Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 20212 Samkvæmt yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) nam heildarinnvigtun síð- asta árs 151,2 milljónum lítra og hefur því dregist lítillega saman frá árinu 2019, eða um 0,4%. Í sölu á einstökum vöruflokkum nam sala á mjólk og sýrðum vörum 38.049 tonnum. Þá voru seld á árinu 3.233 tonn af rjóma, 2.740 tonn af skyri, 2.328 tonn af viðbiti (smjöri og smjörva), 5.994 tonn af ostum og 1.144 tonn af dufti. Samdráttur varð í sölu á mjólk og sýrðum vörum á árinu 2020 og nam hann 1,8% miðað við söluna á árinu 2019. Örlítil aukning var hins vegar í sölu á rjóma, eða 0,5%. Í öðrum afurðategundum var hlut- fallslega mestur samdráttur í sölu á ostum, eða sem nam 3,1%. Þá nam samdráttur í sölu á viðbiti 2,6%, samdráttur í dufti nam 2,5% og samdráttur í skyrsölunni nam 0,9%. Eflaust má rekja samdrátt í sölu á mjólk og mjólkurafurðum til ástandsins vegna COVID- 19 faraldursins og hruns í fjölda ferðamanna. Hrun í ferðamannageiranum og mikill samdráttur á ýmsum sviðum þjóðfélagsins virðist samt hafa haft furðu lítil áhrif á mjólkuriðnaðinn. Bendir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda, reyndar á þessa staðreynd í grein á vefsíðu félagsins, naut.is. Þar segir m.a.: „Samkvæmt nýjum stuðlum var sala ársins 2020 á fitugrunni 142,8 milljónir lítra sem er samdráttur um 1,5% frá árinu áður. Það verður að teljast ansi góður árangur þegar litið er til ástandsins á markaði vegna COVID-19. Sala mjólkur á próteingrunni endaði í 122,5 milljónum lítra, sem er heldur minna en hún var árið 2019 og munar þar um 3,8%. Þetta er þriðja árið í röð sem sala á próteingrunni lækkar, en er það í samræmi við mánaðarlegar tölur undanfarið og kemur því ekki á óvart. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2020 auk júnímánaðar var framleiðslan meiri en í sama mánuði árið áður. Hins vegar voru allir aðrir mánuðir ársins með minni framleiðslu en árið áður. Endaði árið sem fyrr segir í 0,4% minni framleiðslu en árið 2019. Alls nam innvigtun mjólkur í desember 11,9 milljónum lítra, sem er 4,1% minni framleiðsla en í desember í fyrra.“ Margrét bendir einnig á helstu lykiltölur í mjólkurframleiðslu og -sölu á árabilinu frá 2005 til 2020. Þar kemur m.a. fram að mikill stöðugleiki hefur verið í innvigtun mjólkur undanfarin fimm ár. Þannig var innvegin mjólk 15,2 milljónir lítra árið 2016, 151,1 milljón árið 2017, 152,4 milljónir árið 2018, 151,8 milljónir árið 2019 og 151,2 milljónir lítra árið 2020. Sérstök athygli er einnig vakin á því að umreiknaðar tölur fyrir sölu og birgðir á fitu- og próteingrunni eru í fyrsta sinn samkvæmt nýjum ríkisstuðlum sem gilda frá 1. október 2020 og voru samþykktir á fundi Framkvæmdanefndar búvörusamninga föstudaginn 13. nóvember 2020. /HKr. Nythæsta kýrin á landinu árið 2020 var Smuga 1464861-0465 í Ytri-Hofdölum í Viðvíkursveit í Skagafirði. Hún mjólkaði 14.565 kg með 4,89% fitu og 3,34% próteini að því er fram kemur í skýrsluhaldi Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, RML. Smuga bar sínum sjötta kálfi 3. nóvember 2019. Hæsta dagsnyt Smugu á nýliðnu ári var 52 kg og