Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Page 18

Skessuhorn - 06.01.2021, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202118 Milli jóla og nýárs var í fyrsta sitt úthlutað úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar. Minningarsjóður- inn var stofnaður 2018 til að halda á lofti minningu tónlistarmanns- ins frá Dýrastöðum í Norðurárdal. Hlutverk sjóðsins er að standa við bakið á ungu og efnilegu tónlistar- fólki í Borgarfirði. Í þessari fyrstu úthlutun voru þrjár ungar tónlist- arkonur styrktar, þær Anna Þór- hildur Gunnarsdóttir píanóleik- ari frá Brekku, Hanna Ágústa Ol- geirsdóttir söngkona úr Borgarnesi og Steinunn Þorvaldsdóttir söng- kona frá Hjarðarholti. Blaðamað- ur Skessuhorns ræddi við tónlist- arkonurnar af þessu tilefni, en þær stunda nú allar nám í tónlist. Söngurinn hefur alltaf leitt hana áfram Hanna Ágústa er fædd og uppal- in í Borgarnesi og á ekki langt að sækja tónlistaráhugann en hún er dóttir Theodóru Þorsteinsdóttur, skólastjóra Tónlistarskóla Borgar- fjarðar og Olgeirs Helga Ragnars- sonar. „Það má segja að ég hafi al- ist upp í Tónlistarskóla Borgar- fjarðar,“ segir Hanna Ágústa og hlær. Hún byrjaði tónlistarferilinn í fiðlunámi sem lítið barn en próf- aði einnig að læra á píanó og gítar áður en söngurinn tók alfarið við. „Ég var alltaf að syngja líka og var fyrst í sönghópum en byrjaði að læra einsöng hjá Birnu Þorsteins- dóttur frænku minni, og Theodóru mömmu, þegar ég var 13 ára,“ segir Hanna Ágústa. Að grunnskólanámi loknu lá leið hennar til Reykjavík- ur í menntaskóla og söngnám við Söngskóla Reykjavíkur. „Söngurinn var það sem dró mig til Reykjavíkur frekar en að fara í nám hér. Söng- urinn hefur alltaf leitt mig þangað sem ég á að fara,“ segir hún. Fyrsta stóra verkið Í dag er Hanna Ágústa í háskóla í Þýskalandi þar sem hún er á fjórða ári í klassískum söng. „Þetta átti að vera síðasta árið mitt en náminu seinkaði smá vegna Covid svo lík- lega verð ég eitt ár í viðbót,“ segir hún. Auk þess að vera nemi er hún einnig byrjuð að kenna söng. „Ég er líka að læra kennslufræði úti og stefni að sjálfsögðu að því að starfa meira við söng,“ segir hún og bæt- ir við að hún hafi nýverið feng- ið sitt fyrsta stóra hlutverk í verki með sinfoníuhljómsveit úti. „Þetta er verk sem á að byrja að sýna í febrúar en ég veit ekki hvort verði af því í ljósi ástandsins. En þetta er frábært tækifæri fyrir mig,“ seg- ir Hanna Ágústa brosandi og bæt- ir við að hún sé full bjartsýni á að framtíðin muni bjóða upp á fleiri svona tækifæri. „Þetta er eitthvað sem mig langar að geta starfað við en ég hef einnig mikinn áhuga á sviðslistum og langar að víkka list- formið sem söngurinn tilheyrir og gera meira með sönginn í bland við sviðslistir,“ segir Hanna Ágústa og horfir á Steinunni sem tekur undir það. „Við Steinunn erum svolítið á sama stað hvað þetta varðar, enda höfum við eiginlega fylgst að í tón- listinni frá því við vorum börn,“ segir Hanna Ágústa. Byrjaði að læra á fiðlu Steinunn Þorvaldsdóttir ólst upp í Borgarfirði og byrjaði einnig tón- listarnámið í fiðlukennslu sem barn í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hún færði sig svo yfir á píanó og lærði á það og þverflautu í nokkurn tíma eða þar til hún lauk grunn- skólanámi. Þá fór hún til Reykja- víkur í menntaskóla og byrjaði að syngja með Gradualekór Lang- holtskirkju. „Kórstjórinn þar stakk upp á því að ég færi að læra einsöng og kom mér að í námi hjá konunni sinni, Ólöfu Kolbrúnu Harðars- dóttur, í Söngskóla Reykjavíkur,“ segir Steinunn og bætir við að hún hafi þá verið 16 ára gömul. „Ég kláraði áttunda stig í söng í Söng- skóla Reykjavíkur og tók þá smá pásu og flutti til Vínar í einn vet- ur. Ég lenti í raddmissi og svoleiðis veseni sem ég er að koma mér upp úr núna. Ég ákvað því að vinna mér í haginn og fara til Vínar á meðan og læra þýsku. Ég