Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202126 LÍF&STARF Ólafur Oddsson kennir fólki að tálga í tré: Fæddist með skógarbakteríuna og hefur kennt tálgun í rúmlega tuttugu ár Ólafur Oddsson hefur verið með tálguskóla og námskeið í tengsl- um við fjölmarga skóla fyrir nýja leiðbeinendur í um tvo áratugi. Á vegum hans hefst t.d. heilsárs leiðbeinendanámskeið í stað námi og fjarnámi í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands nú í febrúar. Ólafur lærði uppeldisráðgjöf í Noregi og vann m.a. við starfs- þjálfun ungmenna í skógi eftir námið. Hann starfaði síðan í Reykjavík með börnum og ung- lingum í vanda, m.a. sem for- stöðumaður Rauða kross hússins í fimm ár. „Fyrsta „Lesið í skóginn og tálgað í tré“-námskeiðið var haldið í Haukadalsskógi árið 1999. Það varð til með samstarfi okkar Guðmundar Magnússonar, þá smíðakennara á Flúðum, en hann sótti tálgutæknina og ferskar við- arnytjar á námskeiði hjá sænska Heimilisiðnaðarfélaginu. Þar höfðu svokölluðu „öruggu hnífs- brögðin“ orðið til og borist á milli kynslóða m.a. vegna tálgunar á „dalahestinum“ svokallaða. Við kenndum saman við Guð- mundur í mörg ár vítt og breitt um landið en unnum jafnframt að því að tengja tálgunina við skógarhirðu og nytjar í skólastarfi, fyrst í Flúðaskóla en síðan í gamla Kennó og í öllum landshlutum var unnið með skólum sem tóku þátt í þróunarstarfinu,“ segir Ólafur Oddsson, aðspurður hvenær hann hafi fyrst komið að tálgunámskeið- um en hann er einn færasti leið- beinandi landsins á þessu sviði. Valnámskeið hjá Háskóla Íslands Ólafur segir að Lesið í skóginn-nám- skeiðið sé búið að vera valnámskeið í grunn námi kennara menntunar hjá Mennta vísindasviði Háskóla Íslands í nær 20 ár. Á vorönn 2021 eru til dæmis 32 nemendur á nám- skeiðinu og komust færri að en vildu. Námskeiðið er líka í boði á meistarastigi og heitir „Útikennsla og græn nytjahönnun“. „Síðan við Guðmundur byr j uð- um hafa Lesið í skóginn-nám skeiðin teygt sig inn í fjölbreytta kima sam- félagsins. Í leik- og grunnskólastarfi, þar sem skógurinn hefur orðið að vettvangi skógartengds útináms, tengsl skólastiga, s.s. með ver- kefninu „Gullin í grenndinni“ í Árborg og síða í Flóaskóla. Þá má bæta við „Tálgað í takt við nátt- úruna“ í Listaháskóla Íslands og á margs konar námskeiðum hjá Landbúnaðarháskólanum enda hefur Garðyrkjuskólinn/Lbhí stutt okkur Guðmund í námskeiðahaldinu fyrir almenning og einstaka hópa, s.s. skógarbændur, sumarhúsafólk og fyrir fólk í mörgum starfsgreinum og hópum,“ segir Ólafur. Fæddist með skógarbakteríuna En hvernig byrjaði þetta allt saman, af hverju skógrækt og þessi mikli áhugi á nytjum skógarins? „Já, þú segir nokkuð, ég fæddist með skógarbakteríu og vann á sumr- in við skógrækt með námi. Ég lærði síðan uppeldisráðgjöf í Noregi og vann við starfsþjálfun ungmenna í skógi eftir námið og starfaði síðan í Reykjavík með börnum og ung- lingum í vanda, m.a. sem forstöðu- maður Rauða kross hússins í fimm ár, sem var neyðarathvarf fyrir börn og unglinga,“ segir Ólafur. „Slæmur árangur barna og unglinga í námi var oft upphafið að brotthvarfi úr skóla með aukinni hættu á vímuefnaneyslu og meiri vandamálum. Ég hef alltaf verið upptekinn af því að auka fjölbreytni í viðfangs- efnum í skólastarfi, gefa börnum og unglingum tækifæri til að tengjast náttúru og fást við verkefni tengd henni. Eftir að ég hætti sem for- stöðumaður Rauða kross hússins fór ég að vinna að kynningar- og fræðslumálum hjá Skógrækt ríkis- ins og fléttaði þar saman uppeldi og skógrækt með verkefninu „Lesið í skóginn“ sem margir skólar tóku þátt í og gerðu skólastarfið fjölbreyttara og fyrir suma nemendur árangurs- ríkara með skógartengdu útinámi. Það hefur síðan þróast í þá átt að kenna tálgun og hitt og þetta tengt skógarmenningu á fjölbreyttum nám- skeiðum og í ólíkum hópum með fjölbreyttu fólki.“ Einföld áhöld og ferskur og mjúkur viður Ólafur er því næst spurður hvaða aðferðir hann noti helst á nám- skeiðunum og hvað hann sé aðallega að kenna fólki. „Það sem vekur áhuga og ánægju fólks á námskeiðunum eru einföld áhöld, kennsla um notkun þeirra og umhirða. Einnig góð handverks- og tálgutækni, ferskur og mjúkur viður. Sköpunarþátturinn skiptir líka miklu máli og tengslin við skóg- inn sem myndast þegar fólk vinnur í skóginum við grisjun og fær fræðslu um vistfræði skógarins, fjölbreytt líf- ríki, ólíkar trjátegundir og uppsker gripi sem unnir eru úr ólíkum trjá- tegundum til ólíkra nota. Það getur svo yfirfært það á sitt eigið umhverfi, s.s. garð, sumarhúsalóð og skóg. Þessi tenging við nærumhverfi þátttakenda gefur lífsfyllingu sem Endurmenntun Landbúnaðarháskólans og Ólafur Oddsson verða með námskeiðið „Tálgað í tré“, sem ætlað er þeim sem vilja verða leiðbeinendur á slíkum námskeiðum. Námskeiðið stendur yfir allt árið 2021 en það byrjar dagana 12. og 13. febrúar. Þátttakendur læra að lesa í skógarefni og kynnast nýtingarmöguleikum íslenskra viðartegunda. Örugg hnífsbrögð, sem auka afköst og öryggi í tálgun, verða líka kennd og hvernig á að umgangast og hirða bitáhöld. Ólafur er verkefnisstjóri „Lesið í skóginn“ og fyrrverandi fræðslufulltrúi Skógræktarinnar. Mynd / Úr einkasafni Það er hægt að gera ýmsa fallega hluti úr trjánum en nú á að þjálfa upp tíu nýja leiðbeinendur til að kenna fólki réttu handbrögðin við tálgun og vinnslu trjáafurða. Mynd / Ólafur Oddsson Sandskófla úr blæösp eftir Ólaf. Mynd / Ólafur Oddsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.