var hún í yfir 40 kg dagsnyt fram á sumar eða til loka júnímánaðar. Smuga er fædd á Skúfsstöðum í Hjaltadal í maí 2011 en flutti sig um set rétt fyrir fyrsta burð sem var hinn 3. ágúst 2013. Skráðar æviafurðir hennar voru 67.865 kg um síðustu áramót en á yfirstandandi mjólkurskeiði er hún komin í 17.322 kg mjólkur. Önnur í röðinni árið 2020 var Ösp 1280 í Birtingaholti 4 í Hruna- mannahreppi sem mjólkaði 14.062 kg á nýliðnu ári. Mjólkin var með 4,54% fitu og 3,61% próteini. Ösp bar sínum fjórða kálfi þann 29. janúar 2020. Hún fór hæst í 53,7 kg dagsnyt á árinu 2020 en skráðar æviafurðir hennar eru 36.477 kg. Þriðja nythæsta kýrin var Merlin 2268 í Lambhaga á Rangárvöllum. Nyt hennar á árinu var 13.898 kg með 4,19% fitu og 3,50% próteini. Hún bar sínum öðrum kálfi 28. nóvember 2019 og fór hæst í 50,0 kg dagsnyt. Skráðar æviafurðir hennar eru 20.370 kg. Flækja 376 í Viðborðsseli með mestar æviafurðir Af núlifandi kúm stendur Flækja 376 í Viðborðsseli á Mýrum í Hornafirði efst allra í æviafurðum. Flækja er fædd í Árbæ í sömu sveit í desember 2006 en flutti sig um set í byrjun síðasta árs. Hún hafði nú um áramótin mjólkað 91.803 kg á 11 mjólkurskeiðum en fyrst bar hún 28. október 2008 og síðast þann 1. desember 2019. Flækja er glæsikýr en hún hlaut á sínum tíma 89 stig í útlitsdómi. Skammt á hæla Flækju kemur Gullbrá 357 á Hóli við Dalvík en hún er fædd á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal í apríl 2004. Flækja var seld að Hóli sem smákálfur. Gullbrá bar fyrst í október 2006 og síðast nú í desember síðastliðnum en hefur á ævi sinni, nú komin á 10. mjólkurskeiðið, náð að mjólka 89.471 kg. Afrekskýrin Jana felld í fyrra Afrekskýrin Jana 432 á Ölkeldu 2 í Staðarsveit á Snæfellsnesi var felld á síðastliðnu ári eftir ákaf- lega farsælan feril. Hún komst í hóp þeirra örfáu íslenskra kúa sem rofið hafa 100 tonna múrinn í æviafurðum undir lok ársins 2019. Jana 432 var fædd 8. mars 2005, stórættaður gripur verandi dóttir Stígs 97010 og móðurfaðir hennar var Kaðall 94017. Jana bar sínum fyrsta kálfi þann 18. september 2007 og níu sinnum eftir það, síðast 28. desember 2017. Mestum afurðum á einu ári náði Jana árið 2013 þegar hún mjólkaði 10.372 kg en æviafurðir hennar enduðu í 101.359 kg. Að lokum fór svo að Jana festi ekki fang og var felld vegna elli þann 13. maí síðastliðinn. Afkomendur Jönu eru fjölmargir víða um land en hún skilaði nauti á stöð sem fékk dóm til framhaldsnotkunar sem reynt naut. Þar er um að ræða Öllara 11066 en faðir hans var Ófeigur 02016. Íslandsmet Mókollu frá Kirkjulæk stendur enn, eða 114.635 kg Núverandi Íslandsmet í æviafurðum á Mókolla 230, dóttir Snarfara 93018, á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð, 114.635 kg. Mestar meðalafurðir voru á Búrfelli í Svarfaðardal Mest meðalnyt eftir árskú á ný- liðnu ári, 2020, var, eins og greint var frá í síðasta blaði, hjá Guðrúnu Marinósdóttur og Gunnari Þór Þórissyni á Búrfelli í Svarfaðardal. Nyt eftir árskú reyndist 8.579 kg sem er aukning um 602 kg frá fyrra ári. Á Búrfelli er að finna legu bása- fjós með mjaltaþjóni sem tekið var í notkun vorið 2018. Kýrnar á búinu kunna