Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 2021 27 Pennagrein Krossgáta Skessuhorns Morgun- hress Nesoddi Tálbiti Sk.st. Háhýsi Grípa Raust Sex Tákn Önug Mýri Offur Kona Átt Græðgi Skýli Dvelja Bæta Fruma Rjóð Á skipi Bull Kviður Kröggur Keröld Kögur Spaug Forviða Hvíldi 5 Jurta- seyði Tregar Kær félagi Gaufar Skel Blundur Rösk Fríður 7 Óspekt- ir Ótti Læti Fjörug- ur Pípa Í eggi Röð Tré Teppið Erfiði 2 Tusk Hófdýr Hópur Spann Tangi Byrði Tölur Þröng Tæp Reipi Tvenna Kjósa Elskar 1 Stía Van- treystir Þófi Sólguð Drakk H æ ð Svar Vangi 4 Fljót Átt Í bítið 8 Fróðir Deila Aumar Herða- skjól Skoða Jarð- eign Blóm Malur For- setning Svalt Dægur Þegar Hrekkir 500 Rangl Tófa Yfir- höfnin Hrúga Mynni Veiði- tæki Kona Mjög Kúgun Korn KL..15 Ras Ólíkir Ögn Þörf Hjarir 3 Skera Rétt Vissa 6 1 2 3 4 5 6 7 8 Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vakin á því að krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyr- ir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Garðabraut 2A, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt- ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að launum. Lausn á krossgátu í Jólablaðinu verður birt í næstu viku ásamt nafni heppins vinningshafa. Banvæn mistök í íslenska heilbrigð- iskerfinu er heiti bókar Auðbjarg- ar Reynisdóttur hjúkrunarfræð- ings þar sem hún segir frá skelfi- legri reynslu en sonur hennar, Jóel Gautur, lést á barnadeild Hringsins liðlega ársgamall. Bók Auðbjargar byggir á sjúkraskrám og dagbók- um en í henni er rætt um fagleg og ófagleg viðbrögð við alvarlegum mistökum í meðferð sjúklinga. En einnig hvernig móðir getur lifað af missi og mætt viðbrögðum kerfis- ins. Í inngangi segir höfundur m.a.: „Bók þessi er endapunkturinn í við- leitni minni til að stöðva maskínuna sem fór í gang 22. febrúar 2001 á bráðamóttöku barna á Landspítal- anum. Hörmungar sem kostuðu son minn lífið. Stjórnendur og embætt- ismenn hafa ekki getað sannfært mig um að lærdómur af mistök- unum verði öðrum til verndar. Það sem þeir hafa reynt að réttlæta hef- ur einungis gert illt verra. Saga Jó- els Gauts Einarssonar (1999–2001) á erindi við alla þá sem tengjast heilbrigðiskerfinu, starfsfólk þess, sjúklinga og aðstandendur.“ útgefandi er Bókaútgáfan Sæ- mundur og er bókin þegar komin í allar helstu bókabúðir. -fréttatilkynning Komin er út bókin Shooting Rescue, sem er 160 blaðsíðna ljósmynda- bók með sögunum á bakvið mynd- irnar á íslensku og ensku. „Síðustu tíu árin hef ég verið hirðljósmynd- ari Slysavarnafélagsins Landsbjarg- ar og ljósmyndað björgunarsveitir á æfingum og í útköllum. Myndefnið hefur svo verið notað í kynningar- starf fyrir félagið og ekki síður sem innlegg í söguskráningu og heim- ildavinnu um þetta merkilega starf. Í bókinni sýni ég mínar uppáhalds ljósmyndir frá þessum tíma og segi sögurnar á bakvið myndirnar,“ seg- ir Sigurður Ólafur Sigurðsson ljós- myndari í tilkynningu. Meira um verkefnið má sjá í vef- verslun hans: www.sosfotoshop. com og á youtube. Þjóðgarðar eru aðdráttarafl fyrir ferðamenn og hafa mikil efnahags- áhrif á nærsamfélagið, fyrir því eru ótal rannsóknarskýrslur bæði inn- lendar sem erlendar. Undirritaður þekkir vel til ferðaþjónustufyrir- tækja í Skaftafellssýslum og rekst- urs þjóðgarða, get því fullyrt að það hafi verið gæfuspor fyrir sveit- arfélögin í Skaftárhreppi og Sveit- arfélagið Hornafjörð að stofnaður var Vatnajökulsþjóðgarður 2008. Árið 2019 heimsóttu um 600.000 gestir Skaftafell og Jökulsárlón. Á þriðja tug nýrra ferðaþjónustufyr- irtækja hafa verið stofnuð á síðustu tíu árum. Íbúafjöldi í Öræfum hef- ur tvöfaldast frá 2010, ungt fólk sest að í sveitinni. Fjöldi fastráð- inna starfsmanna í þjóðgarðinum er 34 og af þeim eru 30 á landsbyggð- inni. Uppbygging í sveitarfélög- unum og innan þjóðgarðsins hafa verið mikil, nýlega hófst uppbygg- ing á nýrri gestastofu á Kirkjubæj- arklaustri. Þess má geta að landeig- endur á Skálafelli í Suðursveit og á Hoffelli í Nesjum hafa lagt hluta af sínu landi undir Vatnajökulsþjóð- garð, landið er í einkaeign en inn- an marka þjóðgarðsins. Það er misskilningur hjá mörg- um sveitarstjórnarfulltrúum að skipulagsvaldið fari frá sveitar- félögunum við stofnun miðhálend- isþjóðgarðs. Samkvæmt skipulags- lögum þá eru það sveitarfélögin sem útbúa og samþykkja aðal- og deiliskipulag. Sveitarfélögin