Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202130
Nautakjötsframleiðsla í Lækjartúni:
Framúrskarandi árangur í skýrslu-
haldi RML hvað varðar vaxtarhraða
Í lok nóvember á síðasta ári var
nautahópi slátrað frá Lækjartúni
í Ásahreppi. Nautin, sem voru
við slátrun 16‑18 mánaða gömul,
slógu öll met þar á bæ hvað varð‑
ar flokkun og meðalvigt sem
fór í 373,5 kíló. Ekki einasta er
þarna um að ræða persónulegt
met Lækjartúnsbænda, heldur
er árangur þeirra, samkvæmt
skýrsluhaldi nautgriparæktar
Ráðgjafarmiðstöðvar landbún‑
aðarins (RML), sá langbesti á
landsvísu á síðasta ári, þegar
tölur um vaxtarhraða og dag‑
lega þyngingu eru skoðaðar.
Tyrfingur Sveinsson sér að
mestu um nautaeldið á bænum
og þakkar hann þremur lykil‑
þáttum árangurinn; fóðruninni,
aðbúnaðinum og ræktunarstarf‑
inu. Gott kornræktarár 2019 hafi
þó líklegast gert gæfumuninn að
þessu sinni.
Níu nautkálfum var slátrað í lok
nóvember frá bænum og eru fimm
þeirra á topp tíu lista RML, fjórir í
efstu fimm sætunum og einn í því
áttunda. Tyrfingur segir kornrækt-
arárið 2019 og gæði kornsins það
ár hafi verið með því allra besta
– en hlutfall byggs í fóðri Tyrfings
er nálægt 20 prósentum.
Meðalstór holdanautarækt í
Lækjartúni
Tyrfingur segir búið vera í meðal-
stærð yfir landið í holdanautarækt;
24 kýr og svolítil stækkun með ár-
unum. „Hópurinn, sem var slátrað
núna, voru allt kálfar sem fæddust
vorið 2019, á tímabili frá 15. maí
til 17 júlí. Alls fæddust 22 kálfar
það vorið, 12 naut og 10 kvígur.
Ein kvíga drapst við fæðingu, einn
nautkálfur innan viku, líklega með
einhvers konar E.coli-sýkingu
og tvær kýr voru geldar. Allar
kvígurnar nema ein þroskuðust
vel og voru því átta kvígur settar
á. Alls komust 11 naut til nytja og
voru tvö þeirra seld sem þarfanaut
á aðra bæi. Eftir standa því þessi
níu naut sem var slátrað 16 til 18
mánaða gömlum,“ segir Tyrfingur.
Óvenju gott kornár
Tyrfingur segist hafa komist að
því í samtölum við fólk á svæðinu,
sem hefur skoðað mjólkurgæðin í
fyrra hjá kúabændum með eigin
kornrækt, að þau hafi verið talsvert
meiri en er að jafnaði annars. „Ég
held þannig að þetta eigi við bæði
um mjólkina og eldið, að byggið
var óvenju gott árið 2019,“ segir
Tyrfingur en þvertekur fyrir að
hann sé einhver sérstakur sér-
fræðingur. „Ég fylgi hins vegar
vel þeim leiðbeiningum sem ég
fæ frá sérfræðingunum og svo er
ég auðvitað dálítill grúskari.
Kýrnar bera á vorin og kálfarnir
ganga undir mæðrum sínum á beit
fram á haust. Kúnum er gefið hey
þangað til túnið sem þær eru á fer
að hafa undan beitinni, en svo eru
þær færðar á úthagabeit á 40 ha
mýri um mánaðamótin júní-júlí.
Þar eru þær næstu tvo mánuðina
fram að mánaðamótum ágúst-sept-
ember. Ég hef ræktað um 1,5 ha
með blöndu af káli, rýgresi og höfr-
um sem ég byrja að randbeita þá
um haustið bæði kýr og kálfa ásamt
annarri beit, t.d. þar sem gripirn-
ir eru látnir hreinsa endurvöxt af
túnum.
Það er hins vegar alveg hægt
að setja spurningarmerki við þessa
kálrækt eftir síðastliðinn september
sem var ákaflega rigningarsamur
og spildan var fljót að vaðast upp
í drullu við umgang dýranna.
Um það leyti sem kálið og önnur
beit klárast byrja ég heygjafir, oft-
ast um miðjan okóber. Þá hef ég
verið með lítið gerði sem aðeins
kálfarnir komast í og gefið þeim
þar gott hey í gjafagrind, en kýrnar
fá miðlungsgott þar til kálfarnir eru
teknir undan. Yfir vetrartímann fá
þær svo viðhaldsfóður. Undanfarin
ár var kúnum gefið í gjafagrindur 4
rúllur í einu á 2 daga fresti. Þessu
gjafafyrirkomulagi fylgdi talsverð-
ur slæðingur, uppsöfnun á skít á
litlum bletti og kýrnar virtust éta
meira en þær þurftu og voru því of
feitar. Núna í vetur hef ég svo verið
að prófa að gefa með því að rúlla
út 1 rúllu á dag meðfram randbeiti-
streng sem ég færi í hvert skipti
svo þær eru alltaf að éta á hrein-
um stað. Það líkar mér mun betur
þar sem þessi aðferð virðist spara
mikið hey miðað við fyrri aðferð-
ir, þær dreifa jafnt úr skítnum yfir
svæðið og holdafar kúnna er mun
eðlilegra en áður,“ segir Tyrfingur
um fóðurfyrirkomulagið á bænum.
Velferðargólf
Eitt atriði í aðbúnaði kálfanna segir
Tyrfingur að vegi einnig þungt
þegar kemur að vexti og viðgangi
gripanna, en það eru svokölluð
velferðargólf sem hann segir að séu
fljót að borga sig upp.
