Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 2021 11
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
ÖLL ALMENN SMÍÐAVINNA
BORGARFIRÐI
aybyggir@gmail.com865 7578
GJ málun ehfmálningarþjónusta
Akravellir 12 - Hval arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Guðlaug við Langasand á Akranesi
hefur verið tilnefnd til Mies van der
Rohe verðlauna Evrópusambands-
ins 2022 sem veitt eru fyrir framúr-
skarandi nútíma arkitektúr. Harpan
í Reykjavík hlaut þessi verðlaun árið
2013. Þetta kemur fram á Facebo-
ok síðu Basalt arkitekta en fyrirtæk-
ið hannaði Guðlaugu ásamt Mann-
viti verkfræðistofu.
Mies van der Rohe verðlaunin eru
ein virtustu byggingarlistarverðlaun í
heimi. Þau voru sett á stofn árið 1987
af Evrópusambandinu og Stofnun
Mies van der Rohe í Barcelona og er
ætlað að vekja athygli á því sem best
er gert í evrópskri byggingarlist.
Verðlaunin eru kennd við Ludwig
Mies van der Rohe (27. mars 1886 –
17. ágúst 1969) en hann var þýskur
arkitekt sem er almennt talinn vera
einn af frumkvöðlum nútíma bygg-
ingarlistar ásamt Walter Gropius og
Le Corbusier. Verk hans einkenn-
ast af einföldum formum úr stáli og
gleri. Hann kallaði list sína „skinn og
bein“-arkitektúr og var þekktur fyrir
notkun orðtakanna „minna er meira“
og „Guð er að finna í smáatriðun-
um.“ frg
Steinunn Agnarsdóttir hefur ver-
ið ráðin í starf hjúkrunarforstjóra
í Barmahlíð á Reykhólum, en frá
þessu var greint á vef Reykhóla-
hrepps. Steinunn er hjúkrunar-
fræðingur að mennt og með gráðu
í heilsuhagfræði. Hún hefur lengst
af unnið við aðhlynningu aldraðra
en að auki hefur hún unnið á geð-
deild Borgarspítalans og á heilsu-
gæslu í Kópavogi. Hún hefur gegnt
stöðu deildarstjóra í tólf ára og þar
af síðustu tíu ár á hjúkrunarheim-
ilinu Mörk í Reykjavík. Steinunn er
ekki ókunn Reykhólum en hún er
ættuð frá Miðjanesi, þar sem hún
var í sveit sem barn og fram á ung-
lingsár, auk þess sem hún vann við
afleysingar í Barmahlíð þrjú sumur,
1995-1997 og allt árið 1998. Stein-
unn tók til starfa um áramótin.
arg
Umhverfisstofnun hefur kynnt
áform um friðlýsingu Borgarvogs í
Borgarbyggð sem friðlands. Áform-
in eru kynnt í samstarfi við land-
eigendur og sveitarfélagið Borgar-
byggð. „Borgarvogur er eitt af mik-
ilvægari fuglasvæðum Vesturlands.
Vogurinn er á skrá yfir alþjóðlega
mikilvæg fuglasvæði og er á nátt-
úruminjaskrá. Þá geymir Borgar-
vogur víðáttumikla leiru sem flokk-
uð er sem gulþörungaleira og er
hún sú stærsta af þessari vistgerð
hér á landi svo vitað sé. Leirur eiga
ennfremur þátt í að takmarka gróð-
urhúsaáhrif og önnur neikvæð áhrif
loftslagsvárinnar en leira bindur
gróðurhúsaloftegundir og er bind-
Steinunn Agnarsdóttir, nýr hjúkrunar-
forstjóri í Barmahlíð.
Ljósm. reykholar.is
Steinunn er nýr
hjúkrunarforstjóri í Barmahlíð
Guðlaug tilnefnd til verðlauna
Evrópusambandsins
Áform um friðlýsingu Borgarvogs
ing á flatareiningu mikil,“ segir í
tilkynningu frá Umhverfisstofnun.
Nánar má lesa um áform um frið-
lýsingu Borgarvogs á vefnum ust.is
mm/ Ljósm. Þorleifur Geirsson.