Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 2021 25 Undir lok árs var búið að flytja úr landi 2.324 hross til 21 lands. Er það 54% fjölgun í útflutningi frá árinu 2019 þegar 1.509 hross voru flutt út. Leita þarf allt aftur til 1997 til að finna stærra ár í útflutningi en þá voru flutt út 2.563 hross. Þetta kemur fram í frétt Eiðfaxa. Þar seg- ir að það veki athygli að íslenski hesturinn er enn að nema ný lönd og í ár voru t.d. flutt þrjú hross frá Íslandi til Lettlands og Litháen í fyrsta skipti að vitað sé. Eins og jafnan áður voru flest hross, eða 974, flutt til Þýskalands, 306 hross voru flutt til Svíþjóðar og 271 hross til Danmerkur. Mik- il fjölgun er á flutningi hrossa til Bandaríkjanna en þangað fór 141 hross í ár samanborið við 51 hross í fyrra. mm Með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti bauð Listahátíð í Reykjavík fólki á lands- byggðinni upp á Listagjöf, en áður hafði slík gjöf eingöngu verið af- hent á höfuðborgarsvæðinu. Lista- gjöfin var svo afhent á landsbyggð- inni helgina 19. og 20. desember síðastliðinn. Á Vesturlandi, allt að Hólmavík, voru 47 listagjafir af- hentar. Flestar gjafirnar voru af- hentar í Borgarnesi, Akranesi og Stykkishólmi. Listagjafirnar voru af fjölbreyttum toga en þó voru tónlistargjafir mest áberandi, enda auðveldar til framkvæmda. Lista- fólkið sem sótti Vesturlandið heim voru Reynir Hauksson flamenco gítarleikari, sem er fæddur og upp- alinn í Borgarfirðinum. Einnig heimsóttu íbúa Eyrún og Jóakim úr Sirkushópnum Hringleik og söng- dívan Margrét Eir, sem söng við gítarspil Andrésar Þórs. „Við hjá hátíðinni vorum hálf hissa yfir hvernig allt skipulag- ið gekk vel upp þrátt fyrir afskap- lega nauman tíma til undirbúnings. Samtals voru um 700 listagjafir af- hentar um allt land, bæði pers- ónulega og í persónulegu streymi. Við höfðum auðvitað lært að keyra þetta verkefni í smærri útgáfu í byrjun nóvember þegar Listagjafir í Reykjavík voru afhentar. Það eina sem fór úrskeiðis var ekki skipulags eðlis heldur móðir náttúra sem fer alltaf sína leið. Fresta þurfti lista- gjöfum á Vestfjörðum vegna óveð- urs og verður því stefnt á að hafa sérstaka listagjafa helgi á Vestfjörð- um í lok janúar,“ segir Friðrik Agni Árnason, verkefnastjóri í samtali við Skessuhorn. glh. Ljósm/ Listahátíð í Reykja- víkur Listagjafir á Vesturlandi Eyrún og Jóakim úr Sirkushópnum Hringleik í miðju atriði á Akranesi. Reynir Hauksson, flamenco gítar- leikari, leikur hér jólalag í flamenco búningi í heimahúsi í Borgarnesi. Svipmynd af hrossaflutningum við Leifsstöð. Ljósm. Víkurfréttir. Besta ár í útflutningi hrossa síðan 1997 Pennagrein Á Kúludalsá á nýársdag. um, varð 96 ára og andaðist hjá syni og tengdadóttur á Skálpastöðum. Nokkrir af fjölmörgum afkom- endum Vilborgar og Auðuns, fóru á stúfana í vor. Við heimsóttum stað- ina sem þau höfðu búið á og fund- um að lokum leiði hennar í Hvann- eyrarkirkjugarði. Laga þarf stein- inn á leiðinu því stafirnir eru orðnir máðir. Við munum fylgja því eftir. Vegna fjöldatakmarkana sem giltu gátum við ekki boðið fleirum með í ferðina, en vonandi síðar. Þriðja atriðið tileinkað afmæl- isárinu var að sækja um að verða skógarbóndi. Ytri orsakir hafa gert það að verkum að ekki er hægt að nýta nema brot af beitarlandi Kúlu- dalsár lengur vegna flúormengun- ar. En það er hægt að planta trjám í þetta land og það ætla ég að gera. Ég sótti sem sagt um að verða skóg- arbóndi í vor. Forsvarsmönnum Skógræktarinnar líst vel á það og hafa gefið grænt ljós, en Hvalfjarð- arsveit þarf líka að samþykkja um- sóknina. Það hefur hún ekki gert ennþá. En ég vildi byrja á táknrænan hátt og þegar afmælið nálgaðist skrapp ég í Borgarnes og keypti 70 falleg- ar birkiplöntur. Bauð svo nánustu aðstandendum að koma og planta trjánum með mér. útbúið var veisluborð þann 2. júlí undir berum himni í besta mögulega veðri þar sem Hvalfjörðurinn skartaði sínu fegursta. Bæði núverðandi og tilvonandi skógrækt hef ég tileinkað Um- hverfisvaktinni við Hvalfjörð, sem er þverpólitískt félag til verndar Hvalfirði og hefur starfað í 10 ár. Óvæntur glaðningur kom til mín í haust. Einn góðan veður- dag hringdi vinkona mín og var þá byrjuð í spænskunámi. Hún kveikti samstundis í mér og í allt haust hefur spænska verið mitt aðal við- fangsefni. Þvílík áskorun sem það er að læra nýtt tungumál og í þeirri glímu hef ég oft hugsað til frú Vig- dísar. Elsku forsetinn okkar fyrrver- andi væri sátt við þetta brölt, svo oft hefur hún undirstrikað mikilvægi tungumála til að fólk skilji hvert annað, hvar sem er í heiminum. Feliz año nuevo! Gleðilegt nýtt ár – og megi ykkur heilsast vel á nýja árinu. Ragnheiður Þorgrímsdóttir Kúludalsá við Hvalfjörð. Fílar í hundruðatali af öllum stærðum þrömmuðu þarna í langri röð, rólegir og yfirvegaðir á leið sinni milli beitarsvæða. Á Hvanneyri við leiði Vilborgar Jónsdóttur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.