„Kálfarnir eru teknir undan
kúnum og settir inn um leið og
árgangurinn á undan er farinn í
sláturhús í lok nóvember, þá orðnir
um sex mánaða gamlir. Við höfum
tekið inn bæði naut og kvígukálfa.
Kvígukálfarnir fara svo út í apríl
og þá fá nautkálfarnir meira pláss.
Það virðist vera lykilatriði að taka
kvígukálfana inn til að venja þá við
umgengni mannsins, en hjörðin
hefur gjörbreyst í hegðun síðan við
byrjuðum á þessu.
Rýmið sem kálfarnir hafa er
í hlöðu sem breytt var að hluta í
„hefðbundna“ eldisaðstöðu með
fóðurgang í miðju og stíur með rimla
fóru til hliðanna. Stíupláss er 38
fermetrar og allir steinbitar klæddir
með grænu velferðargólfunum sem
Grétar Hrafn Harðarson dýralæknir
selur. Gólfgerðina tel ég að skipti
sköpum í velferð og þar með
vaxtarhraða gripanna, en gripunum
virðist líða ákaflega vel á þessum
renningum og haldast vel hreinir.
Ég veit svosem ekki hvað svona
velferðargólf er verðlagt á í dag en
þegar við keyptum grænu gólfin
fyrir um fimm árum síðan kostuðu
þau um 600 þúsund krónur. Ef
maður deilir þeirri upphæð á 10
ára fyrningartíma þá gerir það um
60 þúsund krónur á ári. Við höfum
slátrað að meðaltali 10 gripum á
ári og ef maður deilir þessum 60
þúsund á 10 gripi þá gerir það 6.000
krónur á grip. Samkvæmt núverandi
verðskrá fást 796 krónur á kílóið
fyrir R-flokk í sláturhúsinu á Hellu.
Ef maður deilir kílóverðinu í 6.000
krónurnar kemur út að hver gripur
þarf að bæta við sig 7,5 kílóum á
innieldistímanum til að borga fyrir
grænu gólfin á þessum 10 árum.
Ég tel að grænu gólfin geri talsvert
betur en það fyrir þyngdaraukningu
gripanna.“
Úrvalshey og fiskimjöl
Að sögn Tyrfings fá kálfarnir
úrvalshey þegar inn í hlöðu er komið
– slegið kringum 20. júní – ásamt
heimaræktuðu byggi, fiskimjöli
og steinefnablöndu í duftformi.
„Fiskimjölið er gefið á tímabilinu
frá því þeir eru teknir inn fram á
vorið á meðan próteinþörfin er mest.
Það ræðst svo af bygguppskeru
hvers árs hversu mikið og hversu
lengi gripirnir fá korn. Við höfum
ræktað korn á þremur hekturum á
hverju ári og valsað það í stórsekki
með mjólkursýrugerlum og pakkað
svo sekkjunum inn í rúlluplast. Ef
uppskeran er góð fá þeir korn allan
eldistímann en ef það er takmarkað
magn dreg ég úr korngjöfum yfir
sumartímann og eyk svo skammtinn
aftur í september, sem er um þremur
mánuðum fyrir slátrun.“
Númer Þyngd Flokkun Fæðingar-dagsetning
Slátur-
dagsetning
Aldur í
dögum
Aldur í
mánuðum
M-D
Dagleg
þynging kg Gerð
654 364.7 R+2+ 25.5.2019 30.11.2020 555 18-5 0.621 9
649 352.7 R+3- 17.5.2019 30.11.2020 563 18-13 0.591 9
639 410.4 R+3 22.5.2019 30.11.2020 558 18-8 0.700 9
641 356.6 U3- 19.5.2019 30.11.2020 561 18-11 0.600 11
505 398.9 U3- 24.6.2019 30.11.2020 525 17-6 0.722 11
640 379.6 R+3- 18.5.2019 30.11.2020 562 18-12 0.640 9
637 382.4 R+3- 6.6.2019 30.11.2020 543 17-24 0.667 9
656 312.4 R+3- 12.7.2019 30.11.2020 507 16-18 0.577 9
651 403.8 U3- 21.5.2019 30.11.2020 559 18-9 0.687 11
Meðaltal 373.5 548.11 17-29 0.645 9.67
Flokkun þeirra níu ungneyta sem slátrað var seint á síðasta ári frá Lækjartúni. Reiknað er með 20 kílóa fallþunga
við fæðingu.
Gripur Bú Aldur, mán. Þungi, kg Flokkun Vöxtur, g fall/dag
0505
(naut) Lækjartún 17,5 389,9 UN U3- 721,7
0639
(naut) Lækjartún 18,6 410,4 UN R+3 699,6
0651
(naut) Lækjartún 18,6 403,8 UN U3- 686,6
1203
(naut) Sogn 13,4 286,3
UN
R-2+ 660,8
0637
(naut) Lækjartún 18,1 382,4
UN
R+3- 667,4
1234
(kvíga) Kúskerpi 15,6 321,7 UN R2 643,3
1009
(naut) Leirulækur 16,5 336,6
UN
R+2+ 639,6
0640
(naut) Lækjartún 18,7 379,6
UN
R+3- 639,9
0551
(naut) Arakot 20,6 416,9
UN
R+3- 642,2
1018
(naut) Nýibær 22,6 453,4 UN R3- 640,2
Topp tíu listi yfir mestan vaxtarhraða eða þyngdaraukningu ungneyta á
síðasta ári.
Tyrfingur Sveinsson, bóndi í Lækjartúni, og holdakúahjörðin hans. Mynd / smh
Tyrfingur er að reisa gerði sem mun þjóna holdanautahjörðinni með ýmsum hætti, meðal annars minnka stress.