Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 28

Skessuhorn - 06.01.2021, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 6. JANúAR 202128 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Nú nýverið hafa birst greinar í Skessuhorni um rekstur Borgar- byggðar. Ljóst er af lestri þeirra að ekki eru allir sammála um rekstur og stjórnun sveitarfélagsins, eftir því hvorum megin borðs þeir sitja. Í grein Magnúsar Smára Snorra- sonar er farið fögrum orðum um fjármálin og áherslur í rekstri og framkvæmdum. Gera má nokkra rathugasemdir við eitt og annað í málflutningi hans. Það eru tvær breytur sem hafa áhrif á fasteignagjöld. Annarsveg- ar álagningarprósentan en hins- vegar fasteignamatið. Fasteigna- gjöld í Borgarbyggð munu hækka á næsta ári. Álagningarprósenta er óbreytt, en fasteignamat húss míns mun hækkar um 4,8% eða 1,2% umfram verðlagsbreytingu þann- ig að líklega mun fasteignaskattur minn hækka um 4,8% en ekki vera óbreyttur eins og ýjað er að. Þá má hafa í huga að skv. útreikn- ingum Byggðastofnunar þá voru fasteignatengdir skattar í Borgar- byggð þeir næsthæstu á landinu á nýliðnu ári eða 431.000 krónur á viðmiðunar húsið á meðan lands- meðaltal var 357.000 krónur eða 74.000 krónum lægra en í Borgar- byggð. Það er því augljóst að þarna er þörf á verulegri hagræðingu til hagsbóta fyrir íbúa sveitafélagsins. Uppbygging á betra skólahús- næði er í sjálfu sér gott mál, ef eðlilega hefði verið staðið að þeim framkvæmdum. Skv. upplýsing- um frá Borgarbyggð þá er staða framkvæmda í desember 2020 ca. þessi: Eins og ætla má af þessum töl- um þá er kostnaður við þessar tvær framkvæmdir kominn 876 milljón- ir króna, eða 83% fram yfir áætlun. Til þess að gera framkvæmdirn- ar fýsilegri, í augum kjósenda, eða bæjarfulltrúa, þá var ekki gert ráð fyrir í áætlunum atriðum eins og hönnun, framkvæmdum og hönn- un lóða, né ófyrirséðum en líkleg- um aukakostnaði þegar verið er að byggja við og bæta gamalt. Þá var kostnaði við búnað sleppt og eða ekki tekin með við gerð kostnað- aráætlana við framkvæmdirnar. Það er og það var fyrirfram vitað að lítið var að marka þær áætlanir sem ákvörðun um stækkun Grunn- skóla Borgarness og Leikskólans á Kleppjárnsreykjum byggðu á! Rétt væri að láta fara fram sjálf- stæða úttekt á þessari áætlanagerð og fyrirkomulagi ákvarðana sem teknar voru sem og að endurskoða framtíðar verklag við gerð fram- kvæmdaáætlana. Þá væri rétt að leggja niður bygg- ingarnefndir og láta kjörna fulltrúa og starfsmenn sveitarfélagsins sjá um yfirstjórn og eftirlit með fram- kvæmdum sem þessum, sem þá bera alfarið ábyrgð á niðurstöðunni. Og þá um rekstur grunnskól- anna í sveitafélaginu. Á heima- síðu Sambands ísl. sveitafélaga er hægt að nálgast ítarlegar og von- andi réttar upplýsingar um rekstur allra grunnskóla landsins árið 2019 í einni excel töflu. Þar eru skól- ar m.a. flokkaðir eftir stærð. Með því að greina þessar upplýsingar lítillega má fá nokkuð góða yfirsýn yfir rekstur grunnskólanna í Borg- arbyggð í samanburði við skóla af svipaðri stærð. Tölurnar segja okkur að Grunn- skóli Borgarness er mun hag- kvæmari en Grunnskóli Borgar- fjarðar. Og þegar skólarnir í Borg- arbyggð eru bornir saman við meðalskóla af sambærilegri stærð þá er starfsmannahald og almenn- ur rekstrarkostnaður þeirra beggja talsvert hærri en meðal skóla í sama stærðarflokki. Ef rekstrar- kostnaður beggja grunnskólanna í Borgarbyggð væri á landsmeðal- tali myndu sparast um 85 milljón- ir á ári eða 340 milljónir á hverju kjörtímabili. Ef grunnskólar Borgarbyggðar væru á pari við þá best reknu, í sama stærðarflokki, þá væri árlegur sparnaður liðlega 247 milljónir króna á ári eða 988 milljónir króna á kjörtímabili. Þegar lesin er fundargerð fræðslu- nefndar Borgarbyggðar frá 20. ágúst 2020 þá kemur þar fram að árangur nemenda í grunnskólum sveitafélagsins er í fleiri fögum en færri undir landsmeðaltali. Hár rekstrarkostnaður grunnskólana skilar sér því ekki í betri árangri nemenda. Það virðist vera full ástæða til þess að taka skólakerfið í Borg- arbyggð til endurskoðunar, bæði fjárhagslega en ekki síður faglega. Rekstur Borgarbyggðar, eins og flestra annarra sveitarfélaga, hefur verið jákvæður síðustu árin, ekki vegna hagkvæms rekstrar heldur vegna mikillar hækkunar á fram- lagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfé- laga. Árið 2010 var framlag Jöfn- unarsjóðs til Borgarbyggðar 534 milljónir króna. Árið 2019 var framlagið komið í 1.128 milljónir króna og hafði meira en tvöfald- ast. Á sama tíma hafði verðlag hækkað um 34%. Nú þegar harðnar á dalnum krefjast sveitarfélögin að ríkið komi til hjálpar. En það kemur að skuldadögum þar eins og hjá sveit- arfélögunum, ríkið þarf að taka lán ef bæta á Jöfnunarsjóði tekju- tapið og almenningur mun þurfa að greiða lánið fyrr eða síðar. Það er því mikið heppilegra fyrir al- menning að strax verði hagrætt hjá misjafnlega vel reknum sveit- arfélögum. Það gildir líka um rekstur Borgarbyggðar! Borgarnesi, 3. janúar 2021. Guðsteinn Einarsson. Fjármál og framkvæmdir Smá athugasemdir við rekstur Borgarbyggðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.