Bændablaðið - 28.01.2021, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202142
Á undanförnum árum hefur
starfsumhverfi landbúnaðarins
tekið ýmsum breytingum. Sífellt
er leitað leiða til að samræma þar
ýmis sjónarmið sem stundum
stangast líka á innbyrðis. Í
þessari grein verður fjallað um
hvernig ESB og Noregur standa
vaktina í hagsmunagæslu fyrir
framleiðendur landbúnaðarvara
til að tryggja framleiðslu þeirra.
Hvað gerir ESB til að tryggja
framleiðslu?
ESB greiðir stóran hluta stuðnings
síns til bænda í formi styrkja sem
ekki eru skilyrtir framleiðslu
tiltekinna afurða. Af hverju
framleiða þá bændur innan ESB
landbúnaðarafurðir? Jú, af því
að verð á þeim er nógu hátt (þ.e.
yfir breytilegum einingarkostnaði)
til að það borgi sig að framleiða.
Það skyldi þó aldrei vera þannig
að m.a. tollverndin sé stillt af
þannig að verð til bænda verði
að minnsta kosti nógu hátt til að
framleiðsluviljinn haldist? M.ö.o.
að markaðsverðið sé hærra en
breytilegur einingarkostnaður.
Hvað gerir Noregur gagnvart
ESB varðandi EES-samninginn?
Í grein sem framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda ritaði ný
verið í Kjarnanum (sjá nánar hér:
https://kjarninn.is/skodun/2021-
01-07-tollar-vernd-og-vorn/) gerir
hann 19. gr. EESsamningsins að
umtalsefni, en ákveður að taka
einungis hluta hennar upp í grein
sína. Sá hluti sem hann vitnar til (2.
mgr. 19. gr.) er svohljóðandi:
„Samningsaðilar skuldbinda sig
til að halda áfram viðleitni sinni til
að auka smám saman frjálsræði í
viðskiptum með landbúnaðarafurð-
ir.“
Af einhverjum ástæðum kýs
hann að vitna aðeins til þessarar 2.
mgr. 19. gr. en ekki til annarra hluta
þessarar 19. gr. EESsamningsins.
Í 4. mgr. sömu greinar (þ.e. 19. gr.)
segir til að mynda:
Samningsaðilar munu, í ljósi
þeirra niðurstaðna sem fást af
þessari endurskoðun, innan ramma
landbúnaðarstefnu hvers um sig
[...], ákveða, innan ramma samn-
ings þessa, á grundvelli fríðinda,
með tvíhliða eða marghliða hætti
og með gagnkvæmu samkomulagi
sem er hagstætt hverjum aðila,
frekara afnám hvers kyns viðskipta-
hindrana í landbúnaði...“ (undir
strikanir og feitletranir greinarhöf
undar)
Samkvæmt þessu ákvæði
EESsamningsins ráða Ísland og
Noregur hvort og að hvaða marki
vernd fyrir innlendan landbúnað
er til staðar þegar það kemur að
innflutningi evrópskra landbún
aðarvara. Fyrrnefnd tilvísun í 19.
gr nær einungis eins hluta 19. gr.
og gefur því ranga mynd af inntaki
og eðli 19. gr. EESsamningsins.
Greinarnar þarf að lesa í samhengi
eins og gjarnan er gert í góðri lög
fræði.
Sú spurning er vægast sagt
áleitin af hverju íslensk stjórnvöld
hafa gengið mun lengra í opnun á
innflutningi fyrir evrópskar land
búnaðarvörur en norsk stjórnvöld
hafa gert. Skýrsla utanríkisráðu
neytisins, Landbúnaðarsamningur
Íslands og Evrópusambandsins,
úttekt á hagsmunum Íslands, sem
út í desember 2020 staðfestir að
mikið hallar á íslenskan landbúnað
gagnvart ESB í þeim viðskiptum.
Norsk stjórnvöld hafa fyrir löngu
áttað sig á þessari stöðu og hafa
tekið tillit til hennar í hagsmuna
gæslu sinni. Í samningaviðræðum
Noregs og ESB þann 14. nóvember
2019 skoraði ESB á norsk stjórnvöld
að auka innflutning evrópskra land
búnaðarvara til Noregs með vísan
til 2. mgr. 19. gr. EESsamningsins.
Norska sendinefndin hafnaði þessu
með vísan til þess að 2. mgr. 19.
gr. EESsamningsins væri ekki
einungis ætlað að auka frjálsræði í
viðskiptum heldur enn fremur að
jafna stöðu norskra bænda gagn
vart evrópskum bændum (e. level
of playing field). Af hverju ganga
norsk stjórnvöld harðar fram í að
vernda innlenda framleiðslu en
íslensk stjórnvöld?
