Bændablaðið - 28.01.2021, Qupperneq 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2021 55
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Startarar og Alternatorar
- Vinnuvélar
- Ly�arar
- Drá�arvélar
- Bátar
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
www.velavit.is
Erum með varahluti og þjónustu fyrir allar JCB vélar
S: 527 2600
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Ertu í framkvæmdarhugleiðingum?
Við hjá Landvit finnum oftast hagstæðustu lausnina.
Nánari upplýsingar í síma 824-5066 eða á netfangi viggo@landvit.is
BÆKUR& MENNING
Hið íslenska bókmenntafélag
hefur sent frá sér bókina Dýraríki
eftir Örnólf Thorlacius. Bókin,
sem er í tveimur bindum, er í
senn uppfull af fróðleik um dýr
af öllum stærðum og gerðum,
allt frá örsmáum frumdýrum til
stærstu spendýra. Stórglæsilegt
rit sem nýtist öllum sem hafa hinn
minnsta áhuga á náttúrufræði.
Í bókunum er fjallað í máli og
myndum um lífsstörf og líkamsgerð
dýra, flokkun þeirra og helstu
eiginleika, og sagt frá hegðun og
sérkennum fjölda einstakra tegunda.
Farið er víða yfir og fléttað saman
fræðilegum texta og forvitnilegum
frásögnum.
Ástríða fyrir fróðleik
Örnólfur var líffræðingur og kennari
og kom víða við og er bæði höfundur
margra bóka auka þess sem hann
var stórvirkur þýðandi. Dýraríkið er
hans metnaðarfyllsta ritverk og ber
vitni ævilangri ástríðu fyrir hvers
kyns fróðleik tengdum dýraríkinu.
Örnólfi entist ekki aldur til að
fylgja ritinu eftir til útgáfu og sáu
Árni Thorlacius lífefnafræðingur,
Lárus Thorlacius eðlisfræðingur
og Magnús Thorlacius líffræðingur
um að ljúka verkinu en allir eru þeir
afkomendur Örnólfs.
Frá einfrumungum til hryggdýra
Ritið hefst á almennri umfjöllun
um vettvang og sögu dýrafræðinnar,
meginflokkun dýra, lífsstörfum
þeirra og líkamsgerð. Síðan er
mismunandi fylkingum dýraríkisins
skipulega lýst, frá einfrumungum
til vefdýra, hryggleysingjum til
hryggdýra. Fyrra bindið endar á
ítarlegri umfjöllun um fugla og í
seinna bindinu er sagt frá fiskum,
froskdýrum og skriðdýrum og loks
okkar nánustu ættingjum á
skyldleikatrénu, spendýrunum.
Ritið er ríkulega myndskreytt og
því fylgir ítarleg atriðisorðaskrá.
/VH
Dýraríkið í máli og myndum