Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202122 UTAN ÚR HEIMI Það virðist ætla að verða raunin að rafdrifnir bílar í náinni framtíð verði annaðhvort drifnir áfram af rafmagni frá rafhlöðum eða rafmagni sem framleitt er um borð í bílunum sjálfum með vetnisknúnum efnarafal. Þriðji möguleikinn gæti þó allt eins orðið ofan á, en það er að nota ammoníak á efnarafalana í stað vetnis. Gallinn við vetni hefur einna helst verið sá hversu eldfimt og rokgjarnt það er og hversu örsmáar sameindir þess eru. Þær geta nánast smogið í gegnum hvaða efni sem er, jafnvel stál. Því hefur vandinn ekki síst legið í smíði tanka til að geyma vetnið. Þetta virðist mönnum samt hafa tekist að leysa með þokkalegum hætti. Það er hins vegar líka hægt að umbreyta vetni í fljótandi ammoníak sem leysir mörg vandamál og er mun meðfærilegra til flutninga. Tilraun gerð í Ástralíu Greint var frá tilraun í ástralska fjölmiðlinum New Atlas árið 2018 þar sem CSIRO, Iðnaðar­ rannsóknarstofnun breska heims­ veldisins í Ástralíu (Australia's Commonwealth Scientific and Industrial Research Organisation) gerði prófanir á vetnisknúna efnarafalsbílnum Toyota Mirai. Einnig var notaður Hyundai Nexo vetnisbíll við þessar tilraunir. Í stað vetnis notuðu áströlsku vísindamennirnir ammoníak sem eldsneyti. Þá var efnarafalnum breytt á þann hátt að í honum var málm­mebra (gegnhleyp himna) sem aðskildi vetnið úr ammoníakinu um leið og það fór í gegnum efnarafalinn. Í raun mun vera um að ræða hina þekktu Haber­Bosch aðferð sem byggir á því að blanda köfnunarefni (N) saman við vetni (H2) þannig að úr verði ammoníak (NH3), nema að í Toyota vetnis­efnarafalnum var þessu efnaferli snúið við. Var þetta í fyrsta sinn í heiminum sem reynt er að keyra efnarafal sem nýtir vetni sem orkugjafa á ammoníaki. Það er samt ekki í fyrsta skipti sem reynt er að framleiða raforku í gegnum efnarafal sem notar ammoníak beint eða óbeint. Var m.a. gefin út ritgerð um slíka tilraun árið 2004. Einn helsti kosturinn við að nota ammoníak í stað vetnis er hversu auðvelt er að geyma það í tönkum og flytja það, auk þess sem ammoníak er nærri tvöfalt orkuríkara á hverja þyngdareiningu en vetni. Það þýðir að eldsneytistankar geta verið umtalsvert minni. Þá er auðvelt að gera ammoníak að fljótandi vökva við herbergishita undir 8 til 10 bara þrýstingi. Til að gera vetni fljótandi þarf að kæla það niður í ­252,87 °C . Gæti flýtt ferlinu í orku skiptum í samgöngum Að nota ammoníak sem orkubera stóreykur möguleikana á orku­ skiptum skipaflota heimsins og að knýja skip með rafmagni sem framleitt er með vetnis­ efnarafölum. Þetta gæti hugsanlega einnig stóraukið möguleikana á hönnun rafknúinna flugvéla. Auk þess er ammoníak nýtt í stórum stíl áburðarframleiðslu, þannig að með aukinni framleiðslu og breiðara notkunarsviði ætti það að geta leitt til lægri framleiðslukostnaðar á áburði. Tækniteymi CSIRO hannaði málm­membruna í höfuðstöðvum Pullenvale Technology í Brisbane í Queensland i Ástralíu. Hún er þeim eiginleikum gædd að geta fullkomlega aðskilið vetnið frá köfnunarefninu þannig að eftir stendur mjög hreint vetni sem laust er við aðrar gastegundir. Dr. Larry Marshall, yfirmaður CSIRO, var meðal þeirra fyrstu sem fékk að prufukeyra bifreið á ammoníaki og gekk tilraunin vel. „Þetta markaði straumhvörf í orkunotkun,“ sagði dr. Marshall. „Við væntum þess að hönnun CSIRO muni auk möguleikana á að geyma hreina orku í framtíðinni og auðvelda flutning á henni á markað.