Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202124 Árið 2020 gekk í garð á fremur hefðbundinn hátt. Þannig hagar til á mínum bæ að ljósagangur í höf- uðborginni sést vel og hávaði heyr- ist líka nema rok sé. Þar sem hross- in geta orðið hrædd við lætin voru þau tekin inn, útvarpið hátt stillt og ljósin kveikt. Hundurinn Lappi fékk að kúra í stofunni talsvert fram yfir miðnætti. Að lifa er að eldast. Það var kom- ið að afmæli í virðulegri kantinum. Mig langaði til að halda upp á það með einhverju sem ég hafði ekki gert fyrr, helst einhverju þrennu. Svo komu tækifærin eitt af öðru. Lengi hafði ég ætlað að styðja barn í þriðja heims landi, en vildi sjá að- stæður með eigin augum fyrst. Í febrúar kom tækifæri að ferðast til Kenýa á vegum Íslensku barna- hjálparinnar, en Þórunn Helgadótt- ir sem hefur búið í Kenýa í mörg ár leiðir starfið. Veiran var þá bara frétt frá örfáum löndum, að vísu ansi alvarleg frétt, en við ákváðum að drífa okkur samt þar sem Kenýa var enn laust við veiruna, eins og Svíþjóð og Katar þar sem við milli- lentum. Í stuttu máli þá var þessi ferð ein magnaðasta upplifun lífs míns. Íslenska barnahjálpin rekur þrjá skóla í Kenýa og kallar þá Har- vest skólana. Í þeim eru um 550 börn. Skólinn í Nairobi er í Kar- iobangi sem er á mörkum nokk- urra fátækrahverfa. Við sáum mikla fátækt, já örbyrgð, en allir sem við hittum töluðu um Harvest skólann af virðingu og þakklæti, enda opnar hann fjölda barna leið til betra lífs. Helst þurfa nemendur í Harvest skólunum að hafa stuðningsaðila sem greiðir fyrir nám og kennslu- gögn, skólabúning og mat. Skóla- búningurinn nýtur virðingar og verndar einnig börnin. Jafnframt er hann oft einu klæðin sem þau eiga. Þarna var ég kynnt fyrir Elizabeth 14 ára og mömmu hennar. Eliza- beth fékk að vera í skólanum enda hafði hún staðið sig vel en hafði engan styrktaraðila og gat því ekki keypt skólabækur eða annað sem þarf. Ég ákvað að verða styrktarað- ili hennar með mánaðarlegu fram- lagi sem dugir fyrir skólagöngunni og máltíð daglega. Svo fær hún árlega nýjan skólabúning, skó og skólatösku. Vonandi nær hún tak- marki sínu, að verða læknir og von- andi verða mín stuðningsbörn fleiri í framtíðinni. Hvort ég vildi nú ekki frekar borga með þeim heldur en ýmsu öðru. Mér reiknast til að ég gæti stutt mörg börn til menntunar bara fyrir peninginn sem ég borga í ofurhá faststeignagjöld í einu best stæða sveitarfélagi landsins. Íslenska barnahjálpin rekur tvo aðra skóla í Kenýa, utan við Nai- robi. Þeir eru í Loitoktok og Nami- lok og þangað fórum við líka. Það var ótrúlega gaman að sjá alla þessa duglegu krakka og áhugasömu for- eldra sem tóku okkur opnum örm- um. Þau skemmtu okkur með dansi og söng en þau vildu líka að við segðum frá okkur sjálfum og Ís- landi, sem við gerðum náttúrlega. Mikið óskaði ég þess að krakk- arnir heima á Íslandi gætu séð að- stæður jafnaldra sinna í Kenýa og í gegnum hugann runnu andlit barna sem ég kenndi áður fyrr. Hvað myndi þeim finnast? Fyrir þá sem vilja kynna sér starf Íslensku barnahjálparinnar, er bara að kíkja á vefinn islenskabarna- hjalpin.is Nú var markmiði ferðarinnar náð. Ég hafði séð með eigin aug- um lífskjör fátækra barna í Kenýa og jafnframt séð að fjármunum til að rétta hlut þeirra er val varið. Það var svo happ í hendi að fá að fara inn í tvo þjóðgarða og skoða villtu dýrin í sínu náttúrulega umhverfi. Kenýabúar, sérstaklega bændur af Masaai ættflokknum, hafa verið ákveðnir í að vernda svæði villtu dýranna. Samt hefur verið þrengt að þeim. Við urðum á vegi fíla- hjarðar sem var að skipta um beitar- svæði og þarna þrömmuðu í langri röð, fleiri hundruð fílar af öllum stærðum, rólegir og yfirvegaðir, gjörsamlega áhugalausir um okkur sem héldum nánast niðri í okkur andanum á meðan. Á heimleiðinni millilentum við í Katar við Persaflóa og höfðum tíma til að skoða okkur aðeins um. Ríkidæmið þar er hrollvekjandi og hin fullkomna andstæða við fátækt- ina í Kenýa. Um þetta leyti fréttum við af fyrsta veirutilfellinu á Íslandi og máttum ekki vera seinna á ferð- inni. Á tímum farsóttar er upplagt að grúska í ættfræði. Það hafði ég lengi ætlað og byrjaði á föðurættinni. Ég handlék Borgfirskar æviskrár og fann fjölda ættingja, en einu tók ég fljótlega eftir. Það var svo lítið sagt um konurnar og þurfti oft að leita að þeim undir nöfnum feðra eða eiginmanna. Ég er ekki sátt við þetta. Tek sérstaklega upp hansk- ann fyrir langömmu mína, Vil- borgu Jónsdóttur frá Gullberastöð- um í Lundarreykjadal, sem eignað- ist 12 börn og bjó á góðum jörðum í Borgarfirði með manni sínum Auð- uni Vigfússyni frá Grund í Skorra- dal. Þau skildu árið 1885. Þá var hann kominn með aðra konu inn á heimilið og hafði eignast börn með henni. Vilborg og Auðunn áttu þeg- ar hér var komið sögu, 7 börn á lífi og voru 6 þeirra undir tvítugu. Eitt þeirra var Jón afi minn. En eftir að Vilborg og Auðunn skildu er ekkert skrifað um hana. Ég hef ekki getað fundið hvar hún átti heima síðustu 14 árin sem hún lifði, en hún féll frá árið 1899, þá 69 ára gömul. Um ævi Auðuns er aftur á móti talsvert skrifað. Hann bjó á nokkrum bæj- Pennagrein Litið yfir liðið ár Ragnheiður bauð upp á útikaffi á afmælisdaginn. Feðgin hjálpast að við gróðursetningu fyrstu birkitrjánna. Tekið á móti gestunum í Harvest skólanum í Kenya. Stúlkur í skólabúningum í Kariobangi hverfinu. Greinarhöfundur með skólamönnum í Loitoktok.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.