Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202114 Í tilkynningu á vef Borgarbyggð- ar kemur fram að íbúar sveitar- félagsins hafi staðið sig nokkuð vel í flokkun úrgangs á fyrstu 11 mán- uðum ársins. Í tilkynningunni segir m.a: „Þegar bornar eru saman tölur þjónustuaðila sveitarfélagsins um magn úrgangs úr ílátum við heim- ili í sveitarfélaginu fyrstu 11 mán- uði ársins, kemur í ljós að magn úr- gangs til urðunar í Fíflholtum hef- ur dregist saman um rúmlega 123 tonn miðað við sama tímabil árið 2019, fór úr 521 tonni í 398 tonn. Á sama tímabili hefur meira af endurvinnsluúrgangi skilað sér í grænu endurvinnsluílátin og nam aukningin tæplega 20 tonnum á þessu tímabili, fór úr 153 tonnum í 173 tonn. Hafin var söfnun líf- ræns úrgangs í apríl og hefur frá þeim tíma verið safnað rúmlega 72 tonnum af lífrænum eldhúsúrgangi til moltugerðar. Segja má að íbúar sveitarfélagsins hafi tekið vel á móti brúnu tunnunni og það er jákvætt að sjá góðan árangur í úrgangsmál- um, sérstaklega þegar haft er í huga að vegna Covid- 19 hafi íbúar varið meiri tíma heima við og úrgangs- myndun verið meiri inni á heim- ilum. En betur má ef duga skal og í náinni framtíð verða gerðar kröf- ur um frekari samdrátt í urðun úrgangs. Til að stuðla að frekari flokkun, hefur verið ákveðið að auka hirðingu endurvinnslutunn- unnar á árinu 2021. Grænt kar í dreifbýli verður hirt á fjögurra vikna fresti og græn tunna í þéttbýli verður hirt á tveggja vikna fresti allt árið. Óbreytt hirðingartíðni verður á öðrum ílátum og afgreiðslutími á gámastöðinni í Borgarnesi verður óbreyttur.“ frg Íslenska gámafélagið hefur tekið í notkun tvískipta bifreið við sorp- hirðu í Borgarbyggð. Það gerir starfsmönnum fyrirtækisins kleift að losa bæði brúnu og grænu tunn- urnar héðan í frá í sömu ferðinni. Bifreiðin er með tveimur aðskild- um hólfum sem tryggir að úrgang- urinn blandast aldrei. Í frétt á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að sorphirðudagatal ársins 2021 taki mið af þessum breytingum og því verði hér eftir brúnar og grænar tunnur tæmdar samhliða í flestum tilvikum. mm/ Ljósm. borgarbyggd.is Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm sem bindur enda á átta ára gam- alt þrætumál milli eiganda jarðar- innar Króks í Norðurárdal annars vegar og Borgarbyggðar hins veg- ar. Málið snýst um upprekstrarrétt á hluta Króksjarðarinnar. Einnig snerist málatilbúnaður um hvort fjáreigendur í upprekstrarfélagi Þverárréttar gætu rekið fjársafn sitt í gegn um hluta Króksjarðarinn- ar á haustin á leið til réttar. Hæsti- réttur dæmdi Borgarbyggð í vil og staðfesti að viðurkenndur er rétt- ur Borgarbyggðar til beitarafnota af þeim hluta jarðarinnar Króks í Borgarbyggð, landnúmer 134817, sem óþinglýstur samningur Brynj- ólfs Bjarnasonar og Upprekstrar- félags Þverárréttar frá 26. maí 1924 tekur til. Þá var Borgarbyggð jafn- framt sýknuð af gagnkröfu eiganda Króksjarðarinnar um að viðurkennt skuli að sveitarfélaginu sé óheim- ilt að safna fé á landinu eða reka fé um það á leið til réttar. Hæstirétt- ur komst að þeirri niðurstöðu að málskostnaður skyldi felldur niður á öllum dómstigum. Fyrir dómnum krafðist Borgar- byggð þess að viðurkenndur yrði réttur bænda til beitarafnota af þeim hluta jarðarinnar Króks sem óþing- lýstur samningur frá 1924 hefði tekið til. Ágreiningur málsins snér- ist annars vegar um hvort Borgar- byggð hefði unnið rétt til beitaraf- nota fyrir hefð á landinu sem var í eigu Króks og hins vegar hvort og þá með hvaða hætti sveitarfélagið eða aðilum á þess vegum væri heim- ilt að safna fé sem rynni af fjalli og reka það um land Króks á leið til réttar. Í dómi Hæstaréttar var vís- að til þess að Borgarbyggð hefði sýnt fram á að fjárbændur hefðu í skjóli Upprekstarfélags Þverár- réttar og síðar Borgarbyggðar nýtt landið til beitarafnota fyrir fjölda fjár í að minnsta kosti tæpa öld í góðri trú um heimild til þess þótt landið hefði laust fyrir miðja öldina komist úr eigu upprekstrarfélags- ins samkvæmt þinglýstum afsölum. Hefði sú nýting landsins átt sér stað allt til dagsins í dag og