Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 20218 Keypti iPhone á netinu en fékk aldrei AKRANES: Í vikunni komu einstaklingar á lögreglustöð og sögðu sínar farir ekki sléttar. Þeir höfðu keypt og greitt fyrir nýjustu útgáfuna af iPhone 12 á bland.is en aldrei fengið símann í hendurnar. Vitað er hver „selj- andinn“ er og er hann eftirlýst- ur. Að sögn lögreglu er nokk- uð um það að fólk kaupi hluti á netinu og leggi kaupverðið inn á algerlega ókunna aðila og vill lögregla vara mjög við slíkum viðskiptaháttum. -frg Fjölmennt samkvæmi HVANNEYRI: Laust eft- ir miðnætti á mánudagskvöld barst lögreglu tilkynning um fjölmennt samkvæmi á Hvann- eyri. Þegar lögregla kom á stað- inn reyndust á milli 20 og 30 manns samankomnir og var partýið leyst upp hið snarasta. -frg Spakir ökumenn AKRANES: Að morgni þriðju- dags voru lögreglumenn við hraðamælingar á Akrafjallsvegi í tvær klukkustundir, á milli kl. 6:30 og 8:30. Alls ók 481 öku- tæki framhjá og voru aðeins þrír kærðir fyrir of hraðan akst- ur. Hraðast var ekið á 104 kíló- metra hraða. -frg Ásókn í greiðslu- mark sauðfjár LANDIÐ: Auka innlausnar- markaður greiðslumarks í sauðfé og úthlutun þess til umsækjenda fór fram í desember. Markaður- inn var haldinn að tillögu Lands- samtaka sauðfjárbænda um að auka greiðslumark á markaði fyrir sauðfjárbændur. Fram- kvæmdin miðast við að jafna stöðu bænda innan kerfisins þar sem greiðslumarki er beint til þeirra hópa sem framleitt hafa með minnstum opinberum stuðningi. Til sölu á markaðnum voru 5.332 ærgildi, þar af 4.906 ærgildi sem innleyst voru á ár- unum 2017 og 2018. Greiðslu- mark innleyst af framleiðendum voru 426 ærgildi. Óskir um kaup voru 201 talsins og námu sam- tals 62.720 ærgildum. Í heild- ina var því hlutfall til úthlutunar 9,4% af óskum um kaup. -mm Auka greiðslu- þátttöku í tann- lækningum LANDIÐ: Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar öryrkja og aldr- aðra jókst nú um áramótin úr 50% í 57%. „Þetta er liður í áætlun Svandísar Svavarsdótt- ur heilbrigðisráðherra um að lækka greiðsluþátttöku sjúk- linga. Áætlaður kostnaður rík- isins vegna þessa nemur 200 milljónum króna. Stefnt er að því að greiðsluþátttaka sjúkra- trygginga vegna tannlæknis- kostnaðar þessara hópa verði komin í 75% árið 2024. Til að ná því markmiði er í gildandi fjármálaáætlun gert ráð fyrir að framlög hins opinbera verði aukin um 200 milljónir króna á næstu fjórum árum,“ segir í til- kynningu. -mm Komugjald á heilsugæslustöð lækkar LANDIÐ: Almenn komugjöld í heilsugæslu lækkuðu úr 700 krónum í 500 krónur 1. janúar síðastliðinn og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekk- ert komugjald. Fellt verður nið- ur sérstakt komugjald hjá þeim sem sækja aðra heilsugæslustöð en þeir eru skráðir hjá. Heilsu- gæslan um allt land tekur um áramót við skimunum fyrir krabbameini í leghálsi. Gjald fyrir leghálsstrok lækkar þá úr 4.818 krónum í 500 krónur. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðis- þjónustu, sem heilbrigðisráð- herra hefur undirritað. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 12. desember - 1. janúar Tölur (í kílóum) f rá Fiskistofu Akranes: 6 bátar. Heildarlöndun: 92.451 kg. Mestur afli: Indriði Kristins BA-751: 53.584 kg. í sex lönd- unum. Arnarstapi: 5 bátar. Heildarlöndun: 206.321 kg. Mestur afli: Kristinn HU-812: 141.083 kg. í ellefu löndunum. Grundarfjörður: 6 bátar. Heildarlöndun: 434.173 kg. Mestur afli: Runólfur SH-135: 112.646 kg. í tveimur löndun- um. Ólafsvík: 16 bátar. Heildarlöndun: 285.190 kg. Mestur afli: Bárður SH-811: 57.301 kg. í sjö löndunum. Rif: 13 bátar. Heildarlöndun: 605.915 kg. Mestur afli: Tjaldur SH-270: 120.888 kg. í tveimur löndun. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 36.811 kg. Mestur afli: Sjöfn SH-707: 14.778 kg. í átta löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Örvar SH - 777 - RIF: 75.040 - 15.12. 