Skessuhorn


Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 20.01.2021, Blaðsíða 11
Leigufélagið Bríet í samstarfi við Akraneskaupstað óska eftir byggingaraðilum til þátttöku í uppbyggingu íbúða á Akranesi briet. is Leigufélagið Bríet Viljayfirlýsing um fjölgun íbúða, eflingu stafrænnar stjórnsýslu og upplýsingagáttar var undirrituð í desember síðastliðinn milli Akraneskaupstaðar, Leigufélagsins Bríetar, félagsmálaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Eitt af markmiðum yfirlýsingarinnar er að stuðla að auknu húsnæðisöryggi leigjenda með því að bregðast við þeirri stöðu sem komin er upp í húsnæðismálum hvað varðar fyrirsjáanlegan skort á leiguíbúðum í sveitarfélaginu. Í takt við það markmið auglýsir Leigufélagið Bríet í samstarfi við Akraneskaupstað eftir byggingaraðilum til þátttöku í uppbyggingu íbúða á Akranesi. Helstu forsendur verkefnisins eru: • Uppbygging 48 íbúða og er Leigufélagið Bríet tilbúið til þess að skuldbinda sig til kaupa á allt að átta íbúðum. • Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnisins í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti. • Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæðum lausna. Stefnt er að því að semja við fleiri en einn verktaka í verkefninu. Upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson, byggingafræðingur hjá HMS (elmar.erlendsson@hms.is). Nánari upplýsingar eru að finna á briet.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.