Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202120
Föstudaginn 18. desember var 51
nemandi brautskráður frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Vegna fjöldatakmarkana voru at-
hafnir dagsins tvær, sú fyrri klukk-
an 11 en þá brautskráðust nemend-
ur á iðnnámsbrautum, en klukk-
an 14 voru brautskráðir nemendur
af bóknámsbrautum. Engir gestir
fengu að vera viðstaddir athafnirn-
ar, en streymt var frá brautskrán-
ingunni. „Þrátt fyrir óvenjulegar
kringumstæður var dagskráin með
hefðbundnu sniði. Dröfn Viðars-
dóttir aðstoðarskólameistari ávarp-
aði nemendur í upphafi athafn-
ar og Steinunn Inga Óttarsdóttir
skólameistari flutti ávarp og hvatti
nemendur til dáða. Nýstúdentarnir
Björgvin Þór Þórarinsson og Rak-
el Rún Eyjólfsdóttir fluttu tvö lög
fyrir gesti og áhorfendur heima í
stofu. Þau Hlöðver Már Pétursson
og Kartín María Rafnsdóttir fluttu
ávörp fyrir hönd útskriftarnema.
Dúx Fjölbrautaskóla Vesturlands
er Hlöðver Már Pétursson en hann
útskrifaðist bæði úr rafvirkjun og
eftir viðbótarnám til stúdentsprófs.
Eftirtaldir útskriftarnemar fengu
verðlaun og viðurkenningar fyrir
námsárangur og störf að félags- og
menningarmálum. Nöfn þeirra sem
gáfu verðlaun eru innan sviga:
Aþena Ósk Eiríksdóttir fyrir ágæt-
an árangur í dönsku (Danska sendi-
ráðið) og spænsku (Fjölbrautaskóli
Vesturlands)
Birkir Daði Jónsson fyrir góðan ár-
angur í sérgreinum rafiðngreina
(Skaginn 3X)
Bjartur Snær Márusson fyrir góðan
árangur í sérgreinum rafiðngreina
(VS Tölvuþjónustan)
Björgvin Þór Þórarinsson fyr-
ir störf að félags- og menningar-
málum (Minningarsjóður um Karl
Kristin Kristjánsson)
Elín Mist Laxdal Sigurðardóttir
fyrir góðan árangur í félagsgrein-
um og erlendum tungumálum
(Fjölbrautaskóli Vesturlands) og
fyrir bestan árangur á stúdentsprófi
í bóknámi (Fjölbrautaskóli Vestur-
lands)
Garðar Snær Bragason fyrir störf
að félags- og menningarmálum
(Minningarsjóður um Karl Kristin
Kristjánsson)
Hlöðver Már Pétursson fyr-
ir framúrskarandi árangur í iðn-
námi (Katla Hallsdóttir, Hárhús-
inu), framúrskarandi árangur í sér-
greinum rafiðngreina (Fjölbrauta-
skóli Vesturlands), fyrir ágætan ár-
angur í íslensku (Fjölbrautaskóli
Vesturlands), fyrir framúrskarandi
námsárangur (Terra) og fyrir fram-
úrskarandi árangur í bæði bók- og
verknámi (Fjölbrautaskóli Vestur-
lands)
Jóhann Hlíðar Hannesson fyr-
ir ágætan árangur í lokaverkefni
tréiðngreina (Elkem Ísland)
Katla Kristín Ófeigsdóttir fyrir
framlag til umhverfismála (Sorop-
timistasystur á Akranesi)
Katrín María Rafnsdóttir fyrir störf
að félags- og menningarmálum
(Minningarsjóður um Karl Kristin
Kristjánsson)
Þórhildur Halla Jónsdóttir fyr-
ir ágætan árangur í sérgreinum
tréiðngreina (Verkalýðsfélag Akra-
ness). mm/ Ljósm. fva.
Hlöðver Már Pétursson var dúx
Fjölbrautaskóla Vesturlands með
lokaeinkunnina 9,41 en hann út-
skrifaðist úr rafvirkjun með viðbót-
arnám til stúdentsprófs. Hann hlaut
viðurkenningu fyrir framúrskarandi
árangur í iðnnámi, framúrskarandi
árangur í sérgreinum rafiðngreina,
fyrir ágætan árangur í íslensku, fyr-
ir framúrskarandi námsárangur og
fyrir framúrskarandi árangur í bæði
bók- og verknámi.
Spurður hver sé lykillinn að svo
góðum árangri í námi svarar Hlöð-
ver: „Það er held ég bara metnað-
ur og vinnusemi. Ef maður leggur
hart að sér og er tilbúinn að leggja á
sig það sem til þarf þá getur maður
náð þessum árangri.“ Hlöðver segir
námið einnig hafa legið frekar vel
fyrir sér en hann hefur alla tíð ver-
ið góður námsmaður. „Ég hef ver-
ið duglegur að læra í gegnum tíðina
og hef haft metnað fyrir því sem ég
er að gera. Svo myndi ég segja að
ég væri bara samviskusamur þegar
kemur að náminu,“ segir Hlöðver.
En af hverju valdi hann rafvirkjun?
„Ég valdi rafvirkjun bara þegar ég
fór á nýnemadag í fjölbraut þeg-
ar ég var í grunnskóla, þá fékk ég
kynningu á náminu og það heill-
aði mig. Mér þótti líka heillandi
við iðnnám að þá er greið leið inn
á vinnumarkaðinn eftir nám,“ svar-
ar hann.
