Skessuhorn - 06.01.2021, Side 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1. tbl. 24. árg. 6. janúar 2021 - kr. 950 í lausasölu
AÐEINS 1.390 KR.
HEIMSENDINGARGJALD
GREIÐIST AÐEINS
EINU SINNI FYRIR
HVERJA PÖNTUN
Niðurstaða úr vali á Vestlendingi
ársins 2020 var lýst 29. desember
síðastliðinn við fámenna en góð-
menna athöfn í Borgarnesi. Þetta er
í 23. skipti sem Skessuhorn gengst
fyrir vali á einstaklingi eða hópi
í landshlutanum sem þykir hafa
skarað framúr á árinu. Lýst var eft-
ir tilnefningum og vann dómnefnd
á Skessuhorni úr þeim. Niðurstað-
an var afgerandi. Vestlendingar árs-
ins 2020 eru starfsfólk sjö dvalar-
og hjúkrunarheimila á Vesturlandi.
Þessi stóri hópur fólks á mikl-
ar þakkir skildar fyrir frumkvæði,
elju og fórnfýsi á árinu við að verja
heimilin fyrir kórónaveirunni.
Heimilin eru: Brákarhlíð í Borg-
arnesi, Dvalarheimili aldraðra í
Stykkishólmi, Fellaskjól í Grund-
arfirði, Jaðar í Ólafsvík, Silfur-
tún í Búðardal, Hjúkrunarheim-
ilið Fellsenda í Dölum og Höfði á
Akranesi. Það voru fulltrúar fimm
þessara heimila sem tóku við blóm-
um og viðurkenningarskjali en tvö
þeirra áttu ekki heimangengt þegar
afhendingin fór fram og fengu því
sendingu.
Í samtali við forstöðufólk dval-
ar- og hjúkrunarheimilanna kom
fram að föstudaginn 6. mars hafi
orðið ljóst að hjúkrunarheimili
landsins þyrftu að bregðast við út-
breiðslu veirunnar af festu og finna
út hvernig verja mætti íbúa fyrir
að smit bærist inn á þau. Í fyrstu
hafi hvert og eitt heimili þurft að
smíða sínar eigin reglur nánast dag
frá degi en síðan hafi verið hægt
að styðjast við leiðbeinandi reglur.
Starfsfólk allra þessara heimila hafi
tekið upp varnir og framfylgt þeim
af festu. „Það pössuðu sig allir al-
veg svakalega vel,“ höfðu viðmæl-
endur Skessuhorns á orði. Þegar
fyrsta bylgja kóvidveirunnar gekk
yfir síðasta sumar hafi skapast and-
rými til að létta á reglunum tíma-
bundið og þá hafi verið kærkomið
að starfsfólk fékk sumarleyfi áður
en önnur bylgjan blossaði svo upp
í byrjun ágúst. Nú er bólusetning
íbúa á hjúkrunarheimilum hafin og
segjast nýkjörnir Vestlendingar árs-
ins fagna því mjög.
Skessuhorn færir, fyrir hönd íbúa
á Vesturlandi, starfsfólki þessara sjö
heimila hamingjuóskir með frábær-
an árangur á árinu 2020. mm
Vestlendingar ársins eru starfsfólk
dvalar- og hjúkrunarheimila
Fulltrúar fimm af sjö dvalar- og hjúkrunarheimilum sáu sér fært að mæta og taka við blómvendi og viðurkenningarskjali. Þau eru f.v: Inga Kristinsdóttir frá Jaðri í
Ólafsvík, Kjartan Kjartansson frá Höfða á Akranesi, Ása María Hauksdóttir frá Silfurtúni í Búðardal, Björn Bjarki Þorsteinsson frá Brákarhlíð í Borgarnesi og Kristín
Hannesdóttir frá Stykkishólmi. Á myndina vantar fulltrúa frá Fellaskjóli í Grundarfirði og Fellsenda í Dölum. Ljósm. Skessuhorn/ glh.
Tilboð gildir út
* 330 ml. af Coca Cola
eða Coca Cola
án sykurs fylgir með
Hot dog & Coca cola
5 9 kr.
& coke
Í dós
Mánaðamót
í Arion appinu
Prófaðu besta bankaappið
*Skv. könnun MMR
Borga reikninga
Millifæra
Frysta kort
Dreifa greiðslum
Stýra y�irdrætti
Sækja um Núlán
*