Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202148 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Ingþór Kristmundsson og Ingibjörg Jónsdóttir kaupa Gilá í Vatnsdal í Húnavatnshreppi árið 1999 og hefja smábúskap ásamt því að vinna utan bús. Árið 2003 ákveða þau að stækka við sig og kaupa af foreldrum Ingibjargar bústofn og jörðina Marðarnúp sem er næsta jörð við Gilá. Býli: Gilá. Staðsett í sveit: Vatnsdal í Húnavatnshreppi. Ábúendur: Ingþór Kristmundsson og Ingibjörg Jónsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Eigum fjögur uppkomin börn, tvö þeirra eiga heima í sveitinni. Einn hundur er á bænum sem heitir Stáli. Stærð jarðar? 2.380 ha. Gerð bús? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? Erum með 300 kindur, nokkrar geitur og hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hinn hefðbundni vinnudagur er að gefa búfénaðinum eftir skólaakstur á morgnana og aftur seinni part dags. Annars er enginn dagur eins í sveitinni og störfin fjölbreytt. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburður er alltaf heillandi og gefandi. Leiðinleg bústörf eru ekki til, bara misskemmtileg. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Vonandi verður búið að virkja bæjarlækinn og skógur farinn að vaxa í hlíðunum. Hvar teljið þið að séu helstu tæki­ færin í framleiðslu á ís lensk um búvörum? Á innanlandsmarkaðinum, bæta framsetningu vörunnar með áherslu á gæði og hreinleika. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Egg og beikon. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Saltkjöt og baunir. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það gleymist seint þegar við hjónin ákváðum að endurnýja girðingu í kringum grænmetisgarðinn okkar en í hólfi þar við voru nokkrir stálpaðir nautkálfar. Eitthvað þurfti karlinn að bregða sér frá og átti konan (sem var óvön nautgripum) að standa vaktina á meðan ef kálfarnir myndu nú birtast. Fyrirmælin voru þau að dangla aðeins í hausinn á þeim og þeir færu með það sama. Kemur hersingin um leið og karlinn er farinn, konan danglar priki í hausinn á þeim áræðnasta sem verður bandóður, krafsar, bölvar og froðufellir, svo reiður að hann bruddi nokkra blómapotta sem voru þarna á stangli. Sem betur fer var karlinn fljótur í förum og birtist sem himnasending á ögurstundu og allt endaði vel. Rauðrófubrauð, ýsa og ristaður aspas Matarmikið og gott brauð sem virkar jafn vel í morgunmat og í samlokur. Helst með miklu grænmeti og góðum osti. Gott til að fá holl næringarefni og járn úr rauðrófum sem er ofurfæða. Rauðrófubrauð Hráefni: › 200 g súrsaðar rauðrófusneiðar (safinn þurrkaður af) › 300 g hveiti › 30 g dl sólblómafræ › 150 g dl vatn › 75 g dl dökkt brauðsíróp › 120 g fínt rúgmjöl › 2/3 pakki þurrger (12 g) › 20 g salt › 200 g brauðsúr ef hann er til (má sleppa) Aðferð Blandið öllum innihaldsefnum saman. Keyrið deigið á miðlungshraða í 8 mínútur / hnoðið það hratt í 5 mínútur. Látið deigið lyfta sér við stofuhita í 2 klukkustundir. Smyrjið og stráið hveiti í brauðform. Brjótið deigið saman og rúllið því í rúgmjöli. Setjið deigið í mótið og látið það lyfta sér í 60–90 mínútur. Hitið ofninn við 250 gráður. Setjið í mótið, úðið vatni inn í ofninn og lækkið hitann í 190 gráður. Bakið í um það bil 50 mínútur. Takið brauðið úr forminu og látið það hvíla í allt að sólarhring. Möndluflöguhjúpuð ýsa Þetta er betri útgáfan af hinum vinsælu fiskbitum sem eru hjúpaðir stökkum hjúp. Bara heilbrigðara og bragðbetra að gera sjálfur sína „fiskifingur“. Brjótið möndlurnar í lokanlegum plastpoka með kökukefli eða stuttlega í matvinnsluvél. Hráefni: › 2 egg › 2 tsk. Dijon sinnep › 1/2 tsk. af salti og pipar › 2 1/4 bolli möndluflögur (ristaðar og muldar) › 500 g ýsa, sneiðar eða bitar, roð- og beinlaust › Sítrónubátar eða fersk steinselja (valfrjálst) Remúlaði › 3 msk. majónes › 1 1/2 msk. piparrót › 3 msk. ferskt estragon, saxað eða þurrkað (1msk.) › 2 msk. ferskur sítrónusafi › 1/4 bolli súrar gúrkur, skornar í fína teninga Í lítilli skál, þeytið saman eggjum, sinnepi, salti og pipar. Setjið möndlur í aðra skál. Setjið ýsu í eggjablönduna, hristið af umfram egg. Svo er bitunum blandað saman við möndlurnar. Bakið ýsubitana (fiskstrimla) á bökunarplötu með smjörpappír í 200 gráðu heitum ofni þar til fiskur brotnar auðveldlega niður í flögur, í 10 til 12 mínútur. Berið fram strax og skreytið með steinselju og sítrónubátum, ef vill. Á meðan ýsubitarnir eru bakaðir er remúlaðið gert. Þeytið majónesið, piparrót, estragon, sítrónusafa og súrar gúrkur saman. Berið fram með ýsubitum. Ljúffengur ristaður aspas með fullkominni auðveldri kryddblöndu og rifnum parmesanosti › 1 búnt aspas (endar fjarlægðir) › 2 msk. ólífuolía › 1 msk. ósaltað smjör, brætt › 1/2 tsk. fínt sjávarsalt, þurrkað ítalskt krydd › 1/4 tsk. hvítlauksduft, pipar › 1/3 bolli af pankó brauðmylsnu (eða brauðraspi ) › 1/3 bolli + 2 msk. nýrifinn parmesan- ostur, aðskilinn Hitið ofninn í 200 gráður. Notið stærstu bökunarplötuna, þvoið undir köldu vatni og þurrkið alveg (gerið þetta fljótt með því að velta spjótunum á milli tveggja eldhúshandklæða). Smellið rótinni af aspasnum, hann brotnar þar sem hann er mjúkur og hendið harða endanum við rótina. Setjið aspasspjótin beint á stóru pönnuna, penslið með ólífuolíu eða bræddu smjöri. Bætið saltinu, ítalska kryddinu, hvítlauksduftinu og piparnum saman við. Veltið þar til aspasinn er vel húðaður. Það þarf nóg af olíu eða smjöri svo pankóið og parmesan festist við; bætið við matskeið af olíu til viðbótar ef þörf krefur. Stráið loks pankó-raspinu (asískur brauðraspur) og 1/3 bolla rifnum osti yfir. Veltið aftur varlega til að tryggja að pankóið og parmesanhúðin festist við. Dreifið aspasnum í eitt jafnt lag; verið viss um að hann skarist ekki. Bakið í 7–11 mínútur, eða þar til aspasinn er létt brúnaður, mjúkur og parmesanosturinn bráðnaður (þetta getur verið mismunandi eftir ofnhita og stærð aspasins). Takið úr ofninum og stráið tveimur matskeiðum af parmesanosti yfir á heitan aspasinn. Njótið strax meðan heitt er, með góðu salati. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Gilá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.