Bændablaðið - 28.01.2021, Síða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202132
LANDGRÆÐSLAN
Landgræðslan auglýsir nú eftir
umsóknum frá landeigendum
sem hafa áhuga á endurheimt
votlendis á sínu landi. Styrk
veiting er greiðsla á öllum fram
kvæmdar kostnaði við endur heimt
votlendissvæða.
Þess má geta að í fyrra
bárust bárust þrjár umsóknir frá
landeigendum á sunnanverðu
Snæfellsnesi og svo heppilega vildi
til að tvær jarðanna liggja saman.
Samtals eru þessar tvær jarðir
um 100 hektarar sem er stærsta
samfellda votlendissvæðið sem
Landgræðslan hefur endurheimt á
einum stað.
Á svona stóru svæði eru aðstæð-
ur fjölbreyttar og úrlausnarefnin
mörg. Það fer því ekki hjá því að
reynslan á Snæfellsnesi mun nýt-
ast vel við endurheimt votlendis
í framtíðinni. Verktakar unnu á
svæðinu frá október til loka nóv-
ember og unnu afar gott verk
undir leiðsögn Landgræðslunnar.
Endurheimt votlendis á öðrum
stöðum tókst vel.
Þegar búið er að fara yfir um sókn-
ir sem berast að þessu sinni, og velja
þær sem koma til álita, munu starfs-
menn Landgræðslunnar heimsækja
eigendur jarðanna og leggja mat á
hvort svæðin uppfylli skilyrði sem
sett eru. Í framhaldinu verða svæðin
kortlögð og ýmsar athuganir gerðar. Í
þeirri vinnu má helst nefna athugun
á vatnsbúskap svæðanna, kortlagn-
ingu skurða og svæða á milli þeirra
og innsetningu vatnshæðarröra til að
mæla breytingar á grunnvatnsstöðu
ásamt drónamyndatökum. Ýmist eru
verktakar fengnir úr heimabyggð til
að vinna verkin eða landeigendur
gera sjálfir það sem gera þarf.
Venja er að leyfa landinu að
jafna sig í nokkra mánuði eftir
framkvæmdir að hausti. Svæðin
eru síðan tekin út næsta vor til að
athuga hvort sé þörf á lagfæringum
á skurðafyllingum eða stíflum. Þá
eru myndir teknar og væntanlegar
framkvæmdir kortlagðar.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Landgræðslunnar, www.
land.is
Auglýst eftir umsóknum landeigenda sem hafa áhuga á endurheimt votlendis
Endurhemt votlendis. Myndir / ÁÞ
LANDNÝTING&KOLEFNISBINDING
Eru tækifæri í kolefnisbindingu?
Kolefnisbinding hefur verið tals
vert til umræðu á síðustu ár um
og verður eflaust áfram, ein
fald lega vegna aðgerða víða um
heim til að bregðast við lofts lags
vandanum. Til þess þarf bæði að
draga úr kolefnislosun sem og að
auka kolefnisbindingu. Kolefnis
binding í landi er ein af lykilað
gerðum verkefnisins Nýsköpun
í norðri (NÍN), en það er sam
starfsverkefni Þingeyjar sveitar
og Skútustaða hrepps. Hluti af
NÍN er verkefnið KOLNÍN, en
það snýr að fýsileikagreiningu
kolefnis bindingar á starfssvæði
NÍN.
Geta lands til kolefnisbindingar
er mikil. Hún fer eftir landnotkun
og sem dæmi má reikna með að
kolefnisbinding asparskógar sé
að jafnaði um 18 tonn á hektara á
ári, skv. niðurstöðu fagráðstefnu
Skógræktarinnar árið 2019. Binding
í ræktuðum birkiskógi er mun minni,
en þó umtalsverð, eins og meðfylgj-
andi tafla um kolefnis bindingu í
ræktuðum skógi sýnir.
Ef gengið er út frá landkostum
á NÍN-svæðinu og hóflegri nýtingu
lands til kolefnisbindingar, má gera
ráð fyrir að kolefnisbinding þar geti
verið 300-500 þúsund tonn á ári.
Mikilvægt er að kolefnisbinding fari
saman við önnur landnot og skipulag
lands og er því til skoðunar hjá
Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi
(NÍN) að taka kolefnisbindingu í
landi sérstaklega til athugunar við
uppfærslu aðalskipulags sveitar-
félaganna.
