Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 15
Sveitarstjórn Húnaþings vestra:
Mikilvægt að tryggja nýtingu á bújörðum
Sveitarstjórn Húnaþings vestra
áréttar í bókun frá fundi sínum
fyrr í þessum mánuði að það
sé vilji sveitarstjórnar að jarð
ir í héraði séu seldar til búsetu.
„Mikilvægt er að tryggja nýtingu
á bújörðum og búsetu enda er slík
nýting um allt sveitarfélagið lífæð
samfélagsins“, segir í bókun sveit
arstjórnar. Tilefni bókunarinnar
er umsögn sveitarfélagsins vegna
kaupa Flaums ehf. á jörðinni
Núpsdalstungu.
Sveitarstjórn leggur áherslu á
að eign jarðar fylgja ekki aðeins
réttindi til nýtingar hlunninda
viðkomandi jarðar heldur einnig
skyldur við jörðina og samfélagið
allt. Það sé eindreginn vilji sveit-
arstjórnar að allar jarðir í sveitar-
félaginu verði nýttar með það að
markmiði að styðja við fjölbreytta
atvinnusköpun, eflingu byggðar og
styrkingu búsetu. Þar af leiðandi er
mikilvægt að ábúð sé á sem flest-
um jörðum. Sveitarstjórn telur ekki
æskilegt að margar jarðir safnist á
fárra hendur.
Þurfti að óska eftir gögnum
Jafnframt bendir sveitarstjórn á að
engin gögn hafi fylgt beiðni um um-
sögn frá atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu varðandi málið í
upphafi og það því verið mjög óljóst
þegar það barst sveitarfélaginu.
Þurfti sveitarstjórn að kalla sér-
staklega eftir gögnum. „Eðlilegast
hefði verið að viðkomandi fylgi-
gögn hefðu fylgt með beiðni um
umsögn strax í upphafi og er mælst
til að það verði gert í framtíðinni“,
segir í bókun.
Of stuttur umsagnarfrestur
Einnig er bent á að sveitarstjórn telji
eðlilegt að ráðuneytið móti sér hið
fyrsta verklagsreglur varðandi fram-
kvæmd laga nr. 81/2004 með síðari
breytingum, frekar en að leggja þá
ábyrgð alfarið á hendur sveitarfé-
laga, enda virðist það afar misjafnt
eftir málaflokkum hverju sveitarfé-
lögum er treyst fyrir. Þá kann að vera
eðlilegt að ráðuneytið vinni stutta
umsögn um málið með hliðsjón af
þeim atriðum sem tíunduð eru í 10.
gr. a í jarðalögum áður en það er sent
sveitarstjórn til umsagnar.
Að lokun bendir Sveitarstjórn
Húnaþings vestra á að sveitarfélaginu
hafi verið veittur of stuttur frestur til
að gefa umsögn. /MÞÞ
Léttmál er hrein grísk jógúrt með hollum
og stökkum toppi eða jarðarberjum í botni.
Handhægur, próteinríkur og bragðgóður
réttur sem létt er að grípa með og njóta
hvar og hvenær sem er.
Íbúar og sveit ar
stjórn Rangár
þings eystra sitja
ekki með tærn
ar upp í loftið
á nýju ári því
mik ill kraftur
og uppbygging
á sér stað í sveit
arfélaginu, ekki
síst á Hvolsvelli.
Íbúum fjölgar jafnt og þétt enda
mikið byggt. Þá hefur verið
ákveðið að byggja nýjan leikskóla
á Hvolsvelli.
„Já, það er rétt, öll undir-
búningsvinna er hafin og það
styttist í að framkvæmdir við nýja
leikskólann hefjist en þetta verður
stærsta verkefnið okkar á árinu.
Um er að ræða 8 deilda leikskóla
og er áætlað að opna leikskólann
fyrir lok kjörtímabilsins. Byggingin
verður með þeim hætti að það eru
stækkunarmöguleikar til framtíðar,“
segir Lilja Einarsdóttir sveitarstjóri.
Nýjar lóðir og nýr miðbær
Þá má geta þess að auglýsing á
nýjum lóðum við Hallgerðartún á
Hvolsvelli er í farvatninu en þar eru
á þriðja tug lóða. Einnig hefur nýtt
og spennandi miðbæjarskipulag litið
dagsins ljós og verður gaman að sjá
hvað kemur út úr því.
„Við munum á næstunni aug-
lýsa úthlutun lóða fyrir verslun
og þjónustu í nýja miðbænum en
auk þess er umtalsverður fjöldi
íbúða fyrirhugaður í miðbænum,“
segir Lilja. Þá er gaman að segja
frá því að miðbæjarskipulagið fékk
skemmtilega umfjöllun sem áhuga-
vert skipulagsverkefni í Torginu,
nýútkomnu fréttabréfi skipulags-
stofnunar, og segir þar m.a.:
„Við gerð deiliskipulagsins var
lagt upp með að auka gönguhæfi
bæjarins með því að breyta yfir-
bragði þjóðvegarins í gegnum
bæinn, tengingum yfir þjóðveginn,
breiðari gangstéttum og göngu- og
hjólastígum. Ætlunin er að hægja
á bílaumferð, auka umferðaröryggi
og gera virkum ferðamátum hærra
undir höfði. Áhersla er á gróður og
sjálfbærar ofanvatnslausnir. Einnig
er ráðgert að færa byggðina nær
þjóðveginum með nýrri blandaðri
byggð sunnan vegar og útfærð stefna
um fjölnota útivistar- og samkomu-
svæði í hjarta bæjarins. Skipulaginu
er ætlað að stuðla í senn að heilsuefl-
andi samfélagi, fallegri bæjarmynd,
öruggu og vönduðu búsetuumhverfi,
bættu öryggi við þjóðveginn og
grænni ásýnd bæjarins.“ /MHH
Rangárþing eystra:
Mikill kraftur
á nýju ári
Lilja Einarsdóttir.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300