Það gefst tími fyrir það
sem maður vill
Hlöðver starfar í dag sem rafvirki
hjá Blikksmiðnum í Reykjavík en
hann byrjaði að vinna þar síðasta
sumar. Hann ætlar að halda áfram
að starfa þar en stefnir á háskóla-
nám næsta haust. „Ég ætla í áfram-
haldandi nám tengt rafmagni en ég
er ekki alveg búinn að ákveð í hvaða
nám ég fer, hvort það verði verk-
fræði eða iðnfræði,“ segir Hlöðver.
Aðspurður segist hann hafa unnið
eins og hann gat með náminu. „Ég
vann öll sumur og eitthvað yfir vet-
urinn líka flestar annir. Þó komu
annir sem voru svo þétt skipað-
ar að það var ekki tími til að vinna
samhliða náminu,“ segir hann og
bætir við að auk vinnunnar hef-
ur hann verið að æfa fótbolta með
ÍA en núna er hann búinn að færa
sig yfir í Kára og spilar með þeim.
„Það gefst alltaf tími fyrir það sem
maður vill,“ segir Hlöðver kátur að
endingu. arg
Skömmu fyrir jól voru samþykkt
á Alþingi þrjú frumvarp Katrínar
Jakobsdóttur forsætisráðherra sem
tryggja eiga rétt fólks með kyn-
hlutlausa skráningu og trans fólks
auk barna sem fæðast með ódæmi-
gerð kyneinkenni. Þær breytingar
sem felast í frumvörpunum þrem-
ur koma til vegna bráðabirgða-
ákvæðis í lögum um kynrænt sjálf-
ræði sem samþykkt voru á Alþingi
sumarið 2019.
Katrín Jakobsdóttir segir að
með frumvörpunum hafi Alþingi
samþykkt miklar réttarbætur fyr-
ir unglinga sem upplifa kynmis-
ræmi enda hafa rannsóknir sýnt að
það skiptir sköpum fyrir líðan og
geðheilsu trans unglinga að sjálfs-
mynd þeirra njóti viðurkenning-
ar aðstandenda og vina og að þau
mæti skilningi í félagslegum sam-
skiptum sínum við aðra. „Einn-
ig hvað varðar fólk með hlutlausa
kynskráningu og trans fólk, með-
al annars að því er varðar barn-
eignir. Nú er kynskráning þeirra
viðurkennd að fullu og jafnræðis
gætt að lögum. Enn fremur er um
að ræða mikla réttarbót fyrir börn
sem fæðast með ódæmigerð kyn-
einkenni og aðstandendur þeirra,“
segir Katrín.
Frumvörpin eru þrjú. Í fyrsta
lagi er um að ræða frumvarp um
breytt aldursviðmið til að breyta
opinberri skráningu kyns samhliða
nafni. Þar er lagt til að miða við
15 ára aldur í stað 18 ára. Í öðru
lagi er frumvarp sem tryggir rétt
barna, sem fæðast með ódæmigerð
kyneinkenni, gegn ónauðsynleg-
um skurðaðgerðum og þannig er
staðið vörð um líkamlega friðhelgi
þeirra. Í þriðja lagi frumvarp til
laga um breytingar á ýmsum lög-
um til að tryggja lagaleg réttindi
fólks með kynhlutlausa skráningu
og trans fólks.
Frumvörpin byggja á vinnu
starfshópa sem skiluðu af sér tveim-
ur skýrslum þar sem ítarlega er far-
ið yfir þær helstu mannréttinda-
reglur og tilmæli stofnana í mál-
efnum hinsegin fólks auk þess sem
farið var ítarlega yfir helstu álita-
efni, lagaleg og siðfræðileg sem
málið varða.Starfshóparnir voru
skipaðir fulltrúum hagsmunaaðila,
barnaskurðlækni, barnainnkirtla-
lækni, siðfræðingi, barnasálfræð-
ingi, kynjafræðingi, mannréttinda-
lögfræðingi og lögfræðingi með
sérþekkingu á réttindum barna. mm
Í vikunni fyrir jól voru átta nem-
endur útskrifaðir með stúdentspróf
frá Menntaskóla Borgarfjarðar í
Borgarnesi. Það voru þau Aleks-
andar Milenkoski, Andri Freyr
Dagsson, Aníta Ýr Strange, Íris
Líf Stefánsdóttir, Julian Golabek,
Óliver Kristján Fjeldsted, Stef-
án Fannar Haraldsson og Þórður
Brynjarsson. Ekki var um formlega
útskriftarathöfn að ræða að þessu
sinni sökum sóttvarna, en á mynd-
inni má sjá helming hópsins ásamt
Braga Þór Svavarssyni skólameist-
ara.
mm/ Ljósm. MB.
Í lok athafnar settu þeir nemendur sem það kusu upp húfur sínar og veifuðu gestum sem fyldust með í gegnum streymi.
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi
Hlöðver Már var dúx FVA
Dröfn Viðarsdóttir, Hlöðver Már Pétursson dúx og Steinunn Inga Óttarsdóttir.
Ljósm. fva.is
Voru útskrifuð úr Mennta-
skóla Borgarfjarðar
Réttindi trans og intersex fólks
tryggð í nýjum frumvörpum