur finnst svo gaman að hafa
gaman en auðvitað getur uppsprett-
an átt rætur sínar að rekja til alvar-
legra og erfiðra hluta, þrátt fyrir
að uppskeran valdi gleði og flissi,“
bendir Silfrún á.
„Það góða við leikgleðina er líka
að hún er svo aðgengileg, þannig
að fólk veigrar sér síður við að taka
þátt,“ segir Tara. Mikilvægt sé að
gestum líði vel þar sem þeir séu hluti
af heildarupplifuninni.
Fagna myndlistinni
Það sé einnig markmiðið á laugar-
daginn. „Öll innsetningin bygg-
ist á því að búa til einhvers konar
fögnuð.“ Viðburðurinn sé þannig
ætlaður fjölskyldum, vinum, list-
unnendum og keppendum, sem
geta komið saman og fagnað mynd-
listinni.
Áður en fyrsti gestur stígur á
bak listgripsins mun hljómsveitin
The Really Big Family Band syngja
opnunarlagið Take a Chance on
Art. „Bæði fjölskylda mín og fjöl-
skylda Sillu mynda eina risastóra
fjölskylduhljómsveit sem hefur æft
stíft síðastliðna daga,“ segir Tara
hlæjandi.
Textinn er innblásinn af verkinu
sjálfu og því að horfast í augu við
listina, en laglínan var fengin að láni
frá sænsku poppsveitinni ABBA og
lagi þeirra Take a Chance on Me.
„Við hvetjum alla til að kíkja í
Central Park í Reykjavík, eins og
við köllum Myndhöggvaragarðinn,
á laugardaginn og taka áhættu á list-
inni með okkur.“ n
Lafað á baki listarinnar
Myndlistakonurnar Tara Njála Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guðlaugsdóttir ætla að skella gestum sýninarinnar Ride
the Art á bak listatuddanum á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Listin hefur náttúru-
lega sitt eigið afl,
maður sér það bara
ekki alltaf svona skýrt.
Silfrún.
TAKE AWAY
Strandgata 34
220 Hafnafjörður
kryddveitingahus.is
takeaway_frettabladid.indd 1 22/02/2021 17:48:57
30 Lífið 3. júní 2021 FIMMTUDAGUR