greinilega vel að meta aðstöðubreytinguna en frá því að fjósið kom til notkunar hafa afurðir aukist um 1.500–1.600 kg/árskú og voru þó ekki litlar fyrir. – Sjá nánar um skýrsluhaldið í mjólkurframleiðslunni 2020 á bls. 40 og 41. /HKr. FRÉTTIR FOSSAR EINBÝLISHÚS Viltu lækka byggingar- kostnað?Fossar einbýlishús eru útfærð í einingakerfi Landshúsa. Eininga- kerfið okkar hefur undanfarin ár fengið afar góðar viðtökur og hafa húsin okkar risið um allt land með góðum árangri. Markmið okkar er að bjóða upp á lausn sem gerir fólki kleift að byggja traust hús á einfaldan og hagkvæman hátt. Val á gluggum: Timbur Ál/timbur PVC Hús á mynd er Foss 5 - 211 fm - Verð kr. 28.341.000.- Efla verkfræðistofa sér um tæknilega hönnun á öllum húsunum okkar samkvæmt íslenskri byggingarlöggjöf. STYRKUR - HAGKVÆMNI - HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is Smuga 465 í Ytri-Hofdölum var nythæst allra kúa á landinu á árinu 2020 með 14.565 kg í ársafurðir. Mynd / Þórdís Halldórsdóttir Smuga 465 í Ytri-Hofdölum í Skagafirði mjólkaði mest allra kúa á Íslandi á árinu 2020: Skilaði tæpum 14,6 tonnum og hefur mjólkað nærri 68 tonnum yfir ævina – Afrekskýrin Jana sem skilað yfir 101 tonni um ævina var felld í fyrra, en Íslandsmet Mókollu frá Kirkjulæk stendur enn í 114.635 kg Árs- Prót- Kýr afurðir ein Fita Bú 1464861-0465 Smuga 14.565 3,34 4,89 570804 Ytri-Hofdalir 1280 Ösp 14.062 3,61 4,54 871065 Birtingaholt 4 2268 Merlin 13.898 3,50 4,19 860718 Lambhagi 1288 Píla 13.650 3,15 3,30 651215 Garður 0616 Rauðsól 13.413 3,60 4,74 860326 Skíðbakki 0844 Svipa 13.293 3,33 4,09 750510 Hallfreðarstaðir 2 1665491-2106 Fata 13.200 3,41 4,04 870909 Skáldabúðir 2 1480 Merkel 13.015 3,63 3,61 660104 Gautsstaðir 1286 Láka 12.943 3,61 4,39 870909 Skáldabúðir 2 1662641-0471 Eyja 12.861 3,47 5,58 870610 Oddgeirshólar 4 465 12.726 3,43 4,05 660220 Syðri-Grund 0625 Fanney 12.713 3,16 4,01 871006 Foss 0534 Malla 12.640 3,29 4,26 650228 Göngustaðir 0673 Halla 12.625 3,30 3,54 570627 Flugumýri 2185 12.582 3,72 4,35 860718 Lambhagi 2037 Komma 12.582 3,25 4,12 770190 Flatey 1676301-1000 12.523 3,44 3,98 870909 Skáldabúðir 2 0573 Sól 12.505 3,21 3,61 350802 Ásgarður Nythæstu kýrnar árið 2020 Bændur skiluðu 151,2 milljónum lítra mjólkur 2020 – Það er um 0,4% samdráttur frá 2019, sem þykir ekki mikið í ljósi COVID-faraldursins Mismunur Mismunur 2020 2019 Lítrar prósent Janúar 12.781.216 12.299.992 481.224 3,9 Febrúar 12.407.793 11.682.536 725.257 6,2 Mars 13.667.643 12.956.364 711.279 5,5 Apríl 13.576.797 13.686.398 -109.601 -0,8 Mai 13.832.282 14.038.656 -206.374 -1,5 Júní 14.040.373 12.969.303 1.071.070 8,3 Júlí 13.197.378 13.937.810 -740.432 -5,3 Ágúst 12.116.295 12.609.749 -493.454 -3,9 September 11.472.550 11.654.482 -181.932 -1,6 Otóber 11.242.594 11.944.263 -701.669 -5,9 Nóvember 10.939.324 11.644.858 -705.534 -6,1 Desember 11.905.903 12.414.257 -508.354 -4,1 Samtals: 151.180.148 151.838.668 -658.520 -0,4 Nýting greiðslumarks á árinu: 104,3% Nýting greiðslumarks ef jöfn dreifing yfir árið: 100,0% Ár Mánuður Samanburður á innvigtun árin 2020 og 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.