Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 2021 21 Á vef Stykkishólmsbæjar er greint frá því að best skreytta hús bæjar- ins sé Hjallatangi 26. Hefð hefur skapast fyrir þessari tilnefndingu fyrir jólin. Níundi bekkur grunn- skólans sá um valið. mm/ Ljósm. Stykkishólmur.is Skömmu fyrir jól lagði menningar- nefnd Grundarfjarðar af stað í leit að fallega skreyttu, frumlegu og fögru jólahúsi. „Staðar var numið í brekkunni við Ölkelduveg - þar sem við blasti einstök sjón,“ segir í frétt á vef bæjarfélagsins: „Því í myrkr- inu leynast hinar ýmsu perlur og við leit að jólahúsi Grundarfjarð- ar fann menningarnefnd sannkall- aða perlu. Á Fagurhóli 5 lýsir upp í myrkrinu hús, skreytt með fal- legum jólaljósum og jólaskreyting- um. Þar búa hjónin Kristinn Ólafs- son og Elín Hróðný Ottósdóttir, sem hljóta verðlaun fyrir Jólahús Grundarfjarðarbæjar 2020.“ mm/ Ljósm. grundarfjordur.is Laugardaginn 19. desember braut- skráðust 15 nemendur frá Fjöl- brautaskóla Snæfellinga. Var þetta 31. brautskráning í sögu skólans. Af félags- og hugvísindabraut braut- skráðust sex nemendur, þeir eru: Anel Crnac, Áslaug Stella Stein- arsdóttir, Björg Hermannsdóttir, Elísabet Páley Vignisdóttir, Hel- ena Anna Hafþórsdóttir og Viktor Brimir Ásmundsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðust fjórir nemendur, þeir eru: Eiríkur Már Sævarsson, Elva Björk Jónsdóttir, Thelma Lind Hinriksdóttir og Vignir Steinn Pálsson. Af opinni braut til stúdentsprófs brautskráðust fimm nemendur, þeir eru: Elizaveta Kiakhidi, Karen Rut Ragnarsdóttir, Lydía Rós Unn- steinsdóttir, Marteinn Gíslason og Tanja Lilja Jónsdóttir. Hæstu meðaleinkunn á stúdents- prófi hlaut Thelma Lind Hinriks- dóttir. mm/ Ljósm. sá. Þegar nýtt ár gekk í garð var blíð- viðri um mestallt landið. Fjölmargir skutu upp flugeldum, kvöddu gamla árið með takmörkuðum söknuðu og heilsuðu því nýja. Veður var svo stillt að tímabundið mengunarský lagðist yfir þar sem miklu var skot- ið upp. mm/ Ljósm. Alfons Finnsson Thelma Lind Hinriksdóttir hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga við útskrift 19. desember síðastlið- inn. Uppskar hún 8,9 í lokaein- kunn. Thelma útskrifaðist af nátt- úru- og raunvísindabraut enda hef- ur hún alltaf haft mikinn áhuga á raunvísindum. „Mér hefur alltaf þótt stærðfræði, eðlisfræði og líf- fræði skemmtileg, sérstaklega líf- fræðin,“ segir Thelma þegar blaða- maður Skessuhorns sló á þráðinn til hennar. Thelma er fædd og uppalin í Stykkishólmi og segir aldrei ann- að hafa komið til greina en að fara í FSN að loknum grunnskóla. „Þetta er góður skóli og ég sé ekki að ég hefði lært meira í öðrum skóla og svo bara hentaði það best að fara þangað,“ segir Thelma. Hún lauk stúdentsprófinu á tveimur og hálfu ári og vann næstum allan tímann samhliða náminu auk þess sem hún var í skemmtinefnd og íþróttanefnd við skólann veturinn 2019-2020. „Ég var að vinna í bakaríinu og svo var ég í smá tíma á Hótel Fransiskus hér í Stykkishólmi og núna í haust, þar til því var lokað, var ég að þjóna á Narfreyarstofu,“ segir Thelma. Aðspurð segist hún stefna á að fara að vinna fljótlega en í haust tekur hún stefnuna á áframhaldandi nám. „Ég er ekki alveg ákveðin en núna heillar mig mest að fara í lífeinda- fræði en ég hef líka verið að skoða heilbrigðisverkfræði og læknis- fræði,“ segir Thelma. Ótrúlega mikil vinna Hver er lykillinn að þessum góða námsárangri? „Ótrúlega mik- il vinna,“ svarar Thelma og held- ur áfram: „Maður þarf að vera til- búin að fórna hlutum sé þörf á því, maður kemst kannski ekki á hvert einasta ball eða á rúntinn á hverju kvöldi. Ég átti samt alveg mikið félagslíf og tók þátt í því eins og ég gat en ef þess þurfti varð ég samt að geta fórnað því í smá stund til að læra. Þetta er bara vinna og það þarf að hafa fyrir því að ná árangri. Þegar maður leggur á sig og vinn- ur fyrir því sem maður fær getur maður ekki verið annað en ánægð- ur,“ segir Thelma. „Svo svaf ég ekki mikið þennan tíma,“ bætir hún við og hlær. Aðspurð segist Thelma alltaf hafa haft gaman að tónlist og svo nýtur hún þess að lyfta lóðum og hreyfa sig. Hún hefur reynt að sinna þess- um áhugamálum samhliða nám- inu en stefnir á að gefa þeim enn meiri tíma núna. „Ég var í ólymp- ískum lyftingum en hef lítið getað sinnt þeim undanfarið, ég er ekki með búnað til þess hér heima. En ég vona að núna þegar ég fæ meiri tíma geti ég farið að lyfta meira. Ég elska að lyfta lóðum,“ segir hún. arg Brennur voru víðast hvar ekki haldnar vegna samkomutakmarkana. Undan- tekning var á Breiðinni skammt frá Rifi þar sem íbúar gátu fylgst með úr bílum sínum. Nýtt ár heilsaði í blíðviðri Eins og sjá má var einstök veðurblíða í Ólafsvík þegar nýtt ár gekk í garð. Hjallatangi 26 er best skreytt húsið í Hólminum Jólahúsið í Grundarfirði Soffía Dagbjört Jónsdóttir hefur verið ráðin í stöðu gæða- og mann- auðsstjóra Borgarbyggðar, en frá þessu er greint á vef sveitarfélags- ins. Soffía Dagbjört hefur lokið BA gráðu í félagsráðgjöf og mast- ersgráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsmál. Hún hef- ur undanfarið starfað sem deildar- stjóri í einkageiranum en þar áður vann hún hjá Reykjavíkurborg. arg Nemendur útskrifuðust frá FSN Hér má sjá 13 af 15 útskriftarnemum skólans ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Thelma Lind er dúx FSN Thelma Lind var með hæstu einkunn á stúdentsprófi við útskrift Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í desember. Ljósm. sá Soffía Dagbjört er nýr gæða- og mannauðsstjóri Soffía Dagbjört Jónsdóttir. Ljósm. Borgar- byggð.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.