Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 1
2. tölublað 2021 ▯ Fimmtudagur 28. janúar ▯ Blað nr. 579 ▯ 27. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Þyngsta ungneytið 2020 var Angus/Limousine blendingur frá Gunnbjarnarholti – vó tæplega 516 kg við slátrun, en fimm ungneyti voru yfir 450 kg og þar af eitt alíslenskt Þyngsta ungneytið, sem slátrað var á árinu 2020, var naut nr. 2369 í Gunnbjarnarholti í Eystrihreppi. Sá gripur var holdagripur, 62,5% Angus og 25% Limousine, undan Anga 95400 og vó 515,7 kg er honum var slátrað við 28,8 mánaða aldur. Þetta kemur fram í skýrslu- haldi nautakjötsframleiðslunnar hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) fyrir árið 2020 sem birt er í Bændablaðinu í dag. Skýrsluhaldið nær til 112 búa, en holdakýr af erlendu kyni voru á 79 þessara búa. Milli ára fjölgar búunum í skýrslu- haldinu um fimm, en búum þar sem er að finna holdakýr af erlendu kyni fjölgar um sex. Ungneyti, eins og rætt er um í skýrslunni, eru gripir sem fargað er við 12–30 mánaða aldur. Fimm ungneyti yfir 450 kg, þar af eitt alíslenskt Þyngsta nautið fór í UN U4- flokk. Fimm ungneyti náðu yfir 450 kg fallþunga á árinu 2020 en þau voru frá þremur búum, Gunnbjarnarholti í Eystrihreppi, Breiðabóli á Svalbarðsströnd og Nýjabæ undir Eyjafjöllum. Athygli vekur að gripur númer 1244 á þessum lista kom frá Breiðabóli á Svalbarðsströnd og var alíslenskur, sonur Tanks 15067. Þetta bú er þekkt fyrir gott eldi gripa og afkvæmi Tanks virðast búa yfir mikilli vaxtargetu. Kúm fjölgaði um 480 Kýr á þessum búum voru við uppgjör ársins 2.851 talsins, sem er fjölgun um 480 frá árinu áður. Meðalfjöldi kúa á búi var 25,5 samanborið við 22,2 árið áður og reiknast þessar kýr yfir í 21,7 árskýr á bú en voru 18,1 árið 2019. Alls voru skráðir 2.380 burðir á þessum búum á árinu 2019, sem jafngildir 0,83 burðum/kú. Þetta er fjölgun um 436 burði og aukning um 0,1 burð á kú milli ára. 48 tonna aukning á kjötframleiðslu milli ára Heildarframleiðsla ársins á þessum 112 búum nam um 608 tonnum, sem er aukning um 48 tonn milli ára. Þetta þýðir að þar eru framleidd nálægt 18% alls nautgripakjöts á landinu. Meðalframleiðsla á bú var 5.432 kg en heildarfjöldi slátraðra gripa var 2.395. Sambærilegar tölur frá fyrra ári eru 5.237 kg og 2.278 gripir. Meðalfallþungi 211,5 kg Meðalfallþungi kúa frá þessum búum var 211,5 kg, en hann reyndist 205,9 kg árið áður og meðalþungi ungneyta var 262,0 kg en þau vógu til jafnaðar 252,6 kg 2019. Til jafnaðar var þeim fargað 734,8 daga gömlum, eða 4,8 dögum yngri að meðaltali en á árinu 2019. Það jafngildir vexti upp á 342,0 g/dag, reiknuðum út frá fallþunga, en sambærileg tala frá fyrra ári var 325,8 g/dag. Til sam- anburðar var slátrað 9.051 ungneyti á landinu öllu sem vógu 250,3 kg að meðaltali við 745,3 daga aldur. Til samanburðar var á árinu 2019 slátrað 9.721 ungneyti sem vógu að meðaltali 243,8 kg við 744,3 daga aldur. Þessi sérhæfðu bú sem yfirlitið nær til ná því gripunum heldur þyngri við lægri aldur að jafnaði. Í heildina voru ungneytin þyngri en árið áður, enda alin að meðaltali aðeins lengur. /HKr. – Sjá nánar á bls. 38. Naut númer 2369 í Gunnbjarnarholti í Eystrihreppi var þyngst allra ungneyta sem felld voru á árinu 2020, eða 515,7 kg. Snjó kyngdi niður á norðanverðu landinu um liðna helgi. Jafnfallinn snjór á Akureyri eftir törnina var samkvæmt opinberum mæli við lögreglustöðina yfir 50 sentímetrar. Tilheyrandi tafir urðu á umferð, m.a. í kjölfar snjóflóða sem féllu yfir vegi. Miklir snjóhaugar safnast saman hér og þar þegar búið er að moka götur og plön, börnunum til mikillar gleði, því haugarnir þykja hið besta leiksvæði. Mynd / Margrét Þóra Þórsdóttir Vigdís Häsler ráðin nýr framkvæmdastjóri BÍ Vigdís Häsler lögfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, en Sigurður Eyþórsson hætti sem framkvæmdastjóri um síðustu áramót eftir 13 ára starf fyrir samtökin. Vigdís tekur við af Oddnýju Steinu Valsdóttur, vara- formanni Bændasamtakanna, sem hefur verið starfandi fram- kvæmdastjóri í janúar. Vigdís var starfsmaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins á Alþingi þar sem hún kom að undirbúningi fyrir þingmenn við gerð þingmála. Þá var Vigdís aðstoðarmaður samgöngu- og sveit- arstjórnarráðherra 2017 og starf- aði hún einnig sem lögmaður hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem hún sinnti undirbúningi og gerð umsagna um lagafrum- vörp og önnur þingmál og tók þátt í samskiptum við Alþingi. Einnig annaðist hún lögfræðilega ráðgjöf og upplýsingagjöf til sveitarstjórn- armanna. Auk þess sem hún starf- aði í nokkur ár sem lögmaður hjá Lögmönnum Höfðabakka. Hún lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri 2006, meistaraprófi 2008 og ári seinna hlaut hún málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Árið 2013 lauk hún LLM-prófi frá University of Sussex í Bretlandi. Vigdís hefur setið í stjórnum félagasamtaka og í kjör- stjórn Garðabæjar fyrir kosningar til alþingis- og sveitarstjórnar og forsetakosningar. Vigdís mun hefja störf í byrjun febrúar. /VH Vigdís Häsler, nýr framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Íslenskt góðgæti 36–3726 Fæddist með skógarbakteríuna og hefur kennt tálgun í rúm tuttugu ár 24 Verður fyrsta matvara sinnar tegundar í heiminum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.