þurfa að haga sinni aðalskipulagsvinnu þannig að hún sé í samræmi við landskipulagsstefnu sem legg- ur megin áherslur í landnýtingu s.s. vegagerð og útivist. Ákvörðun um friðlýsingar er alltaf ákvörðun landeiganda, sveitarfélags og nátt- úruverndaryfirvalda, það sem ger- ist innan friðlandsins er því sátt- máli þessara aðila. Ákvæði friðlýs- inga á hverju friðlýstu svæði get- ur því verið mismunandi. Í frum- varpsdrögum að hálendisþjóðgarði er gert ráð fyrir fimm svæðisráð- um, en þar mun fjöldi hagsmuna- aðila koma að ákvarðanatöku um uppbyggingu s.s. sveitarstjórnar- fulltrúar, ferðamála- og bænda- samtök. Með því er verið að koma á móts við óskir hagsmunasamtaka að hafa möguleika á að hafa áhrif á ákvarðanir í rekstri og uppbygg- ingu þjóðgarðsins. Sem forseti sveitarstjórnar Borg- arbyggðar 2010-2014 þá vann ég og Páll S. Brynjarsson fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar að fá samþykkt að útbúa ísgöng í Lang- jökli 2011. Þar sem ósvissa var um eignarhald og allt benti til að jök- ullinn yrði dæmdur þjóðlenda þurfti fjölda funda með lögfræð- ingum og sérfræðingum úr stjórn- arráðinu. Ég er viss um að flækju- stigið og hættan að ekkert yrði úr framkvæmdinni hefði verið minni ef búið væri að stofnan þjóðgarð á Langjökli. Þá hefði ákvörðunin verið hjá sveitarfélaginu og hags- munaaðilum en ekki í forsætisráðu- neytinu. Ísgöngin í Langjökli hafa haft mikil og góð efnahagslegaáhrif á samfélagið í uppsveitum Borgar- fjaðrar. Uppbygging ferðaþjón- ustu í Húsafelli og Víðgemli hefði væntanlega ekki verið jafn mikil ef ísgöngin hefðu ekki verið komin. Árið 2019 komu yfir 35.000 gestir inn í ísgöngin. Það yrði happafengur fyrir Borg- arbyggð að fá þjóðgarðsvörð upp í Húsafell og allt að fimm land- verði til að hugsa um vesturhluta miðhálendisþjóðgarðs í samvinnu við Húnvetninga. Það er mikilvægt að hafa sérmenntað starfsfólk til að sinna fræðslu um náttúru svæð- anna og byggja þau upp svo þau geta tekið á móti ferðamönnum á komandi árum. Ef horft er yfir sögu friðlýsinga á Íslandi, þá kemur í ljós að fjöl- margir framsýnir Alþingismenn hafa staðið í forystuhlutverki í náttúruvernd. Má þar nefna Jón- as Jónsson frá Hriflu, fyrrum ráð- herra, en hann var hvatamaður að Þingvellir voru friðlýstir, hann barðist fyrir málinu og að lok- um var svæðið friðlýst 1930 sem helgistaður þjóðarinnar. Á Þing- velli komu 1,5 milljón ferðamanna 2019 og svæðið er á heimsminja- skrá UNESCO. Eysteinn Jónsson, fyrrum ráðherra, var aðal hvata- maður að fyrstu náttúruverndar- lögum landsins sem samþykkt voru 1956. Á þeim byggja forsenda fyr- ir friðlýsingum náttúruminja m.a. þjóðgarða. Össur Skarphéðinsson og Guðmundur Bjarnason unnu að stofnun Snæfellsnessþjóðgarðs í sinni ráðherratíð. Siv Friðleifs- dóttir umhverfisráðherra rak síðan smiðshöggið 2001 og hefur Snæ- fellsnessþjóðgarður verið mikill happafengur fyrir Vestlendinga. Siv Friðleifsdóttir, Jónína Bjart- marz og Sigríður Anna Þórðardótt- ir unnu einnig ötullega að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og ákváðu að tengja rekstur hans við svæðis- ráð og auka þar með áhrif sveitar- stjórna og ferða- þjónustu á stjórn þ j ó ð g a r ð s i n s . Vatnajökulsþjóð- garður var settur á heimsminjaskrá UNESCO 2018. Nú hefur Guðmundur Ingi Guð- brandsson umhverfisráðherra lagt fram stjórnarfrumvarp um stofn- un hálendisþjóðgarðs, sem nær yfir núverandi Vatnajökulsþjóðgarð, fjölmörg friðlönd og þjóðlendur á hálendinu. Yfir 90% svæðisins eru þjóðlendur og því í umsjón stjórn- arráðsins. Með því að stofna þjóð- garð yfir svæðin sem eru þjóðlend- ur þá færist stjórnsýslan frá stjórn- arráðinu til svæðisstjórna þjóð- garðsins. Með öðrum orðum að færa valdið heim í hérað. Alþingismenn og sveitarstjórn- arfólk þurfa að kynna sér málið vel og skoði sögu þjóðgarða á Ís- landi og hvaða gæfuspor þau hafa haft fyrir lítil sveitarfélög á lands- byggðinni. Það þarf framsýnt fólk að taka góðar ákvarðanir fyrir land og þjóð. Ragnar Frank Kristjánsson. Höf. er landslagsarkitekt. Sveit- arstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð 2010-2018 og þjóðgarðsvörður í Skaftafelli 1999-2007. Hálendisþjóðgarður - tækifæri fyrir samfélagið Banvæn mistök í íslenska heilbrigðiskerfinu Gaf út ljósmyndabók um störf björgunarsveita

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.