stefni nefnilega á að fara til Þýskalands í masters- nám og þýskan er almennt mikil- væg á þessu sviði,“ segir Steinunn og brosir. Stefnir á operu mastersnám Eftir árið í Vínarborg flutti Stein- unn aftur heim til Íslands þar sem hún fór í Listaháskóla Íslands í bachelor nám í klassískum söng auk þess sem hún er að læra tón- smíðar við skólann. Hún er nú á þriðja ári í því námi og stefnir á útskrift í vor. „Ég var í skiptinámi síðustu önn í Konunglega tónlist- arháskólanum í Stokkhólmi og það var alveg frábær reynsla,“ segir Steinunn og brosir. „Ég stefni svo á að fara í óperu mastersnám en verð að sjá hvernig Covid þróast næstu mánuði áður en ég tek ákvörðun. Maður vill fara í inntökupróf fyr- ir svoleiðis nám þar sem má syngja á sviði með fólki og fyrir framan fólk, sem er erfitt í þessu ástandi,“ segir hún. Aðspurð segist hún að- eins vera að taka að sér söngverk- efni þegar þau bjóðast en auk þess að stunda nám við Listaháskóla Ís- lands vinnur hún í Brákarhlíð í Borgarnesi. „En að sjálfsögðu er alltaf gaman þegar söngverkefni bjóðast og ég tek þeim fagnandi,“ segir hún og brosir. Byrjaði sjö ára að læra á píanó Anna Þórhildur Gunnarsdótt- ir ólst upp á Brekku í Norðurár- dal og hennar tónlistarnám hófst þegar hún var sjö ára þegar hún fór í píanónám hjá Dóru Örnu Ás- björnsdóttur hjá Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hún fór fljótlega að læra hjá Jónínu Ernu Arnardótt- ur og lauk framhaldsprófi undir hennar handleiðslu um leið og hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskóla Borgarfjarðar. „Ég kláraði fram- haldsstigið í píanói hér í Tónlist- arskóla Borgarfjarðar og fór þá til Reykjavíkur í Listaháskóla Íslands þar sem ég lærði píanóleik hjá Pet- er Máté og Eddu Erlendsdóttur,“ segir Anna Þórhildur. Hún lauk námi við Listaháskóla Íslands og flutti til Hollands þar sem hún hóf nám við Conservatorium í Ma- astricht hjá Katia Veekmans. „Ég kem svo heim til Íslands í öllum fríum og reyni að taka virkan þátt í tónlistarlífinu hér og svo höfum við Steinunn stundum verið að gera eitthvað saman. Stelpurnar eiga alltaf greiða leið að píanista ef þær þurfa,“ segir Anna Þórhildur og horfir brosandi á Steinunni og Hönnu Ágústu og þær taka báðar undir. Ísland alltaf viðloðandi Anna Þórhildur tók þátt í nýsköp- unarkeppni á vegum háskólans úti í Hollandi síðasta vetur. „Ég spilaði þar verk eftir Jón Leifs og blandaði sam- an við það grafískum teikningum og reynslusögum fólks af Covid tíman- um. En ég gerði þetta með kanad- ískri vinkonu minni, Harmoney Lee, en hún er hönnuður. Ég hef mikinn áhuga á að blanda saman svona miðl- um; klassískri tónlist, myndlist, sögum og slíku,“ segir hún. Núna er Anna Þórhildur að vinna mastersritgerð- ina sína sem fjallar um stíleinkenni ís- lenskrar píanótólistar á seinni hluta tuttugustu aldar. „Þetta er svona í takt við lokaritgerðina mína úr Listahá- skólanum en þar skoðaði ég þjóðleg einkenni í píanókonsertnum hennar Jórunnar Viðar. Ísland er alltaf við- loðandi allt sem ég geri,“ segir Anna Þórhildur og brosir. Höfðu allar unnið með Heimi Allar segjast þær vera afskaplega þakk- látar fyrir að hljóta styrkinn úr Minn- ingarsjóði Heimis Klemenzsonar og að hann komi til með að nýtast þeim vel. „Þetta er líka sérstaklega ánægju- legt því við þekktum allar Heimi og höfðum allar unnið aðeins með hon- um, sem var yndislegt. En manni þyk- ir þá alveg sérstaklega vænt um að fá þennan styrk,“ segja þær að lokum. arg Steinunn og Hanna Ágústa tilbúnar að syngja við undirspil Önnu Þórhildar. Fyrsta úthlutun úr Minningar- sjóði Heimis Klemenzsonar Tónlistarkonurnar þrjár, f.v. Anna Þórhildur, Steinunn og Hanna Ágústa. Fulltrúar úr úthlutunarnefnd standa fyrir aftan; Jónína Erna Arnardóttir, Jómundur Rúnar Ingibjartsson, Eiður Ólason og Viðar Guðmundsson.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.