Markaðurinn með
kolefnisbindingu
Kolefnisbinding er þjónusta sem
stórfyrirtæki jafnt sem einstaklingar
borga fyrir, m.a. til að ná eigin
markmiðum um nettó kolefnislosun.
Verðlagning á kolefnisbindingu
er nokkuð sem margir velta
fyrir sér. Verðlagning fer m.a.
eftir kolefnisbindingaraðferð og
staðsetningu. Þannig bjóða sumir
landeigendur í þróunarlöndum
upp á kolefnisbindingu fyrir ca. 5
USD/tonn í formi þess að vernda
gamla skóga en grónir skógar binda
meira en nýskóglendi og kosta
minna í umsýslu, sérstaklega í
þróunarlöndum þar sem laun eru
lág. Þegar kemur að nýskógrækt
á Íslandi má nefna Kolvið, sem
þjónustar fjölda íslenskra fyrirtækja
með kolefnisbindingu fyrir um 17
USD / tonn.
Markaðurinn með kolefnis-
bindingu mun væntanlega stækka
á næstu árum, einfaldlega vegna
vaxandi eftirspurnar eftir þjónust-
unni. Sú eftirspurn verður drifin
af bæði fyrirtækjum sem hinu
opinbera. Má nefna Þýskaland
sem hefur byrjað að heimta
kolefnisgjald fyrir hvert tonn af
CO2 útblæstri vegna húshitunar
með olíu eða vegna samgangna.
Gjaldið í dag er 25 EUR / tonn en
það mun hækka í 30 EUR / tonn
á næsta ári og verða nálægt 60
EUR / tonn eftir fimm ár. Þetta
kolefnisgjald mun stuðla að minni
útblæstri og aukinni eftirspurn eftir
kolefnisbindingu.
Fyrirtæki í Evrópu með stór
kolefnisfótspor, þ.m.t. álfyrirtæki
á Íslandi, eru einnig skyldug til að
taka þátt í kolefniskvótamarkaði
Evrópusambandsins (EU Emission
Trading Scheme). Tonn af kolefnis-
útblæstri kosta þar ríflega 30 EUR
(m.v. EUR 9 fyrir þremur árum síðan)
en fyrirtæki geta minnkað kostnað
sinn vegna kaupa á kolefniskvóta
með því að kaupa kolefnisbindingu.
Þá er fjöldi fyrirtækja byrjuð að
byggja upp kolefnisjöfnunarsjóði
sem notaðir verða til að kaupa
kolefnisbindingu í náinni framtíð.
Má nefna Swiss Re tryggingafélagið
í Sviss sem dæmi en það borgar
100 USD fyrir hvert tonn af CO2
útblæstri sem fyrirtækið er ábyrgt
fyrir í sjóð sem verður notaður til
að kaupa kolefnisbindingu í náinni
framtíð. Meðlimir „Nettó Núll
Útblástur” hópsins (Net-zero Asset
Owner Alliance) munu einnig þurfa
á kolefnisbindingu að halda en þessi
33 fyrirtæki, með heildareignir yfir
5.100 milljarða dollara, hafa lýst því
yfir að valda engum útblæstri árið
2050. Til þess þurfa þau að minnka
útblástur annars vegar og kaupa
kolefnisbindingu hins vegar.
Kolefnisbinding sem tækifæri
fyrir íslenska landeigendur
Það er eðlilegt að spurt sé hvort
tækifæri séu í kolefnisbindingu
fyrir íslenska bændur og aðra
landeigendur. Um er að ræða
nýlegan markað sem er enn að
þroskast. Tíminn verður að leiða
í ljós hversu mikil tækifærin eru,
en það er vitanlega að miklu leyti
í höndum þeirra sem þróa þau
áfram. Líklegt verður að teljast að
kolefnisskattar verði lagðir á og
jafnframt að ferðahegðun muni að
einhverju leyti taka mið af viðhorfum
gagnvart kolefnisjöfnunar. Sökum
þessa hafa aðgerðir NÍN miðað að
samþættum áhrifum, eins og sýnt er
á meðfylgjandi skífuriti.
Sveinn Margeirsson,
verkefnisstjóri NÍN og
sveitarstjóri Skútustaðahrepps
Ólafur Margeirsson
hagfræðingur
Sigurlína Tryggvadóttir
landfræðingur
Kolefnisbinding í ræktuðum skógi
Kolefnisbinding
per ár (tonn CO2)
Alaskaösp 18
Sitkagreni 9
Stafafura 8
Lerki 6,5
Birki 3,1
Hægvaxta greni 4,6
Trjátegund