2. Rifsnes SH - 44 - RIF: 72.129 - 13.12. 3. Tjaldur SH - 270 - RIF: 70.452 - 14.12. 4. Runólfur SH - 135 - GRU: 66.698 - 14.12. 5. Sigurborg SH - 12 - GRU: 65.548 - 13.12. 0-frg Landbúnaðarháskóli Íslands hef- ur fest kaup á mála- og samninga- kerfi WorkPoint frá Spektra ehf. fyrir málasafn skólans. WorkPoint byggir á SharePoint lausn í Micro- soft Office 365 umhverfi en LbhÍ er fyrsti skólinn hér á landi sem tekur upp þessa lausn. „Verkefni LbhÍ eru mörg en fyrir utan skipu- lag í kringum það fjölbreytta nám sem í boði er við skólann, er eigna- umsjón einnig stór þáttur í rekstri skólans og mun rafrænt skjalakerfi veita heildarsýn yfir öll verkefni sem koma til afgreiðslu og verða til innan skólans,“ segir í tilkynningu frá Sóveigu Magnúsdóttur upplýs- inga- og skjalastjóra LbhÍ sem inn- leitt hefur þessa breytingu. mm Í lok desember á nýliðnu ári voru samningar undirritaðir milli Menntaskóla Borgarfjarðar og ráð- gjafafyrirtækisins KVAN úr Kópa- vogi. Um er að ræða samning til þriggja ára um menntunar- og þjálf- unarverkefnið Lífsleikni KVAN. Samstarfið felur í sér að valdefla nemendur, gera þeim kleift að vinna út frá eigin styrkleikum, ekki ein- göngu í námi heldur einnig í sam- skiptum. Að auki eru nemendum gefin verkfæri til að kynnast hópn- um betur, læra að meta fjölbreyti- leikann og verða betri liðsfélagi og nemandi. Nemendur munu einnig þjálfa jákvæð viðhorf, bæði til sjálfs síns og náungans, samkennd og sjálfstæða hugsun. Samstarfið beinist bæði að nem- endum og kennurum Menntaskóla Borgarfjarðar. Verkefnið miðar að því að þjálfa nemendur og kenn- ara með aðferðafræði KVAN. Fyr- ir liggur að á vorönn 2021 muni KVAN koma að lífsleiknikennslu allra nemenda í staðnámi auk þess að halda námskeið með kennur- um skólans. Næstu tvö ár verður KVAN með aðkomu í áfanganum Lífsleikni sem er skylduáfangi allra nýnema skólans. Eins er stefnt að námskeiðum fyrir kennara á hverju ári. glh LbhÍ festir kaup á mála- og samningakerfi Frá undirritun; Bragi Þór Svavarsson skólameistari, Anna Steinsen ráðgjafi KVAN, Jón Halldórsson framkvæmdastjóri KVAN og Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskóla- meistari. Ráðgjafafyrirtækið KVAN í samstarf við Menntaskóla Borgarfjarðar Fyrsti Vestlendingurinn á nýju ári kom í heiminn um nónbil 3. janúar síðastliðinn. Er það stórt og mynd- arlegt stúlkubarn frá Borgarnesi sem hefur verið nefnd Lea Mjöll. Hún var 4.080 grömm og 52 senti- metrar þegar hún var mæld stuttu eftir komuna í heiminn á fæðinga- deild HVE á Akranesi. „Fæðingin gekk mjög vel og hratt fyrir sig,“ segir Íris Gunnarsdóttir, móðir Leu Mjallar, og bætir jafnframt við að öllum heilsist vel. Lea Mjöll er þriðja barn þeirra Írisar og Davíðs Ásgeirssonar, allar eru þær stúlk- ur. Elst er Tara sem er 6 ára og svo Elma 3 ára. „Hún er alveg á pari við miðju systurina, Elmu. Fædd- ist nánast alveg jafn þung og löng,“ segir Íris um nýjustu viðbótina í fjölskylduna. Lítið stress Settur dagur hjá Írisi var 1. janúar svo strax á nýju ári voru þau Davíð farin að bíða eftir bumbubúanum sem lét svo sjá sig tveimur dögum síðar. „Aðfararnótt 3. janúar fann ég fyrir verkjum og vissi að það væri tímabært að fara upp á spít- ala. Ég kallaði út ömmuna í næsta húsi sem kom um leið til að vera hjá eldri systrunum. Við síðan brunuð- um út á Akranes um sjö leytið sama morgun, svo kemur hún í heiminn rétt fyrir klukkan þrjú um daginn. Þetta var allt saman mjög þægi- legt,“ segir Íris um aðdragandann. En er Lea Mjöll lík mömmu sinni eða pabba? „Ég myndi segja að hún væri líkari mér, en ætli hún sé ekki blönduð. Ég sé það ekki alveg strax, það kemur í ljós með tímanum,“ segir Íris létt í lund að endingu. glh Stoltir foreldrar. Davíð og Íris frá Borgarnesi með nýjustu viðbótina í fjölskyldu sína, Leu Mjöll. Fyrsti Vestlendingurinn á árinu er stúlka

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.