Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Side 23

Skessuhorn - 06.01.2021, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 2021 23 Skessuhorn óskar lesendum sínum gleðilegs árs. Takk fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári. Gleðilegt nýtt ár! Ljósm. tekin í Reykhólasveit á gamlárskvöld 2019/ Kristján Gauti Karlsson Kristín Ósk Halldórsdóttir kjóla- klæðskeri opnaði nýja verslun og vinnustofu KrÓsk við Kirkjubraut 54 á Akranesi 20. desember síðast- liðinn. „Þetta hafðist rétt fyrir jól,“ segir Kristín Ósk þegar blaðamað- ur leit inn í verslunina í gær. „Ég fékk rosalega góðar viðtökur og það var mjög mikið að gera eftir opn- unina,“ bætir hún við. Kristín Ósk hannar og saumar glæsilegan kven- fatnað aðallega úr náttúrulegum efnum þar sem hún leggur áherslu á falleg og klæðileg snið fyrir allar konur. Hún hannar sjálf og teiknar mynstrin og lætur prjóna þau fyr- ir sig auk þess sem flestir kjólarn- ir eru handlitaðir þannig að engir tveir eru nákvæmlega eins. Kristín Ósk útskrifaðist sem kjóla- klæðskeri árið 2012 og í framhaldi af því fór hún að hanna vörulínu undir merkinu KrÓsk. En var allt- af draumurinn að hanna og sauma föt? „Einn af þeim allavega,“ svar- ar hún og hlær. „Það var allavega alltaf draumurinn að vinna við að skapa eitthvað,“ bætir hún við. Kristín Ósk segist mjög ánægð með nýju vinnustofuna og verslunina og leggst staðsetningin sérstaklega vel í hana. „Þetta er skemmtileg stað- setning.“ Verslunin verður opin þriðju- daga til föstudaga frá kl. 14-17 og laugardaga frá kl. 12-14. Einnig er hægt að skoða vöruúrvalið og panta fatnað í gegnum vefverslunina krosk.com. „Það hefur verið mik- ið að gera í vefversluninni og það marfaldaðist á síðasta ári, nú kunna nefnilega allir að panta á netinu,“ segir Kristín Ósk og brosir. arg/ Ljósm. gbh Ný verslun og vinnustofa KrÓsk opnuð á Akranesi Kristín Ósk með dóttur sinni, Kareni Rut, í nýju versluninni. Kristín Ósk í nýju versluninni sinni við Kirkjubraut 54 á Akranesi. Fjölskylda Kristínar Óskar í nýju versluninni. F.v. Ármann Ingi Finnbogason, Jón Þór Finnbogason, Kristín Ósk Halldórsdóttir, Karen Rut Finnbogadóttir og Finnbogi Jónsson.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.