„Jöfn staða“ framleiðenda
Enn skemmtilegri er þó spurningin
um af hverju ESB notar hugtök sem
skírskota til jafnræðis hvað eftir
annað í samskiptum við önnur lönd
(sem eru fámennari en samanlagður
íbúafjöldi landa innan ESB). Í við
tali við BBC þann 10. desember sl.
talaði Ursula vor der Leyen, for
seti framkvæmdastjórnar ESB, til
dæmis um „hárfínt jafnvægi sann
girni“ (e. fine balance of fairness),
Brexit: Ursula von der Leyen gives
update before EU summit - BBC
News þegar fjallað var um samn
ingaviðræður ESB og Bretlands.
Það á væntanlega ekki við þegar
nokkrir tugir af nautakjötsframleið
endum á Íslandi eru að keppa við
innflutning frá 440450 milljóna
samfélagi í Evrópu sem kaupir kjöt
inn á frost og veitir bændum beinan
stuðning þegar illa árar. Eða hvað?
Tollvernd ein stoð í kerfi ESB
Landbúnaðarstefna ESB saman
stendur af tollvernd, styrkjum
óháðum framleiðslu og öðrum
leiðum sem miða að því að koma
í veg fyrir að verð til framleiðenda
falli niður fyrir tiltekið lágmark. Það
er vitaskuld gert til að tryggja að
framleiðsla afurða haldi áfram. Það
er ótrúlegt ef einhver telur að land
búnaðarstefna ESB miði ekki að því
að tryggja viðgang landbúnaðar og
að fjölbreytt framleiðsla landbún
aðarafurða eigi sér stað sem víðast
í ríkjaheildinni. Það er beinlínis
skrifað inn í Lissabon sáttmálann.
Tollvernd er ein stoð í því kerfi
bandalagsins.
Þá lágmarkskröfu verður að
gera til þeirra sem gera tillögur um
gjörbreytingu á rekstrarumgjörð
íslensks landbúnaðar að þeir segi
þá sögu til enda en freisti þess
ekki með hálfkveðnum vísum og
fagurgala að afla fylgis við hug
myndir sem verulegar líkur eru á að
leiði til samfélagslegrar niðurstöðu
sem fæstir landsmenn vilja sjá.
Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur
Tré og runnar í görðum og
skógum liggja nú í djúpum
vetrardvala eftir að hafa glatt
okkur með laufskrúði sínu
síðan í vor. Þau þreyja þorrann
og góuna og bíða þess að vori.
Garðeigendur og aðrir sem
rækta trjágróður bíða vorsins
líka af óþreyju þar til gróðurinn
laufgast á ný. Vetrargreining trjáa
og runna getur verið skemmtileg
og gagnleg iðja að vetrinum
og gefur okkur kost á að njóta
garðsins allt árið.
Fjölbreytileikinn ræður ríkjum
Það getur verið skemmtilegt
að þekkja útlit sumargræna
trjágróðursins að vetrarlagi.
Vaxtarlag hinna ýmsu tegunda
verður allt miklu sýnilegra þegar
laufið er fallið og leynd fegurð
þeirra kemur í ljós. Árssprotar
og dvalarbrum eru ólík að lit
og lögun eftir tegundum, litur
og áferð barkarins kemur skýrt
fram að vetri og auðvelt er að sjá
hvernig greinabygging er ólík á
milli tegunda. Á berkinum sitja
oft fléttur og mosar sem valda
trjánum ekki sérstökum ama en
getur gefið þeim sérkennilegri
og fallegri svip á veturna en á
sumrin.
Sígræn tré eins og furu, greni
og einitegundir halda útliti sínu að
mestu á veturna, en það er gaman
að sjá köngla þeirra skreyta trén
að vetrarlagi. Þeir framleiða
mikið magn fræja sem er fæða
fyrir fuglategundir, til dæmis hinn
litríka skógarfugl krossnef, sem
byggir tilvist sína að miklu leyti
á fræi sem könglarnir geyma og er
farinn að verpa í íslenskum skóg
um. Lauftré halda líka sum hver
fræreklum sínum fram á vetur, t.d.
íslenska birkið og elritegundir.
Börkur
Mjallarhyrnir skartar logarauðum
berki á ungum greinum sem sker
sig úr flestum öðrum runnagróðri
á veturna. Víðitegundir eru margar
í görðum og barkarlitur þeirra
er ólíkur milli tegunda. Sumar
víðitegundir eru með gráleitan
börk á veturna eins og viðja, aðrar
hafa börk í mismunandi grænum
og brúnum litum. Áferð barkarins
er á sama hátt misjöfn. Næfurhegg
má sjá í görðum, börkur hans
er koparlitaður og gljáandi og
flagnar með tímanum í hringlaga
„næfrar“. Venjulegur heggur er
með dekkri börk og sýnir ekki
þennan eiginleika. Gullregn er
með óvenju ljósgrænan, sléttan
börk á yngri greinum. Börkur
sígrænu trjánna hefur oft mun
grófari áferð en algengt er meðal
lauftrjáa. Íslenska birkið hefur
mjög fjölbreyttan barkarlit,
sumir einstaklingar þess hafa
mjög dökkan börk meðan aðrir
eru gljábrún eða nánast snjóhvít
á litinn.
