Fræðaþing landbúnaðarins - 13.02.2009, Page 26
24 | FRÆÐAÞING LANDBÚNAÐARINS 6, 2009
3500
3000
2500
“2 2000
c
‘O
1500
1000
500
0
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
m Kostnaður opinbers Ijármagns ■ Allratap \agna tollMsmdar
Mynd 11. Þróun þjóðhagslegs kostnaðar vegna landbúnaðar á verðlagi hvers árs.
(Gögn 2008 byggja á spá um hlutfallslegt verðlag og útgjöld ríkisins til
landbúnaðarmála).
Allratap vegna beinna tilfærslna, sem kallað er kostnaður opinbers ijarmagns á mynd
11, hefúr verið vaxið nokkuð stöðugt um 1 til 1,5 milljarða króna á ári í takt við
útgjöld ríkisins til málaflokksins. Hins vegar hafa verið miklar sveiflur í allratapi
vegna tollverndar vegna sveiflu í gengi krónunnar og ólíkrar þróunar verðlags hér á
landi og í nágrannalöndunum, eins og vikið var að hér að framan. Þetta tap hefúr að
jafnaði verið milli 0,5 til 2,2 milljarðar, ef frá er talið árið 2008 þegar ekkert allratap
varð vegna tollverndarinnar. Heildarkostnaður hefur því verið á bilinu 1,5 og 3,2
milljarðar á ári.
Niðurstöður þessarar skýrslu benda til þess að umtalsverður þjóðhagslegur kostnaður
hljótist af aðgerðum stjómvalda í landbúnaðarmálum. Þessi kostnaður er þó aðeins
brot af umfangi tilfærslnanna sem eiga sér stað vegna aðgerða stjómvalda. Ósvarað er
þeirri spumingu hvort sá ábati sem hugsanlega hlýst af aðgerðunum réttlætir
kostnaðinn. Niðurstöðumar sýna að þjóðhagslegur kostnaður vegna tollverndarinnar
er hlutfallslega mun minni en kostnaður vegna beinna tilfærslna. Þetta bendir til þess
að aðgerðir sem fela í sér takmarkaðan en frjálsan markað, s.s. markað sem nýtur
tollvemdar en er annars án afskipta, sé ódýrari leið til að tryggja tilfærslur til bænda
en beinar yfírfærslur á fjármagni.
Heimildir:
Atkinson, A. B. and N. H. Stem, 1974. Pigou, Taxation and Public Goods. Review of Economic
Studies, 41, 119-128.
Browning, E. K., 1976. The Marginal Cost of Public Funds. Journal of Political Economy, 84, 283-
298.
Bullock, D.S. and Salhofer, K, 2003. Judging Agricultural Policies: A Survey. Agricultural Economics.
28(3):225-243.