Bændablaðið - 28.01.2021, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 45
Einkenni ormasýkinga geta
verið vanþrifnaður, þyngdartap,
blóðleysi, niðurgangur og uppköst,
jafnvel dauði en oft er minnkuð
fluggeta í kappflugum það eina
sem eigendur taka eftir. Egg þessara
orma skiljast út með saur og því
viðheldur saurmengað vatn og
fóður sýkingunni.
Hníslar eru einfrumungar af
tegundum Eimeria og Isospora sem
lifa í slímhúð þarmanna. Hníslar
eru mjög tegundasérhæfðir þannig
að hver dýrategund á sínar tegundir
hnísla. Mismunandi er eftir tegund-
um hnísla hversu alvarlegum ein-
kennum þeir valda. Hnísildýrin
fjölga sér í þekjufrumum þarma
með því að bora sig inn í frumurnar.
Skemmdirnar geta verið svo stór-
vægilegar að þær draga fuglana til
dauða en þær greiða einnig leið
baktería inn í blóðrásina. Hníslar
skiljast út með saur. Lífsferillinn er
beinn og verður smit ef fuglar kom-
ast í saurmengað fóður eða vatn.
Tíu tegundir hnísla eru þekktar í
dúfum erlendis en ekki hefur enn
verið greint hvaða tegundir er að
finna hér á landi.
Ytri sníkjudýr
Þau ytri sníkjudýr sem greind hafa
verið á dúfum hérlendis eru nag-
lýsnar Columbicola columbae og
Campanulotes compar. Þó hafa
fleiri ytri sníkjudýr sem geta farið
á dúfur verið greind hér á landi en
þau hafa fundist m.a. á hænsnum en
ekki verið greind á dúfum enn sem
komið er. Má þar nefna fótamítil-
inn Knemidocoptes mutans, rauða
hænsnamítilinn Dermanyssus gall-
inae og fuglaflóna Ceratophyllus
gallinae.
Mismunandi er milli tegunda
þessara sníkjudýra hvort þau eyði
öllum sýnum lífsferli á fuglun-
um eða einungis að hluta. En þau
eiga það þó sameiginlegt að valda
fuglunum óþægindum annað hvort
með því að sjúga blóð eða valda
skemmdum á yfirborði húðar-
innar og fjöðrum. Stress og órói
eykst hjá smituðum fuglum sem
hefur neikvæð áhrif á ónæmiskerfi
þeirra. Ætla má að tegundir ytri
sníkjudýra hérlendis telji fleiri
tegundir. Erlendis þekkjast til við-
bótar á dúfum, að minnsta kosti 2
aðrar tegundir naglúsa, dúfnaflóin
Ceratophyllus columbae ásamt
mörgum tegundum mítla.
Ef grunur vaknar um að upp sé
komin sjúkdómur hjá dúfunum er
nauðsynlegt að leita til dýralækn-
is. Ýmis lyf eru til gegn sýkingum
af völdum baktería og sníkjudýra
en þau þarf að nota rétt. Í fyrstu
þarf að greina sjúkdómsvaldinn
áður en meðhöndlun hefst til að
tryggja virkni meðhöndlunarinnar
og minnka líkur á sýklalyfjaónæmi.
Sýklalyfjaónæmi
Ef bakteríur eða aðrir sýklar mynda
ónæmi eða þol gegn ákveðnum
sýklalyfjum hætta þessi lyf að virka
og sýkingar af völdum þessara sýkla
geta því orðið erfiðar viðureignar.
Sýklalyfjaónæmi er sífellt að aukast
í heiminum, meðal annars vegna
óhóflegrar og óábyrgrar notkunar
sýklalyfja.
Hér á landi er fylgst með ónæm-
um stofnum baktería í dýrum, dýra-
afurðum og umhverfi og hafa þegar
fundist ónæmir stofnar baktería í
búfé, innlendu og erlendu kjöti og
í íslenskri náttúru. Á okkar tímum
er mikilvægt að fylgjast með tíðni
sýklalyfjaónæmra baktería en sýk-
ingar af þeirra völdum geta verið
dýrum og mönnum lífshættulegar
vegna mögulegrar vöntunar á virk-
um sýklalyfjum. Engar upplýsingar
eru til um sýklalyfjaónæmi hjá
bakteríum í dúfum á Íslandi.
Lokaorð
Eins og textinn hér á undan útlistar
er lítið vitað um stöðu sjúkdóms-
valda í íslenskum dúfum. Nokkrir
hafa verið greindir í tilfallandi
sýnum sem komið hafa til rann-
sókna á Tilraunastöðina að Keldum
á liðnum árum og áratugum en
engar markvissar rannsóknir hafa
verið gerðar. Rannsókninni sem nú
er hrundið af stað er ætlað að kort-
leggja sjúkdómsvalda í bæði rækt-
uðum og villtum dúfum á Íslandi.
Mikilvægi rannsókna af þessu tagi
liggur í þeirri þekkingu sem af þeim
hlýst og nýtast niðurstöðurnar ekki
einungis eigendum fuglanna, dýra-
læknum og dúfunum sjálfum heldur
einnig almenningi.
Höfundur óskar eindregið eftir
samvinnu við dúfnaeigendur við
fyrirhugaðar rannsóknir. Þátttaka
felur í sér söfnun drits af hálfu
eigenda og leyfi til þess að heim-
sækja kofa til frekari sýnatöku. Ef
áhugi er fyrir þátttöku er hægt að
hafa samband í tölvupósti, sar-
athor@hi.is eða í síma 691-3369.
Kristbjörg Sara Thorarensen,
dýralæknir hjá Tilraunastöð HÍ
í meinafræðum að Keldum.
Meffíkar skrautdúfur. Mynd / Olgeir Andresson
Höfum opnað nýjan
sýningarsal og
útisýningarsvæði
Verið velkomin í
Trönuhraunið
Ávallt spritt og kaffi á
könnunniVallarbraut.is
S-4540050
HEY! Við seljum góð tæki á góðu verði í sumarverkin, gerið verðsamanburð
Ávinnsluherfi: 2-4-6-8 metra
Áburðardreifarar: 200-2500 lítra
Sláttuvélar 1,2-2,9 m vinnslubreidd
Heytætlur 2,4 - 5,2 m vinnslubreidd
Rakstrarvélar 2,4 - 4,4 m vinnslubreidd
PERKINS 113hp verð: 6.400.000+vsk
Helsti búnaður:
• HiTech4: 16+16 4 milligírar + 4 rafskiptir
• Vökvavendigír
• 3. hraða aflúrtak 540/540E/1000
• Auka ökuljós í topp
• 4 vinnuljós framan + 4 aftan.
• Loftpúðasæti
• Húsfjöðrun
• Dekk 540/65R34 440/65R24
• Ámoksturstæki með rafstýrðum stýripinna innbyggðum í armhvílu
• Dempari á tækjum og rammi sem tekur bæði
Euro og SMS festingar.
• High visibility roof, glerþak að hluta fyrir aukið útsýni
Verð kr.
10.990.000
án vsk.
Austurvegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA
A114 H4
Ve
rð
m
iða
st
við
ge
ng
i E
UR
15
5