Skófir og fléttur
Trjábörkur er undirlag fyrir
margar gerðir litríkra fléttna
og skófna sem gefur berkinum
óvæntan og sérkennilegan blæ.
Þetta getur verið áberandi á
eldri trjám með þykkan stofn og
greinar, til dæmis reynitegundir
og birki. Ekki er ástæða til að
óttast að þessar ásætur valdi
trjánum skaða.
Brum
Dvalabrumin hlífa vaxtar sprot
unum yfir vetrarmánuðina. Þau
eru með ýmsu móti; sum eru lítil
og liggja þétt að stofninum meðan
önnur eru stór og áberandi, eins
og brum asksins sem eru nán
ast kolsvört og gild. Alaskaösp
hefur einnig nokkuð stór, odd
dregin brum. Sumar tegundir
eru þeirrar náttúru að þær halda
sölnuðu laufinu fram eftir vetri
til að hlífa brumunum enn frekar.
Dæmi um slíkar tegundir eru eik,
beyki og myrtuvíðir.
Greinabygging
Það getur verið gagnlegt að
þekkja muninn á milli tegunda
og jafnvel yrkja þegar meta
skal hvernig standa skuli að
trjáklippingum, sem oftar en
ekki fer fram nú þegar gróðurinn
er í dvala. Þá er auðvelt að meta
greinabygginguna, hvernig nátt
úru legt vaxtarlag er og hvaða
greinar er rétt að fjarlægja, stytta
og snurfusa. Sem dæmi er hægt að
skoða berjarunna. Rifsrunna þarf
að klippa reglulega til að veita
sólarbirtu inn í runnann. Á sumrin
getur þetta verið erfitt vegna þess
hversu þéttir runnarnir verða og
líkur eru á skemmdum á ungum
greinum. Á veturna sést betur
hvar best er að fjarlægja elstu
og grófustu greinarnar og móta
runnann rétt. Hindberjarunna er
líka auðveldara að klippa að vetri.
Þar er nauðsynlegt að fjarlægja
reglulega elstu greinar þeirra til
að viðhalda frjósemi runnanna.
Eldri greinar er hægt að þekkja
á því að börkur þeirra er dekkri
en þær yngri og með grunnum
lóðréttum rákum. Sumir runnar
eru með greinarnar beinar, aðrir
bogsveigðar og jafnvel slútandi.
Hin sjaldséða hengibjörk vekur
alltaf athygli með sínum hangandi
greinum.
Ingólfur Guðnason
námsbrautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu
Garðyrkjuskólans
á Reykjum, Ölfusi
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Trjágróður í vetrarskrúða
Evrópuaskur, Fraxinus excelsior, endabrumi í vetrardvala.
SAMFÉLAGSRÝNI
Starfsskilyrði landbúnaðarins,
tollvernd og beinir styrkir
Erna Bjarnadóttir.
Vetrarlitir trjáa.
Matvælastofnun kynnir umsóknir um styrki:
Vatnsveitustyrkir fyrir lögbýli
Þann 1. febrúar næstkomandi opnar
Matvælastofnun fyrir umsóknir um
styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum
í samræmi við reglugerð um fram-
lög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
til vatnsveitna á lögbýlum.
Umsókn um styrk til vatnsveitu
framkvæmda (nr. 10.06) er í þjón
ustugátt MAST sem er aðgengileg á
vef Matvælastofnunar. Umsækjandi
skráir sig inn með Íslykli eða rafræn
um skilríkjum.
Umsóknarfrestur er til og
með 28. febrúar næstkomandi.
Umsóknar frestur verður ekki fram
lengdur.
Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja
með umsókninni:
• Mat úttektaraðila á þörf býlis
fyrir framkvæmd
• Staðfest kostnaðar og fram
kvæmdaráætlun
• Teikningar sé um byggingar að
ræða
• Umsögn viðkomandi sveitar
stjórnar um að skilyrði 1. mgr.
1. gr. ofangreindrar reglugerð
ar séu uppfyllt, þ.e. að hag
kvæmara sé að mati sveitar
stjórnar að leggja vatnsveitu
að einstökum bæjum, sbr. 2.
mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur
sveitarfélaga, nr. 32/2004.
Allt að 44% stuðningur
Stuðningur fyrir hverja fram kvæmd
getur að hámarki numið 44% af
stofnkostnaði við vatnsveitu til
heimilis og búsþarfa.
Vakin er athygli á því að þeir
umsækjendur sem áttu samþykkta
umsókn á síðastliðnu ári en luku ekki
framkvæmdum þurfa að sækja um
aftur. /VH
...frá heilbrigði til hollustu