Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 41 Önnur í röðinni árið 2020 var Ösp 1280 í Birtingaholti 4 í Hrunamanna hreppi, undan Sóla 1667281-1016, Ássyni 02048 og móðurfaðir er Gustur 09003. Ösp mjólkaði 14.062 kg með 4,54% fitu og 3,61% próteini en sínum fjórða kálfi bar hún þann 29. janúar 2020. Hún fór hæst í 53,7 kg dagsnyt á árinu 2020 en skráðar æviafurðir hennar eru 36.477 kg. Þriðja nythæsta kýrin var Merlin 2268 í Lambhaga á Rangárvöllum, undan 1645281-2018, syni Húna 07041 og móðurfaðir er Lögur 07047. Nyt hennar á árinu var 13.898 kg með 4,19% fitu og 3,50% próteini. Hún bar sínum öðrum kálfi 28. nóvember 2019, fór hæst í 50,0 kg dagsnyt og skráðar æviafurðir hennar eru 20.370 kg. Fjórða í röðinni var Píla 1288 í Garði í Eyjafirði, dóttir Afla 11010 og móðurfaðir Kraki 09002. Hún mjólkaði 13.650 kg með 3,30% fitu og 3,15% próteini. Hún bar fjórða sinni 14. desember 2019, fór hæst í 52,8 kg dagsnyt á árinu og skráðar æviafurðir eru 52.760 kg. Svo skemmtilega vill til að þetta er annað árið í röð sem Píla er fjórða afurðahæsta kýrin á landsvísu. Fimmta í röðinni var Rauðsól 616 á Skíðbakka 1 í Landeyjum, dóttir Laufáss 08003 og móðurfaðir er Salómon 04009. Hún bar þriðja kálfi sínum 4. desember 2019 og fór hæst í 45,3 kg dagsnyt en hún skilaði samtals 13.413 kg á árinu með 4,74% fitu og 3,60% próteini. Skráðar æviafurðir eru 31.063 kg. Alls skiluðu 126 kýr afurðum yfir 11.000 kg og þar af 34 yfir 12.000 kg. Árið 2019 náðu 130 kýr nyt yfir 11.000 kg. Flækja 376 í Viðborðsseli með mestar æviafurðir Af núlifandi kúm stendur Flækja 376 í Viðborðsseli á Mýrum í Hornafirði efst allra í æviafurðum. Flækja er fædd í Árbæ í sömu sveit í desember 2006 en flutti sig um set í byrjun síðasta árs. Hún er dóttir Fonts 98027 og móðurfaðir hennar er Soldán 95010. Hún hafði nú um áramótin mjólkað 91.803 kg á 11 mjólkurskeiðum en fyrst bar hún 28. október 2008 og síðast þann 1. desember 2019. Flækja er glæsikýr en hún hlaut á sínum tíma 89 stig í útlitsdómi, hálfsystir Jökuls 09001 að móðurinni til. Dætur hans líktust ekki föðursystur sinni en þær mjólkuðu undir meðallagi og voru fremur þungar í mjöltum. Skammt á hæla Flækju kemur Gullbrá 357 á Hóli við Dalvík en hún er fædd á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal í apríl 2004 en seld að Hóli sem smákálfur. Þessi kýr er dóttir Hvítings 96032 og móðurfaðir er Klinton 1513611- 0921, sonur Búanda 95027. Gullbrá bar fyrst í október 2006 og síðast nú í desember síðastliðnum en hefur á ævi sinni, nú komin á 10. mjólkurskeiðið, náð að mjólka 89.471 kg. Afrekskýrin Jana 432 á Ölkeldu 2 í Staðarsveit á Snæfellsnesi var felld á síðasta liðnu ári eftir ákaflega farsælan feril. Hún komst í hóp þeirra örfáu íslenskra kúa sem rofið hafa 100 tonna múrinn í æviafurðum undir lok ársins 2019. Jana 432 var fædd 8. mars 2005, stórættaður gripur verandi dóttir Stígs 97010 og móðurfaðir hennar var Kaðall 94017. Hún bar sínum fyrsta kálfi þann 18. september 2007 og níu sinnum eftir það, síðast 28. desember 