Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 19
Allar nánari upplýsingar
veita starfsmenn
Ríkiskaupa í síma 530 1400
eða í gegnum netfangið
fasteignir@rikiskaup.isBorgartúni 7c, 105 Reykjavík | Sími 530 1400 | www.rikiskaup.is
AUGLÝSA EFTIRFARANDI EIGN TIL SÖLU:
VÍÐILUNDUR, 671 KÓPASKER - EINBÝLISHÚS
Víðilundur, 671 Kópasker, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar
með talið tilheyrandi lóðarréttindi. Húsið stendur á 1 ha eignarlóð.
Um er að ræða 135,8 m2 einbýlishús, byggt árið 1969. Árið 1975 var
frístandandi bílskúr byggður við húsið. Samtals stærð eignarinnar
er 178,1 m2.
Húsið er vel staðsett í Lundi í Öxarfirði í nálægð við sundlaug og
skóla. Stutt er í ýmsar náttúruperlur eins og Ásbyrgi, Hljóðakletta,
Vesturdal og Dettifoss. Auk þess eru fjölmargar vinsælar göngu-
og hlaupaleiðir í nágrenninu.
Frekari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa: www.rikiskaup.is.
Verð: 13,9 mkr.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR í flestar
gerðir dráttarvéla
BÆKUR& MENNING
Í vikunni var ný mat
reiðslubók fyrir kerfis
breytingar kynnt á veg
um Norrænu ráð herra
nefndarinnar sem er
samstarfsverkefni fjöl
margra aðila á Norð ur
löndunum, þar á meðal
Matís. Bókinni er ætlað
að sýna hvernig norrænu
löndin geta nálg ast inn
leiðingu rann sóknar og
ný sköpunar verk efna hvert
um sig og á sameigin legum
vettvangi.
Bókinni er skipt upp í
fjóra kafla, þar sem einn
fjallar um fæðu sem lausn,
annar um þá vegferð sem við
erum á, þriðji þar sem sýnt er
fram á umbreytingu og fjórði
þar sem matreiðslubókinni er
hrint í framkvæmd.
Megintillaga bókarinnar er
að við getum og verðum að
vinna að nýsköpunaraðferðum
fyrir matvælakerfi til þess að
leysa helstu samfélagslegar
áskoranir sem við stöndum frammi
fyrir. Kallað er eftir því að markmið
verði betur skilgreind í stjórnkerfum
sem geti betur stutt við fólk, plánetuna
og þjóðfélög. Matreiðslubókin hefur
innihaldsefnin, sniðmát til að þróa
inngrip, leiðbeiningar um hvernig
á að byrja og dæmi um þverfagleg
verkefni sem fólk getur notað til að
skapa eigin uppskrift að breytingum.
Samfélagslegar áskoranir
og breytingar
Matreiðslubókin býður upp á nýja
leið til að vinna með flókin og kraft-
mikil kerfi og er aðallega ætluð
fyrir nýsköpunarstofnanir land-
anna. Margir ólíkir aðilar koma að
vistkerfum nýsköpunar og á bókin
að veita dýrmæta innsýn inn í þau
hlutverk sem frumkvöðlar, samfélög
og rannsóknarstofnanir geta gegnt
til að rækta breytingar frá grunni.
Bent er á í bókinni að mikilvægasta
framlag Norðurlandanna til að ná
markmiðum Parísarsamkomulagsins
og sjálfbærum þróunarmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna sé í raun ekki
sérstök tækni, viðskiptamódel og
stefnumótun á sviði nýsköpunar.
Framlag bókarinnar sem og samstarf
Norðurlandanna, geti hins vegar
sýnt fram á hvernig sterkt opinbert
vistkerfi nýsköpunar geti unnið bug
á flóknum samfélagslegum áskor-
unum okkar tíma.
Fjórir kaflar til að hrinda
verkefnum af stað
Bókinni er skipt upp í fjóra
kafla sem eru eftirfarandi:
Kafli 1: Matvæli –
nauðsynlegt innihaldsefni
fyrir sjálfbæra þróun. Í kafl-
anum er að finna sumar af
mestu áskorunum sem þjóð-
félög heimsins glíma við
nú á tímum. Kynntir eru
til sögunnar staðir þar sem
hægt er að grípa inn í með
stefnumótandi breytingum.
Kafli 2: Við erum í veg-
ferð. Sýnt er hvernig hægt
er að færast frá stórum
áskorunum til áþreifan-
legri aðgerða og inngripa.
Kafað er dýpra í verkefni
sem byggja á verkefnum
varðandi nýsköpun í sam-
félögum og sett eru mark-
mið um umbreytingar á
kerfum í ákveðnum sam-
hengjum. Hér gefst fólki
kostur á að byrja að hanna sín eigin
verkefni.
Kafli 3: Umbreyting sýnd. Hér
eru markmið sýnd í verki með því
hvernig hægt er að skipuleggja
tilraunir og útfæra þær. Hér er
meðal annars farið í gegnum hug-
myndina um sýnikennslu með því
að nota máltíðir í skólum í Osló
sem dæmi.
Kafli 4: Matreiðslubókinni hrint
í framkvæmd. Hér er sýnt hvern-
ig fyrstu þrír kaflarnir í bókinni
vinna saman til að ryðja veginn til
framtíðar. Nú er allt tilbúið til að
skilgreina stórkostlegar áskoranir,
þróa djörf verkefni ásamt því að
skipuleggja aðgerðir þvert á kerfi
fólks og samtaka. /ehg
Matreiðslubók fyrir kerfisbreytingar
– Norrænar nýsköpunaraðferðir fyrir sjálfbær matvælakerfi