hefði hefðar- tíminn þannig löngu verið fullnað- ur samkvæmt 7. gr. laga nr. 46/1905 er eigandi Króks hófst handa við að véfengja rétt sveitarfélagsins til ítaksins. Hæstiréttur féllst á kröfu Borgarbyggðar um rétt bænda til beitarafnota af umræddu landi og fól sú niðurstaða jafnframt í sér að hafnað væri kröfu eiganda Króks um að sveitarfélaginu væri óheimilt að safna fé af fjalli að hausti á þessu sama landi. mm Hjá Framsóknarflokknum í Norð- vesturkjördæmi hefur verið ákveð- ið að fram fari póstkosning við val á framboðslista fyrir alþingiskosning- ar haustið 2021. Kosið verður um fimm efstu sætin. Framboðsfrestur til þátttöku í póstkosningunni renn- ur út þriðjudaginn 1. febrúar 2021, kl. 12:00 á hádegi. Kjörskrá verður gerð samkvæmt félagatali 16. janú- ar 2021, en frestur til skráningar á félagatal er til miðnættis 16. janúar 2021,“ segir í tilkynningu frá kjör- stjórn. Framsóknarflokkurinn í Norð- vesturkjördæmi hefur nú tvo þing- menn; þau Ásmund Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra sem skipar oddvitasæti listans, og Höllu Signýju Kristjánsdóttir þingmann sem skipar annað sætið. Ásmund- ur Einar liggur enn undir feldi og hefur ekki gefið út yfirlýsingu um framboð, en samkvæmt heimildum blaðsins eru meiri líkur en minni á að hann muni sækjast eftir að leiða listann áfram. Halla Signý Krist- jánsdóttir þingmaður gaf það út skömmu fyrir áramót að hún sæk- ist eftir endurkjöri í annað sætið. Stefán Vagn Stefánsson á Sauðár- króki sækist jafnframt eftir öðru sæti á listanum. Lilja Rannveig Sig- urgeirsdóttir, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna og vara- þingmaður, sem búsett er í Bakka- koti í Stafholtstungum, hefur gef- ið það út að hún gefi kost á sér í 3. sæti listans. Loks sækist Friðrik Már Sigurðsson á Lækjarmótum í Húnavatnssýslu eftir 3.-4. sæti listans. mm Hvalfjarðarsveit hefur samið við fá- lagsmálaráðuneytið um að vera til- raunasveitarfélag varðandi innleið- ingu á SES – Samvinna eftir skiln- að. En frá þessu er greint í frétt á vef sveitarfélagsins. SES byggir á rannsóknum sérfræðinga við Há- skólann í Kaupmannahöfn og snýst um hvernig best sé staðið að stuðn- ingi við fjölskyldur í skilnaði til að hægt sé að fyrirbyggja vanlíðan, erf- ið samskipti og ágreining. „Félags- þjónusta Hvalfjarðarsveitar mun bjóða upp á ráðgjöf og stuðning við foreldra í skilnaðarferlinu og því geta foreldrar sem eru að skilja eða hafa skilið og vilja þiggja stuðn- ing og ráðgjöf sett sig í samband við Félagsmálastjóra Hvalfjarðarsveit- ar,“ segir í frétt á vef sveitarfélags- ins. Félagsmálastjóri Hvalfjarðar- sveitar er Sólveig Sigurðardóttir, felagsmalastjori@hvalfjardarsveit. is. arg Í tilefni áramótanna tók Grundar- fjarðarbær sig til og lét setja sam- an myndband þar sem flutt er lag Einars Bárðarsonar við texta Bjarg- ar Ágústsdóttur bæjarstjóra. Það er svo skreytt með einstökum mynd- um og myndböndum sem Tóm- as Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns hefur tekið á árinu og sett saman. Auk hans áttu myndir þau þess Brynjar Kristmundsson og Björg Ágústsdóttir. Um söng- inn sjá Amelía Rún Gunnlaugs- dóttir, Gunnar G. Garðarsson, Kristbjörg Ásta Viðarsdóttir, Rakel Mirra Steinarsdóttir og Sylvía Rún Guðnýjardóttir. Upptaka söngs og hljóðblöndun var í höndum Þor- kels Mána Þorkelssonar. Hægt er að sjá myndbandið á vef Grundarfjarðarbæjar. mm Samvera eftir skilnað í Hvalfjarðarsveit Þau skipuðu forystusæti listans í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu kosningar. Ásmundur Einar, Halla Signý og Rannveig Lilja. Ásmundur Einar hefur enn ekki gefið það út að hann sækist eftir forystusætinu, en frestur til þess rennur út 1. febrúar. Ljósm. úr safni. Línur teknar að skýrast í framboðsmálum Framsóknar Hæstiréttur staðfesti upp- rekstrarrétt á hluta Króksjarðar Safnrekstur af Holtavörðuheiði. Ljósm. úr safni: Guðmundur Steinar Jóhannsson. Einstök áramótakveðja frá Grundarfirði Betri árangur í flokkun úrgangs í Borgarbyggð Geta nú losað tvær tunnur í sömu ferðinni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.