2017. Mestum afurðum á einu ári náði Jana árið 2013 þegar hún mjólkaði 10.372 kg en æviafurðir hennar enduðu í 101.359 kg. Að lokum fór svo að Jana festi ekki fang og var felld vegna elli þann 13. maí síðastliðinn. Afkomendur Jönu eru fjölmargir víða um land en hún skilaði nauti á stöð sem fékk dóm til framhaldsnotkunar sem reynt naut. Þar er um að ræða Öllara 11066 en faðir hans var Ófeigur 02016. Núverandi Íslandsmet í ævi- afurðum á Mókolla 230, dóttir Snarfara 93018, á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð, 114.635 kg. Mjólkurframleiðendum öllum, en ekki síst ábúendum á Búrfelli í Svarfaðardal og Ytri-Hofdölum í Viðvíkursveit, óskum við til ham- ingju með glæsilegan árangur og þökkum gott samstarf á nýliðnu ári. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Fjöldi Afurðir Bú í árslok 2020 Skýrsluhaldarar árskúa kg/árskú 650221 Búrfell Guðrún og Gunnar 42,6 8.579 870736 Hurðarbak Hurðarbaksbúið ehf 51,7 8.445 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 27,7 8.357 860530 Kirkjulækur 2 Eggert, Jóna, Páll og Kristín 53,3 8.353 650228 Göngustaðir Göngustaðir ehf. 56,3 8.312 860326 Skíðbakki Rútur og Guðbjörg - Skíðbakka 1 57,7 8.268 870909 Skáldabúðir 2 Gunnbjörn ehf 122,3 8.243 871077 Dalbær 1 Arnfríður Jóhannsdóttir 58,7 8.199 651260 Svertingsstaðir 2 Hákon og Þorbjörg 63,6 8.189 871058 Hrepphólar Hrepphólar ehf. 62,8 8.186 650238 Grund Friðrik Þórarinsson 54,2 8.166 660220 Syðri-Grund Stefán og Steinunn 47,0 8.161 660553 Hrafnsstaðir Flosi og Unnur 47,4 8.030 570804 Ytri-Hofdalir Ytri-Hofdalir ehf. 30,9 8.019 Bú þar sem meðalnyt var yfir 8.000 kg/árskú Árs- Prót- Kýr Faðir afurðir ein Fita Bú 1464861-0465 Smuga 02032 Síríus 14.565 3,34 4,89 570804 Ytri-Hofdalir 1280 Ösp 1016 Sóli 14.062 3,61 4,54 871065 Birtingaholt 4 2268 Merlin 2018 13.898 3,50 4,19 860718 Lambhagi 1288 Píla 11010 Afli 13.650 3,15 3,30 651215 Garður 0616 Rauðsól 08003 Laufás 13.413 3,60 4,74 860326 Skíðbakki 0844 Svipa 13017 Víkingur 13.293 3,33 4,09 750510 Hallfreðarstaðir 2 1665491-2106 Fata 12090 Sjarmi 13.200 3,41 4,04 870909 Skáldabúðir 2 1480 Merkel 10081 Úranus 13.015 3,63 3,61 660104 Gautsstaðir 1286 Láka 11022 Vatnar 12.943 3,61 4,39 870909 Skáldabúðir 2 1662641-0471 Eyja 06024 Dynjandi 12.861 3,47 5,58 870610 Oddgeirshólar 4 465 05008 Hryggur 12.726 3,43 4,05 660220 Syðri-Grund 0625 Fanney 07047 Lögur 12.713 3,16 4,01 871006 Foss 0534 Malla 13044 Kjáni 12.640 3,29 4,26 650228 Göngustaðir 0673 Halla 10094 Kistill 12.625 3,30 3,54 570627 Flugumýri 2185 13017 Víkingur 12.582 3,72 4,35 860718 Lambhagi 2037 Komma 1754 Laukur 12.582 3,25 4,12 770190 Flatey 1676301-1000 13044 Kjáni 12.523 3,44 3,98 870909 Skáldabúðir 2 0573 Sól 07046 Toppur 12.505 3,21 3,61 350802 Ásgarður Nythæstu kýrnar árið 2020 Smuga 465 í Ytri-Hofdölum var nythæst allra kúa á landinu á árinu 2020 með 14.565 kg í ársafurðir. Sem er mesta nyt sem skráð hefur verið á einu almanaksári. Mynd / Þórdís Halldórsdóttir GRÓÐURHÚS TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.