Bændablaðið - 28.01.2021, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 202146
Frá því að ég fyrst ók Isuzu D-Max
og skrifaði hér í Bændablaðið 28.
janúar 2010 er komin fjórða útgáf-
an af Isuzu D-Max pallbílunum.
Fyrri bílarnir voru allir með 163
hestafla vélar og máttu draga
kerrur frá 3.000–3.500 kg.
Á pallinn mátti setja rétt frá 500
og upp í 1.000 kg. Ég prófaði í fjórða
sinn á 10 árum D-Max.
Betri vél, meira tog og hleðsla
Samkvæmt upplýsingum frá fram-
leið anda er vélin nú 188 hestöfl,
togið er 450 Newton-metrar (Nm),
ýmist beinskiptur eða með sex gíra
sjálf skiptingu. Á pallinn má nú setja
1.065 kg og dráttargetan er 3.500 kg
á 50 mm dráttarkúlu.
Í boði eru þrjár tegundir af bíln-
um sem nefnast Basic, Pro og Lux.
Ég tók rúmlega 100 km prufutúr
á Lux bílnum og á eftir smá hring á
Basic bílnum, sem er ódýrasti bíll-
inn, beinskiptur og á stálfelgum.
Fyrst ók ég innanbæjarakstur
þar sem meðalhraðinn var í hærri
kantinum, eða 34 km – og var þá
eyðsla mín samkvæmt aksturstölvu
12,1 l á hundraðið. Næst var það
um 35 km akstur þar sem meðal-
hraðinn var 45, en þá var ég að eyða
9,9 lítrum á hundraðið, en uppgefin
eyðsla frá framleiðanda er 7,7 lítr-
ar á hundraðið. Þess ber að geta að
meðan ég var með bílinn var frostið
frá -7 niður í -11 gráður.
Betri fjöðrun og þægilegri sæti
Að keyra bílinn er gott, sætin þægi-
leg og öll stjórntæki og takkar á
þægilegum stöðum. Þó var eitt
sem ég hefði viljað sjá í bílnum
sem sárlega vantaði, sérstaklega í
ljósi þess að úti var frostið á bil-
inu 7–11 gráður, en það var hiti í
stýrið. Í þessum mikla kulda fannst
mér bíllinn fulllengi að hitna inni
í farþegarýminu, en eftir að hann
hitnaði var hitinn jafn og góður.
Að keyra bílinn á möl og í tor-
færum fannst mér nú fjöðrunin
vera mun betri en á fyrri bílunum
(fór ágætlega í gegnum holóttan
vegkaflann og ekkert laus að aftan
eins og oft vill vera á óhlöðnum
pallbílum).
Í torfærum er í boði að vera í
lágadrifinu sem er ekki í öllum
sambærilegum pallbílum sem er
kostur við akstur í miklum snjó
og torfærum. Ekki tókst mér þó
að finna heppilegan stað í frostinu
til að láta reyna á torfærugetuna,
en undir lægsta punkt eru 24 cm
og því ætti bíllinn að henta vel við
ýmsar torfærar aðstæður.
Gott verð á notadrjúgum bíl
Ódýrasti D-Maxinn er á verði frá
7.090.000 og þá beinskiptur sex
gíra. Myndi sjálfur kjósa þann
bíl eingöngu útaf eigin sérvisku.
Ég vil keyra mína bíla sjálfur og
gírskipta en ekki að vera með
sjálfskiptingu sem sér um þetta
fyrir mig, þrátt fyrir að vera orðin
lúinn í hnénu á kúplingslöppinni.
Sjálfskiptingin er sex þrepa og
finnur maður nánast ekkert fyrir
því þegar skiptingin skiptir sér.
Vélin er 3000 cc. dísilvél með
túrbínu og uppgefin 140 kw (sem
er um 188 hestöfl). Hámarks tog er
450 Nm við 1.600 til 2.200 snún-
inga á mínútu.
Eins og alla aðra bíla þá hávaða-
mældi ég bílinn á 90 km hraða, en
hann mældist í dísibílum vera 68,9
db., en var töluvert hærri þegar
ég gaf bílnum inn til að ná 90 km
hraða þar sem að glamrið í vélinni,
sem er hluti af einkennum Isuzu,
heyrðist inn í bílinn. Miðað við
þessa mælingu þá hefur hávaðinn
inni í farþegarýminu lækkað tölu-
vert síðan síðasti D-Max kom á
markað sem mældist 71 db.
Ýmis mál, plúsar og mínusar
Plúsar: Pallinn mældi ég nánast
sömu mælingu og á síðasta D-Max,
lengd 1.520 mm og breidd 1.530
mm. Með lokið niðri (afturgaflinn)
er hann 2.100 mm og á hann má
hlaða 1.065kg.
Fullbúið varadekk er undir bíln-
um að aftan. Uppgefin vatnsdýpt
sem bíllinn má fara í er 80 cm.
D-Max er nú með fimm ára ábyrgð
og togmikinn mótor.
Mínusar ekki margir. Einna
helst að það vantar meiri snerpu
úr kyrrstöðu, en í staðinn er mikið
tog. Þá vantar hita í stýri og mið-
stöð mætti vera fljótari að hitna.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 2.020 kg
Hæð 1.785 mm
Breidd 1.870 mm
Lengd 5.265 mm
Helstu mál og upplýsingar
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Nýr Isuzu D-Max 2021:
Með fimm ára ábyrgð og togmikinn mótor
Isuzu D-Max Lux. Myndir / HLJ
Ódýrasti D-Maxinn nefnist Basic og kemur á stálfelgum.
Fremst á pallinum er svelgur til að hleypa vatni niður, en pallurinn mældist
152x153 lokaður.
Ágætis árangur í eyðslu á tveggja tonna bíl í 10 stiga frosti.
Nota mikið þessa mynd í akstri til að læra inn á eyðslu, sem er mjög þægilegt.
Auðvelt að skipta á milli drifa og
setja í lága drifið.
Freka óskýr mynd, en á línuritinu má
sjá að mælingin var hærri meðan
verið var að ná 90, en lækkaði
svo örlítið þegar komið var í jafna
keyrslu.