“ Síðan þessi tilraun var gerð hafa tæknimenn CSIRO unnið að því að kynna þessa aðferðarfræði víða um heim, þó mest í Asíu. Skipaútgerðir sýna ammoníak- efnarafölum áhuga Áhugi á ammoníakdrifnum efna­ rafölum hefur verið að stóraukast hjá stórskipaútgerðum að því er fram kom á vefsíðu VPO á nýliðinni Þorláksmessu. Er þar m.a. vísað til ShipFC verkefnisins sem hlotið hefur styrk frá rannsóknar­ og nýsköpunarverkefni ESB (Horizone 2020). ShipFC verk­ efnið miðar að því að setja tveggja megawatta ammoníak efnarafal í úthafsþjónustuskipið Viking Energy sem gert er út af Eidesvik og er það í samstarfi við orkufyrirtækið Equinor. Gert er ráð fyrir að prufukeyra skipið með þessum efnarafal í að minnsta kosti 3.000 klukkustundir. Í framhaldi af þeirri tilraun er ætlunin að skala verkefnið upp í 20 MW efnarafal fyrir úthafsflutningaskip. Dr. Michail Cheliotis hefur unnið að þessu máli í samstarfi við Strathclyde háskóla. Hann segir að þótt ammoníak hafi vissa galla eins og hættu á tæringu, þá hafi löng reynsla í meðhöndlun þess yfirunnið þau vandamál. Þá stafi ekki nærri eins mikil sprengihætta af ammoníaki eins og vetni auk þess sem það sé orkuríkara og taki mun minna rúmmál í geymslu. Þá nýtist líka mikil reynsla fyrir hendi í meðhöndlun á fljótandi gasi. Eins útheimti efnarafalar mun minna pláss en hefðbundinn vélbúnaður sem gengur fyrir dísilolíu og auki því flutningsrými um borð í skipunum. Um 235 milljónir tonna af ammoníaki framleiddar í heiminum Ammoníaksframleiðsla heims ins á árinu 2019 var um 235 milljónir tonna. Af því voru yfir 100 milljón tonn af ammoníaki flutt með skipum víða um heim, en um þriðjungur heimsframleiðslunnar fer til fram leiðslu á áburði. Búist er við að miðað við óbreyttar forsendur verði ammon íak framleiðslan komin í 290 milljónir tonn árið 2030, en hún gæti aukist enn frekar ef ammoníak verður tekið upp sem orkumiðill í samgöngum. Ammoníak er auðvelt að fram­ leiða á Íslandi með hreini raforku og var reyndar gert um langt árabil í áburðarverksmiðjunni í Gufunesi sem nú er að verða að kvikmyndaveri. Áburðar verk­ smiðjan var reist á árunum 1951 til 1954 og framleiddi ammoníak og áburð fram til 1. október 2001 þegar gassprenging varð í verksmiðjunni. /HKr. Sameyki Stéttarfélag í almannaþjónustu, óskar eftir sumarhúsum og/eða íbúðum á leigu fyrir félagsmenn sína sumarið 2021. Einungs húsnæði í góðu ásigkomulagi og í frágengnu umhverfi kemur til greina. Upplýsingar um staðsetningu, stærð, aldur eignar, verð, ástand, fjölda gistirýma og aðra aðstöðu s.s. heita potta skulu koma fram, ásamt myndum. Áhugasamir sendi upplýsingar til Ásu á netfangið asaclausen@sameyki.is fyrir 5. febrúar n.k. Öllum tilboðum verður svarað. Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu óskar eftir íbúðum og/eða sumarhúsum til leigu Rannsóknarteymi CSIRO í Ástralíu notaði Mirai bifreið frá Toyota ásamt Hyundai Nexo bifreið í tilraun sinni við að nota ammoníak sem orkugjafa í stað hreins vetnis. Notast var við vetnis-efnarafala sem í bifreiðunum voru en með viðbótarbúnaði sem klauf ammoníakið í vetni og köfnunarefni þar sem Haber-Bosch tækni til að búa til ammoníak er snúið við. ShipFC verkefnið miðar að því að setja tveggja megawatta ammoníak efnarafal í úthafsþjónustuskipið Viking Energy sem gert er út af Eidesvik og er það í samstarfi við orkufyrirtækið Equinor. Gert er ráð fyrir að prufukeyra skipið með þessum efnarafal í að minnsta kosti 3.000 klukkustundir. Í framhaldi af þeirri tilraun er ætlunin að skala verkefnið upp í 20 MW efnarafal fyrir úthafsflutningaskip. Ástralskir vísindamenn nýttu ammoníak til að knýja vetnisbíla Toyota og Hyundai: Ammoníak talið geta verið heppilegri orkumiðill en hreint vetni fyrir fjölþættar samgöngur – Auðvelt er að framleiða ammoníak á Íslandi – gæti flýtt orkuskiptum í öllum samgöngum á sjó, landi og jafnvel í lofti Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 STARTARAR í flestar gerðir dráttarvéla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.